05.05.1981
Sameinað þing: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3955 í B-deild Alþingistíðinda. (4014)
268. mál, rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Hér hefur nú borið á góma undir þessum dagskrárlið sérstakan fund fjh.- og viðskn. Ed. og Nd. á dögunum og orðaskipti prófessora, fyrrv. prófessors og núv. prófessors, þar á fundinum. Ég vildi bara láta það koma fram, að það er að sjálfsögðu mjög villandi frásögn sem hér hefur verið flutt af hálfu formanns fjh.- og viðskn. Ed. um það sem fram kom á fundinum. Eftir stendur það sem kom hér fram í máli Sighvats Björgvinssonar, að 4. gr. þess frv., sem samþ. var, afnemur með einni setningu öll lög sem skylda ríkissjóð til þess að leggja fram fjármuni, og þetta er framsal Alþingis til ríkisstj. á löggjafarvaldi. Ekkert það kom fram í máli hæstv. forsrh. á þessum fundi sem hnekkti þessari skoðun prófessors Jónatans Þórmundssonar. Þetta stendur eftir og sagan á eftir að dæma í þessu máli.