05.05.1981
Sameinað þing: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3953 í B-deild Alþingistíðinda. (4010)

268. mál, rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Það er skiljanlegt að það sé aumt pólitíska ástandið á Alþfl. ef skynjun þm. flokksins á veruleikanum er álíka fjarstæðukennd og kom fram í frásögn hv. þm. Sighvats Björgvinssonar af nefndafundi fjh.- og viðskn. Ed. og Nd. Það er mesti misskilningur, að ég hafi setið sérstaklega reiður eða rauður og þrútinn á þessum fundi, vegna þess að þessi fundur var einkar skemmtilegur, nánast unaðslegur fyrir okkur stjórnarsinna, þegar við hlýddum á það hvernig hæstv. forsrh., fyrrv. prófessor í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands, meðhöndlaði þau ummæli sem Sjálfstfl. í stjórnarandstöðu hafði fengið Jónatan Þórmundsson til þess að koma með á fund nefndanna. Ég hef sjaldan horft upp á aðra eins útreið í akademískri umræðu og prófessor Jónatan Þórmundsson fékk hjá dr. Gunnari Thoroddsen á þessum fundi. Það er skiljanlegt að þessi fundur sé þess vegna sérstakt viðkvæmnismál hjá stjórnarandstöðunni, vegna þess að þar var á nokkrum mínútum gersamlega slátrað þeim meginmálflutningi sem stjórnarandstaðan hafði byggt afstöðu sína á. En fyrst nú er verið að lýsa geðhrifum manna á þessum fundum, þá fannst mér mjög merkilegt hvernig ýmsir nm. stjórnarandstöðunnar, sérstaklega Sjálfstfl. í stjórnarandstöðu, eins og hv. þm. Matthías Bjarnason, Matthías Á. Mathiesen, Eyjólfur Konráð Jónsson og Lárus Jónsson, breyttust skyndilega í hljóða og hógværa menn þegar hæstv. forsrh. gekk í sal nefndanna. Það voru sérstaklega ánægjuleg viðbrigði frá fyrri fundum nefndanna þann dag.

Hitt vænti ég svo að hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson og aðrir hér geri upp við sig, hvort þeir ætla að taka málflutning Jónatans Þórmundssonar í heild gildan eða ekki. Ef þeir ætla að taka málflutning prófessors Jónatans Þórmundssonar í heild gildan, þá stendur eftir sú meginniðurstaða hjá prófessornum, að höfuðkjarninn í ásökunum Geirs Hallgrímssonar gagnvart þessari ríkisstj. um að hún væri að innleiða lögregluríki — þessi höfuðkjarni í málflutningi Geirs Hallgrímssonar væri fjarstæða ein. Og það verður ekki dregin fjöður yfir það, að prófessorinn dæmdi leiðtoga stjórnarandstöðunnar fjarstæðufullan málflytjanda á Alþingi Íslendinga.