05.05.1981
Sameinað þing: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3958 í B-deild Alþingistíðinda. (4020)
268. mál, rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins
Fyrirspyrjandi (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Þrátt fyrir allt tel ég mér skylt að þakka síðustu ummæli hæstv. viðskrh. þar sem hann lýsti yfir að hann mundi halda áfram að vinna að framgangi þessa máls. Ég sé að vísu ekki að hann hafi neitt unnið hingað til. En yfirlýsingin jafngildir því, að hann muni nú taka málið til afgreiðslu og úrlausnar, og fyrir það er auðvitað skylt að þakka. Betra er seint en aldrei.
En að því er varðar aftur á móti að fara í mál við forsrh. og að ég sé góður lögmaður, þá sé ég ekki að á þessu stigi hafi ég aðild að því máli. En það skal verða kannað og athugað með hvaða hætti væri hægt að koma málinu til dómstólanna.