05.05.1981
Sameinað þing: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3966 í B-deild Alþingistíðinda. (4030)

273. mál, tæknisafn

Menntmrh. (Ingvar Gíslason):

Herra forseti. Hv. þm. spyr hvort uppi séu áform um að stofna svokallaða tæknideild við Þjóðminjasafn Íslands. Því vil ég svara til, að það hafa farið fram mjög ítarlegar umræður milli mín og þjóðminjavarðar um þetta málefni, og ég held að mér sé óhætt að fullyrða að við höfum báðir mikinn áhuga á því, að slík deild geti starfað við Þjóðminjasafnið. Ég hef skýrt þjóðminjaverði frá því, að ég sé við því búinn að samþykkja eða staðfesta ef hann tæki þá ákvörðun að stofna formlega tækniminjadeild við Þjóðminjasafnið. Þykir mér líklegt að slík formleg ákvörðun verði tekin áður en lagt um líður.

Þjóðminjavörður hefur að sjálfsögðu í embætti sínu um árabil fjallað um þessi mál, leitt hugann að stofnun sérstaks tækniminjasafns eða tæknideildar í Þjóðminjasafni, enda á Þjóðminjasafnið ýmsa merka hluti sem tilheyra í eðli sínu slíkri safndeild. Þá hefur þjóðminjavörður verið með í ráðum um söfnun og varðveislu á vegum áhugamannasamtaka og ýmissa stofnana og fylgst með ástandi þessara mála almennt og hvatt til skipulegra aðgerða í þessum efnum eftir því sem tök hafa verið á. Þó verður að segjast sem er, að söfnun og varðveisla tækniminja er á frumstigi hér á landi og því miklu ábótavant miðað við það, hversu umfangsmikið og merkilegt verkefni er um að ræða og hversu mjög þessi mál standa að baki því sem gerist í ýmsum öðrum löndum. Mér er fullljóst að þörfin fyrir skipulegar heildaraðgerðir á þessu sviði er mjög brýn.

Skömmu eftir að ég tók við starfi menntmrh. skipaði ég starfshóp áhugamanna á þessu sviði undir formennsku Þórs Magnússonar þjóðminjavarðar til að semja greinargerð fyrir mig um stöðu þessara mála og hugsanlega stofnun tækniminjasafns. Hef ég látið dreifa þessari greinargerð hér. Þessi nefnd eða starfshópur athugaði málið og lagði fyrir mig þessa greinargerð seint í nóvember á síðasta ári. Ég vil nú biðja menn að lesa þessa greinargerð vegna þess að hún skýrir ákaflega vel það málefni, sem hér er um að ræða, og hvaða úrræði koma helst til greina í þessu sambandi. Hins vegar er greinargerðin það löng að ekki eru tök á því að fara að lesa hana hér alla í heild.

Þegar talað er um tækniminjar í íslenskri merkingu orðsins er átt við vélar og tæki sem Íslendingar tóku í notkun á landi og sjó eftir að nýir atvinnuhættir fóru að ryðja sér til rúms í upphafi þessarar aldar og gerbreyttu verkmenningu þjóðarinnar á mjög stuttum tíma miðað við hinar fornu hefðir sem áttu sér 1000 ára sögu. Hlutir, sem töldust til byltingarkenndra nýjunga á fyrstu árum þessarar aldar, eru nú eins konar fornminjar sem hafa ótvírætt safngildi ekki síður en minjar frá fyrri öldum sem eru til vitnis um verkmenningu hins rótgróna íslenska bændasamfélags.

Greinargerðin, sem ég var að nefna og útbýtt hefur verið, er of löng, eins og ég segi, til þess að lesa hana hér, en ég hvet menn til þess að kynna sér það, sem þar stendur, og bendi á það m. a., að skýrslan hefur að geyma ýmsar upplýsingar um tækniminjasöfn í nágrannalöndum og hvernig þau eru notuð, m. a. til kennslu. Þá er í skýrslunni gerð grein fyrir upphafi tæknialdar hér á landi með tilkomu gufuskipa og vélbáta, rafvæðingar, síma, bíla og landbúnaðarvéla, svo að eitthvað sé nefnt, og sagt frá því, hvað enn sé til af minjum frá fyrstu árum tæknialdarinnar og þá hvað gert hafi verið til þess að safna slíkum minjum eða vernda þær og geyma. Loks er að finna tillögur um það, hvað brýnast sé að gera í sambandi við skipulegar heildaraðgerðir í þessum málum eins og ástand þeirra er hér á landi. M. a. er bent á það, að sem fyrsta skref sé æskilegt að stofna formlega tækniminjadeild við Þjóðminjasafn. Koma þurfi upp eða útvega geymslu- og vinnupláss, þ. e. upphitaða skemmu, sæmilega góða, ráða þurfi mann til að safna tækniminjum og vinna að viðgerð og frágangi safngripa. Síðast en ekki síst þurfi að tryggja fjármagn til þessara mála, en það hefur naumast verið fyrir hendi fyrr en þá lítillega á þessu fjárlagaári. Í fjárveitingum til Þjóðminjasafns er gert ráð fyrir 50 þús. kr. upphæð vegna tækniminja, þ. e. 5 millj. gkr., og auk þess hefur safnið yfir að ráða 95 þús. nýkr. frá Þjóðhátíðarsjóði sem nota má í þessu skyni. Hér er því í fyrsta sinn fenginn nokkur fjárhagsgrundvöllur undir tækniminjadeild. Vil ég endurtaka það sem ég hef áður sagt, að ef þjóðminjavörður tekur ákvörðun um það fyrir sitt leyti að stofna tækniminjadeild við Þjóðminjasafnið mun ég staðfesta slíka ákvörðun, enda er stofnun slíkrar deildar mjög brýnt mál. Vona ég að það geti orðið áður en lagt um líður.

En á það hlýt ég að minna í þessu sambandi, að tækniminjasafn verður ekki rekið með orðum einum og litlu sem engu fjármagni. Með slíku veganesti er hugsanlega hægt að stíga fyrstu sporin, en ekki meira. Stofnun tækniminjasafns eða tækniminjadeildar við Þjóðminjasafnið krefst að sjálfsögðu verulegs fjármagns. Það er reyndar ekki víst að allt þetta fé þurfi að koma beint úr ríkissjóði. Það má líka hugsa sér að sú kvöð verði lögð á ýmsar stofnanir að leggja fram fé í þessu skyni, til að geyma það sem þessar stofnanir eða þessi fyrirtæki eiga af merkum tækniminjum, en eigi að síður er nauðsynlegt að ríkissjóður leggi þarna fram nokkurt fé.

Ég vona svo að þessari fsp. teljist svarað með þessum orðum.