04.05.1981
Neðri deild: 87. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3937 í B-deild Alþingistíðinda. (3983)

123. mál, hollustuhættir

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Vegna þessarar atkvæðagreiðslu og ummæla hv. þm. Ólafs Þ. Þórðarsonar, skrifara deildarinnar, vil ég láta það koma fram, að hér er ætlunin að setja ákvæði í lög sem á að beita sýkla, en ekki menn. Alþingi hefur jafnan verið þeirrar skoðunar, að draga bæri þar mörk á milli og engin ástæða til þess að sýklar njóti sömu lögverndar og menn. Því segi ég já við þessari grein og vil jafnframt nota tækifærið til að þakka hv. nefnd fyrir vel unnin störf.