04.05.1981
Efri deild: 91. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3917 í B-deild Alþingistíðinda. (3963)

129. mál, tékkar

Frsm. (Guðmundur Bjarnason):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. Ed. hefur tekið til umfjöllunar frv. til l. um breyt. á lögum nr. 94 frá 1933, um tékka. Megininntak þessa frv. er það, að kveðið er á um svonefnd skjalalaus greiðsluskipti, en í því hugtaki felst það, að banki eða sparisjóður, sem tekur við tékka á annan banka eða sparisjóð, sendir greiðslujöfnunarstöð, sem í þessu tilfelli er Reiknistofa bankanna, símleiðis færslu í véltæku formi til þess að stöðin geti bókað tékkann á viðskiptareikning viðkomandi reikningshafa. Tékkinn sjálfur er hins vegar geymdur á afgreiðslustað ásamt öðrum bókhaldsgögnum, en ekki sendur í þann banka sem hann er gefinn út á.

Í nefndinni kom fram sú hugmynd að þetta frv. ætti þess vegna e. t. v. að heita hefting á ferðafrelsi tékka, en það var sagt meira í gamni en alvöru.

Þetta er megininntakið í þessu frv. til l. um breyt. á lögum um tékka, að koma á svokölluðum skjalalausum greiðsluskiptum. Þetta hefur m. a. í för með sér að greiðsluskiptin verða miklu fljótvirkari, bókun reikninga á sér stað samdægurs í stað þess að ella gátu liðið margir dagar, jafnvel meira en vika frá því að tékki var gefinn út þar til hann var bókaður á viðkomandi reikning. Fór það eftir póstsamgöngum. Með þessu móti nýtist líka betur allur sá vélakostur sem til er í dag í bönkunum til þess að framkvæma þetta á þann hátt sem þegar er viðtekinn, þ. e. sending upplýsinga á milli greiðslujöfnunarstöðvarinnar og þess banka sem tékkinn er innleystur í. Sá búnaður allur nýtist með þessu móti á löglegan hátt og auðveldar alla meðferð banka á ávísunum.

Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir með samþykkt þess. Undir nál. á þskj. 698 skrifa hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, Kjartan Jóhannsson, Guðmundur Bjarnason, Davíð Aðalsteinsson og Lárus Jónsson.