30.04.1981
Efri deild: 89. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3898 í B-deild Alþingistíðinda. (3948)
306. mál, verðlagsaðhald
Frsm. meiri hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Ég vil fyrst leiðrétta misskilning sem kom fram hjá hv. þm. Kjartani Jóhannssyni og hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni. Þegar orðunum þremur „steinn,“ „gata“ og „leggja“ er raðað saman er það að vísu rétt að það er ákveðin málvenja hér í landi að raða þeim á ákveðinn hátt þannig að merkingin er sú sem kom fram hjá þessum tveimur þm. En í þeirri ræðu, sem ég flutti áðan, raðaði ég þessum þremur orðum saman á annan hátt en venja er til þannig að merkingin var önnur. Sú röðun, sem ég notaði, fól það í sér að orðið „leggja“ varð síðast, en ekki fyrst, eins og venja er yfirleitt til, og breytir það mjög merkingunni. (EG: Hvernig var þá setningin aftur?) Setningin var á þá leið, hv. þm. Eiður Guðnason, að steinarnir væru í götu sem ríkisstj. væri að leggja, það er gatan sem verið er að leggja, en ekki steinarnir, og þar með breytist öll merking þeirrar líkingar sem ég tók. Ég notaði þessa líkingu markvisst vegna þess að það er reynsla úr mörgum þjóðlöndum að þær götur, sem lagðar eru með þessum hætti úr einstökum steinum, hafa reynst endingarbestar. Víða um lönd má enn aka öldum seinna eftir slíkum götum, — öldum eftir að þær voru upphaflega lagðar á þann hátt sem ég var að lýsa. Að vísu má ekki taka þessa lýsingu svo bókstaflega að ég vilji halda því hér fram, að efnahagsstefna núv. ríkisstj. muni standa um aldir. (LJ: Er hún grýtt?) Hún er ekki grýtt. Hv. þm. Lárus Jónsson getur á næstu ferð sinni til aðalstöðva Atlantshafsbandalagsins í Brussel gengið um nokkrar slíkar götur í miðborg Brussel sem lagðar voru einmitt á þennan hátt með slíkum steinum fyrir nokkrum öldum. Ég er alveg viss um að þegar hann gengur um þær götur að loknum fundum í aðalstöðvum Atlantshafsbandalagsins muni hann finna að þær eru greiðar, sléttar og öruggar yfirferðar. — Ég vildi aðeins, hæstv. forseti, leiðrétta þennan leiða misskilning sem kom fram hjá þessum tveimur hv. þm. og gæti leitt til þess að menn fengju annan skilning út úr orðum mínum en ég ætlaðist til í upphafi. Ég vona hins vegar að þessar orðaskýringar leiði ekki til þess, að umr. verði lengdar hér. Mér þótti nauðsynlegt að þetta kæmi fram.
Það hefur aðeins verið vikið hér í ummælum hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar að því sem prófessor Jónatan Þórmundsson viðhafði á sameiginlegum fundum þessara nefnda um að stjórnarskrárbrot fælist í þessum lögum. Ég held að við, sem vorum staddir á þessum fundi, munum lengi minnast þeirra orðaskipta þegar fyrrv. prófessor í lögfræði, dr. Gunnar Thoroddsen, og núv. prófessor, Jónatan Þórmundsson, skiptust á lagaskýringum. Ég verð að segja með allri virðingu fyrir prófessor Jónatan að mér fannst dr. Gunnari, fyrrv. prófessor og núv. hæstv. forsrh., veita mun betur í þeim lagaskýringum. Hins vegar er rétt að það komi hér fram, fyrst á annað borð er verið að vitna í þennan fund, og mér finnst leitt að hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson skyldi ekki minnast á það, að þegar prófessor Jónatan Þórmundsson var spurður um þau ummæli sem hv. þm. Geir Hallgrímsson hefur viðhaft um það frv. til laga, sem hér er til umr., að það muni leiða til lögregluríkis, þá tók prófessor Jónatan Þórmundsson algerlega af skarið að þessi ummæli hv. þm. Geirs Hallgrímssonar gætu á engan hátt staðist. Var mjög ánægjulegt að þeir voru sammála um það á nefndarfundinum, bæði núv. og fyrrv. prófessor, að þessi ummæli hv. þm. Geirs Hallgrímssonar gætu á engan hátt staðist.
Ég ætla ekki að blanda mér í þær deilur sem hér fóru fram milli hv. þm. Eyjólfs Konráðs Jónssonar og forsrh., en hitt vona ég þó að menn virði, sem almennt eru fylgjandi þeirri efnahagsstefnu sem hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson hefur fylgt, að í 1. gr. þessa frv. er fyrirtækjum, markaðsöflum og verðlagsyfirvöldum veitt meira frjálsræði við verðákvarðanir en ríkt hefur til þessa. Hingað til hefur það verið vaninn að ákvarðanir af þessu tagi væru bornar undir ríkisstj. hver og ein. Framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins hefur t. d. viðhaft þau ummæli, að slíkt kerfi sé eins konar ráðstjórn í verðlagsmyndun. En með þessu frv. er vikið frá þessu kerfi. Afskipti ríkisstj. af verðlagsmálum eru minnkuð sem því nemur. Í stað einstakra afskipta áður af sérhverri verðákvörðun er nú tekin upp almenn regla sem fyrirtækjum og verðlagsyfirvöldum verður síðan veitt svigrúm til þess að fara eftir. Ég held að það sé þess vegna alveg fyllilega í anda þessarar nýju aðferðar, sem lagt er til í þessu frv. að verði lögfest, sem hæstv. forsrh. áðan gefur ekki yfirlýsingar um hvaða fyrirtæki ættu ekki að fá hækkanir í samræmi við þær tölur sem ákveðnar verða í verðviðmiðuninni. Með þessu frv. er ríkisstj. að afsala sér því valdi sem hún hefur haft til þessa. Sú ákvörðun hæstv. forsrh. að veita ekki þau svör, sem hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson óskaði eftir, er þess vegna fyllilega í samræmi við þann anda sem í þessari frvgr. er. Það verður ekki lengur í verkahring ráðh. að gefa slíkar yfirlýsingar um einstök fyrirtæki, heldur verður það í höndum verðlagsyfirvalda. Það væru meiri pólitísk afskipti af verðákvörðunum í landinu en farið er fram á í þessu frv. ef einhverjir ráðh. færu nú að gefa slíkar yfirlýsingar. Það getur vel verið að ég og þm. Alþb. vildu kannske að stjórnmálamenn hefðu þau völd sem mér fannst hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson vera að óska eftir hér áðan en í frv. er beinlínis lagt til að það verði horfið frá því kerfi, sem hér hefur ríkt og ríkisstj. fari ekki lengur að blanda sér inn í einstakar verðákvarðanir einstakra fyrirtækja, heldur setji almenna reglu sem verðlagsyfirvöldum og fyrirtækjunum sjálfum verður síðan falið að framkvæma. Ég er ekki viss um að þessi skilningur hafi komið nægilega vel fram í umr. um þetta frv., en ég vona þó að það verði mönnum nokkuð til skýringar á því, að hér er horfið frá þeim ríkulegu pólitísku afskiptum af verðlagsákvörðunum einstakra fyrirtækja sem tíðkast hafa, bæði í þessari ríkisstj. og öðrum. Yfirlýsingar einstakra ráðh. um verðviðmiðun einstakra vörutegunda eða fyrirtækja sérstaklega er ekki í samræmi við anda þess frv. sem hér er lagt til að verði samþykkt.