05.05.1981
Sameinað þing: 79. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 3967 í B-deild Alþingistíðinda. (4031)

273. mál, tæknisafn

Fyrirspyrjandi (Guðmundur G. Þórarinsson):

Herra forseti. Ég þakka ráðh. ánægjuleg og ágæt svör og þann velvilja sem í þeim kom fram gagnvart þessu máli. Ég vil sérstaklega fagna þeirri yfirlýsingu hans, að tækniminjadeild verði stofnuð við Þjóðminjasafnið áður en langt um líður. Að lokum vil ég aðeins leggja áherslu á nauðsyn þess að fenginn verði maður í hlutastarf, a. m. k. framan af, til þess að draga saman þær minjar og þá muni sem víðs vegar um land eru, þannig að ekki hljótist tjón af og þessir gripir tapist. Hér er um að ræða björgunarstarf og því þarf ekki að fylgja mikill kostnaður.