27.04.1981
Neðri deild: 82. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3758 í B-deild Alþingistíðinda. (3857)
291. mál, almannatryggingar
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir, hefur þegar fengið meðferð í hv. Ed. og var afgreitt þaðan samhljóða. Það gerir ráð fyrir tveimur breytingum á lögum um almannatryggingar:
Í fyrsta lagi að hver sá, sem stundað hefur sjómennsku í 25 ár eða lengur, eigi rétt til töku ellilífeyris frá og með 60 ára aldri, enda sé að öðru leyti fullnægt skilyrðum laganna í þessum efnum.
Í annan stað gerir frv. ráð fyrir því, að örorkustyrkþegi, sem náð hefur 62 ára aldri, skuli njóta örorkustyrks sem jafnan svarar til fulls örorkulífeyris.
Hér er um að ræða tvö tiltölulega einföld ákvæði og það fyrra ber í raun og veru að skoða í nokkru samhengi við frv. til l. um lífeyrissjóð sjómanna sem liggur fyrir í hv. deild.
Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta frv., herra forseti, en legg til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.