04.05.1981
Efri deild: 91. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3917 í B-deild Alþingistíðinda. (3960)
311. mál, almenn hegningarlög
Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Fyrr í vetur var lögð fram þáltill. um heimild fyrir ríkisstj. til að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um varnir gegn töku gísla. Til þess að unnt sé að fullgilda umræddan samning er þörf á að breyta almennum hegningarlögum.
Í þessu frv. er lagt til að bætt verði við 6. gr. almennra hegningarlaga nýjum tölulið, 7. tölulið, svo að unnt sé að auka refsilögsögu Íslands og láta hana þannig taka til brota og brotamanna sem samningurinn fjallar um. Er hér um sams konar breytingar að ræða og gerðar hafa verið í sambandi við fullgildingu ýmissa alþjóðasamninga á undanförnum árum, svo sem Haag-samnings um varnir gegn ólöglegum aðgerðum gegn öryggi flugsamgangna, samnings er gerður var að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna um ráðstafanir gegn glæpum sem beinast gegn einstaklingum er njóta alþjóðaverndar og Evrópusamnings um varnir gegn hryðjuverkum.
Að lokinni þessari umr. óska ég að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn. og að það fái afgreiðslu samhliða þáltill.