10.11.1980
Efri deild: 10. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 565 í B-deild Alþingistíðinda. (391)

33. mál, málefni Flugleiða hf.

Karl Steinar Guðnason:

Herra forseti. Við Alþfl.menn höfum lagt á það ríka áherslu, að afgreiðslu þessa máls verði flýtt, og ég tel að við höfum lagt okkur fram í þeim efnum. Það hefur einnig komið fram, að við höfum gagnrýnt mjög 5. gr. þess frv., sem ríkisstj. lagði fyrir Alþingi, og talið að hún væri of opin, hún gæfi tilefni til þess að álíta að ríkisstj. ætlaði að gera annað, setja önnur skilyrði en áður hefur verið greint frá. Á grundvelli þessa hefur fulltrúi okkar í fjh.- og viðskn. gert þá brtt. sem nú liggur fyrir.

Við viljum að það sér alveg á hreinu, hvaða skilyrði eru sett og hvaða skilyrði verða sett, menn þurfi ekkert að fara í grafgötur um það. Það er og til að auka á tortryggni okkar, að við höfum á tilfinningunni að það sé mikill ágreiningur í ríkisstj. um þessi mál, ágreiningur milli þeirra aðila annars vegar, sem vilja ganga eins langt og mögulegt er til að drepa þetta fyrirtæki, og hins vegar hinna, sem vilja gera góða hluti til þess að halda því gangandi. Við höfum einmitt áhyggjur af þessum ágreiningi vegna þess að við sjáum fyrir okkur hve atvinnuhagsmunir þess fjölda, sem vinnur hjá Flugleiðum, eru mikils virði.

Það hefur aðeins verið minnst á þátt samgrh. í þessum Flugleiðamálum, og það verður að segjast eins og er, að ég held að meðal þjóðarinnar hafi vaknað ýmsar spurningar um hans þátt í þessum efnum. Kannske var það fyrsta spurningin sem fram kom þegar hæstv. samgrh. átti viðræður við yfirvöld í Lúxemborg, hét því þar að lendingargjöld yrðu felld niður af flugvélum Flugleiða, en þegar heim kom kom í ljós að hann hafði ekkert umboð til þess að gera slíkt, það upplýstist þegar flugmálayfirvöld á Keflavíkurflugvelli hótuðu að stöðva flugvélarnar þar sem þeir fengu ekkert fé. Flugleiðir tóku mark á þessum yfirlýsingum, en fjmrh. ekki. Fjmrh. krafðist þess, að flugmálayfirvöld á Keflavíkurflugvelli innheimtu þessi gjöld. Það fékkst ekki niðurstaða um hvað ætti að gera fyrr en hótað hafði verið að stöðva allan flugflotann. Þá var loks gefin út tilskipun um að fresta þessum greiðslum. Þeir væru margir sem undruðust þessa yfirlýsingagleði sem síðan hefur haldið áfram í æ tíkara mæli.

Ég endurtek það, að við teljum mjög mikils virði að þessi skilyrði fari inn í lagagreinina, þar verði skýrt kveðið á um hvað skuli gera og hvað ekki. Við álítum einnig nauðsynlegt að ríkisvaldið hafi upplýsingar frá óháðum aðila til að styðjast við, þegar um þessi mál er fjallað, og leggjum því á það feikilega mikla áherslu.

Það kemur fram hér í umr., að hver nm. á fætur öðrum er því sammála að þessi skilyrði verði sett inn, eða menn telja að þeir hefðu getað samþykkt það ef nokkur tími hefði unnist til að ræða það. Ég lít svo á, að enn sé tími til að fara þessa leið. Það er búið að létta mestu pressunni af erfiðleikum Flugleiða í dag þannig öðrum nm. gefst kostur á að styðja þessa till. Alþfl.- manna. Ég tala nú ekki um þá sjálfstæðismenn sem kjósa fremur að halda út í óvissuna, halda út í bláinn, treysta ríkisstj. fullkomlega fyrir þessum skilyrðum. Ég held að það sé tímabært fyrir þá og tími til þess að fara að okkar ráðum og styð ja okkur í þessum efnum. Enn er nægur tími.