10.11.1980
Neðri deild: 13. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í B-deild Alþingistíðinda. (408)
50. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna
Flm. (Magnús H. Magnússon):
Herra forseti. Í Austurlöndum nær hófst fiskrækt í sjó löngu fyrir upphaf tímatals okkar og var þá aðallega um ostrurækt að ræða. Á dögum rómverska heimsveldisins fluttist ostruræktin til Vesturlanda. Kínverjar hafa og stundað fiskrækt í þúsundir ára og rækta nú u.þ.b. 3 millj. tonna árlega. Svipað má segja um fleiri lönd í Suðaustur-Asíu og reyndar víðar um heim.
Í Kína fer ræktunin aðallega þannig fram, að eldistjarnir eru grafnar í votlendi við strendur og þar eru seiðin alin upp fyrstu vikurnar eftir hrygningu eða þar til þau komast af kviðpokaskeiðinu. Þá eru þau flutt yfir í aðrar tjarnir þar sem áður er búið að ala svif, þörunga, orma og annað heppilegt æti. Þar vex fiskurinn upp í hæfilega markaðsstærð.
Í Evrópu byrjaði þýskur maður, Jacobi, að rækta vatnafiska um miðja 18. öld. Við fráfall hans lagðist starfsemin niður og gleymdist eða svo gott sem þar til franskur maður, Remy, hóf hana til vegs og virðingar nær hundrað árum síðar eða rétt fyrir miðja 19. öld. Síðan hefur ræktun vatnafiska breiðst út um allan heim.
Hér á landi tóku menn að rækta bleikju og urriða í Mývatni um síðustu aldamót og náðu fljótlega allgóðum árangri. Þróunin síðustu áratugina hér á landi hefur þó aðallega beinst að eldi laxaseiða sem ýmist er sleppt í árnar hálfs árs gömlum, sumaröldum seiðum, eða eins og hálfs árs gömlum, gönguseiðum. Árangur þessarar starfsemi er góður. Það sýnir best stöðugt vaxandi laxagengd í þeim ám sem ræktaðar hafa verið á þennan hátt.
Á allra síðustu árum hafa menn gert tilraunir hér á landi til að rækta og ala upp lax í sjó þar til hann nær markaðshæfri stærð. Þetta hefur t.d. verið gert á Austfjörðum með athyglisverðum árangri, þótt sjór sé þar mun kaldari en t.d. við suðurströndina, en sjávarhiti hefur afgerandi áhrif á vaxtarhraða fisks. Nú síðast hafa verið gerðar tilraunir í sömu átt í Grindavík og víðar og lofa þær mjög góðu.
Á þessu sviði er mikill akur óplægður hér á landi. Norðmenn rækta nú þegar lax og silung á þennan hátt í svo stórum stíl að ársframleiðslan er 7000 tonn, en heildarlaxveiðar okkar Íslendinga eru um 250 tonn á ári. Að því er best verður séð er aðstaða okkar til slíkrar ræktunar lítt eða engu verri en Norðmanna. Á þessu sviði gætum við hafið framleiðslu sem gæfi af sér milljarða króna í útflutningstekjur árlega.
Ræktunin gæti sem best farið fram í fjörðum og víkum þar sem hluti ætisins væri svif og önnur áta í sjónum. Svo má nota fiskúrgang og loðnu eftir því sem hagkvæmt reynist, enda má talsverðu til kosta þegar um dýran fisk eins og lax og silung er að ræða. Einnig mætti nota vötn og tjarnir við ströndina sem hafa greiðan aðgang til sjávar eða þar sem auðvelt er að dæla upp ferskum og áturíkum sjó, að ekki sé talað um þar sem hita mætti sjóinn með jarðhita. Þar sem tjarnir eru ekki til frá náttúrunnar hendi má auðveldlega búa þær til. Það mætti t.d. gera við suðurströndina þar sem sjórinn er heitastur og því best fallinn til fiskræktar.
Þótt þeir þættir fiskeldis, sem ég hef nú drepið á, gætu innan fárra ára haft mjög mikla efnahagslega þýðingu fyrir þjóðarbúið skiptir fiskeldi í hafinu umhverfis landið, svokölluð hafbeit, þó margfalt meira máli, varðar sjálfa efnahagslega undirstöðu þjóðfélagsins.
Lengi vel var álitið að viðkoma helstu fiskistofna væri slík, að veiðar skiptu litlu sem engu máti um afkomu þeirra. Á síðustu áratugum hefur þekking manna í þessum efnum aukist mjög og nú vita allir að stofnar helstu nytjafiska okkar eru í hættu ef svo heldur sem horfir með veiðar. Reynt er að hlífa fiskstofnum með ýmsum aðgerðum sem flestar beinast að því að friða uppeldisstöðvar og koma í veg fyrir seiðadráp í stórum stíl og veiðar á smáfiski. Síðustu árin hafa þorskveiðar verið bannaðar tíma og tíma og hámark sett á veiðar ýmissa fiskstofna. Allt er þetta góðra gjalda vert og bráðnauðsynlegt og lengra þarf að halda á þeirri braut.
Þrátt fyrir stóraukna þekkingu á þessum málum og þótt allir viðurkenni nú að sumir fiskstofnar okkar séu í verulegri hættu hefur svo til ekkert verið gert til ræktunar nytjafiska í sjó, ekkert verið gert til að hjálpa klaki, þrátt fyrir mikla og góða reynslu í þessum efnum hvað vatnafiska áhrærir og nýja reynslu Norðmanna í sjófiskarækt.
Vitað er að skilyrði í sjónum við strendur landsins fyrstu vikur og mánuði eftir hrygningu skipta algerlega sköpum um hvort hrygning skilar góðum árangri eða ekki, en það hefur afgerandi áhrif á aflabrögð 4–8 árum síðar. Ástæður þessa eru aðallega taldar vera sveiflur á hita, seltu og svifi í sjónum, auk veðurfars o.fl.
Þorskseiði leita botns 5 mánaða gömul og eru þá úr mestri hættu. Norðmenn telja að 60% þeirra seiða, sem ná 5 mánaða aldri, nái því að verða kynþroska, nái m.ö.o. þriggja ára aldri. Talið er að tíu seiði eða minna af hverri milljón eggja, sem út klekjast, nái 5 mánaða aldri í sjálfri náttúrunni. Þetta er þó mjög breytilegt frá ári til árs. Giskað hefur verið á að u.þ.b. 400 millj. þorskseiða nái þessum áfanga hér við land í meðalhrygningarári. Í bestu árum, fjórða til fimmta hvert ár að jafnaði, er þessi tala margfalt hærri, en getur í verstu árum farið niður fyrir 100 millj. seiða.
Síðustu tvo áratugina, eftir að fullkomnari rannsóknaraðferðir og tækni komu til sögunnar, er meðaltal þeirra þorska sem árlega ná þriggja ára aldri hér við land, 230 millj. og munur á bestu og verstu árum allt að 5:1. Hér við land hagar þannig til að fiskur, sem klekst út við landið, er þar allt sitt æviskeið, nema hvað lítið eitt af seiðum berst til Grænlands og kemur gjarnan þaðan aftur sem fullvaxta fiskur til að hrygna við Ísland. Við höfum fengið full yfirráð yfir 200 mílna fiskveiðilögsögunni og njótum því svo gott sem einir alls þess árangurs sem af fiskrækt verður.
Bjarni heitinn Sæmundsson, okkar fyrsti fiskifræðingur, kynnti sér á sínum tíma vel reynslu annarra þjóða af ræktun nytjafiska í sjó, en margar þjóðir höfðu þá gert allvíðtækar tilraunir í þá átt og byrjuðu þær tilraunir reyndar fyrir aldamótin. Árið 1924 ritaði Bjarni stórmerka grein um málið í Andvara. Þar bendir hann á að reynsla annarra þjóða væri í stórum dráttum sú, að allgóður árangur var talinn hafa náðst af ræktun staðbundinna fiskstofna sem auðvelt var að fylgjast með. Erfiðara var að dæma um árangur af ræktun göngufisks. Sumir töldu hann góðan, aðrir töldu það ósannað með öllu. Nokkrir þeirra, sem töldu árangur fiskræktar lítinn, lögðu áherslu á friðun uppeldisstöðva og voru hræddir um að fiskrækt slævði áhuga á friðun.
Hafa ber í huga að á þessum tíma var talið ósannað að veiðar hefðu nokkur áhrif á afkomu helstu fiskstofna og að fiskmagnið væri allt að því ótakmarkað, t.d. var það álit Kanadamanna. Einnig verður að hafa í huga að allar ræktunarstöðvar sjávarfiska, sem þá voru starfræktar, slepptu seiðum um leið og þau komust af kviðpokaskeiðinu, en fyrstu dagar og vikur þar á eftir, ásamt kviðpokaskeiðinu sjálfu, eru sá tími sem sker úr um hvort hrygning heppnast eða ekki. Bjarni benti á að ef ná ætti góðum árangri í fiskrækt þyrfti að ala seiðin upp þar til þau kæmust á þann aldur að þau leituðu botns fimm mánaða gömul, en út á það gengur það frv. sem hér er til umr. Bjarni komst að þeirri niðurstöðu árið 1924 að þá væri ekki tímabært kostnaðar vegna að koma á fót fiskræktarstöð hér við land.
Margt hefur breyst síðan. Þá veiddu útlendingar þrisvar til fjórum sinnum meira við Ísland en Íslendingar sjálfir og hefði ræktun þá komið útlendingum að meira gagni en okkur sjálfum, eins og Bjarni Sæmundsson benti á. Þá benti heldur ekkert til þess, að helstu fiskstofnar hér við land færu minnkandi. Þvert á móti fór afli vaxandi frá ári til árs með vaxandi sókn. Nú er öldin önnur. Nú vitum við hvað hefur gerst og hvað er að gerast. Nú vitum við að ekki verður lengur til setunnar boðið með róttækar ráðstafanir fiskstofnunum til bjargar.
Í grg. frv. er bent á hagkvæmni aukins laxeldis, en til þess þáttar fiskeldis nær þetta frv. þó ekki, enda heyra þau mál undir önnur lög en hér er lagt til að breyta. Í þessu frv. er lagt til að Hafrannsóknastofnunin sjái um allar framkvæmdir, enda hefur hún mörgum og færum fiskifræðingum á að skipa, og eiga þeir greiðan aðgang að norskum fiskifræðingum og öðrum sem mest vinna að þessum málum.
Í grg. frv. er í mjög grófum dráttum bent á leiðir til að í þágu atvinnuveganna. 586 undirbúa og koma á fót hafbeit þorsks og annarra nytjafiska í stórum stíl.
Þótt fiskeldi hafi verið stundað í þúsundir ára og í mjög vaxandi mæli hin síðari ár hefur sú starfsemi fyrst og fremst beinst að eldi staðbundinna fisktegunda og sjávardýra annars vegar og hins vegar að eldi dýrmætra fisktegunda í markaðsstærð í afgirtum svæðum. Er þá átt við lax, silung, ákveðnar kotategundir og nú síðast hafa Norðmenn hafið undirbúning lúðueldis á þennan hátt. Um hafbeit sjávarfiska í stórum stíl hefur enn ekki verið að ræða, þótt öll þekkjum við góðan árangur hafbeitar að því er lax varðar.
Hin síðustu 3–4 ár hafa Norðmenn einbeitt sér að rannsóknum og undirbúningi að eldi þorsks í stórum stíl, enda þorskur þýðingarmesta fisktegund Norðmanna eins og Íslendinga. Norðmenn eru bæði með í huga eldi í markaðsstærð, en þó miklu fremur með í huga hafbeit í stórum stíl, en út á slíkt fiskeldi gengur það frv. sem hér er til umr.
Norðmenn haga rannsóknum sínum þannig, að þeir ala upp 100 þorskhrygnur til undaneldis. Eldi þeirra er engum erfiðleikum háð. Sjúkdómar þekkjast varla, öfugt við það sem á við um laxinn. Vandinn hefur fyrst og fremst verið að finna heppilegt æti fyrir seiðin þegar þau koma af kviðpokaskeiði nokkurra vikna gömul. Yfir 90% eggjanna í rannsóknarstöðinni klekjast út, en flest þeirra hafa dáið fljótlega eftir klak.
Með stanslausum tilraunum hefur Norðmönnum tekist að draga verulega úr þessum seiðadauða og tilraunir, sem gerðar voru á s.l. ári og reyndar 3–4 síðustu árum, marka tímamót í þessum efnum. Í fyrra var reyndur nýr búnaður til að safna æti úr sjónum og til að ala seiði í fram yfir kviðpokaskeiðið. 1% seiðanna lifði til 5 mánaða aldurs. Vísindamenn eru vissir um að mun betri árangurs sé að vænta. Bæði var, að við þessar síðustu tilraunir, sem fyrst og fremst voru gerðar til að prófa nýja tækni, vantaði um tíma æti fyrir seiðin og drápust þá mörg þeirra og sjórinn við tilraunastöðina var þennan vetur miklu kaldari en í meðalári, fór alveg niður í 0,5° C.
Norskir vísindamenn telja að þeir hafi komist yfir þá erfiðleika sem hingað til hafa af flestum verið taldir óyfirstíganlegir. Vísindamenn annarra þjóða, sem fylgst hafa með tilraunum Norðmanna, eru á sama máli. Norðmenn telja sig nú geta framleitt fimm mánaða þorskseiði í mjög stórum stíl, hvort sem vill til eldis í markaðsstærð eða til hafbeitar. Þótt miðað sé við að aðeins 1% seiðanna lifi til fimm mánaða aldurs, en Norðmenn fullyrða að þessi tala eigi eftir að stórhækka, fást 30–40 þús. fimm mánaða gömul þorskseiði undan hverri hrygnu árlega eða a.m.k. þúsund sinnum meira en á sér stað í sjálfri náttúrunni. Norðmenn telja að 60% þeirra fimm mánaða gömlu þorskseiða, sem sleppt er í hafið muni ná kynþroskaaldri, þ.e. þriggja ára aldri. Hver hrygna, sem alin er til undaneldis, gæti því gefið af sér allt að 18 þús. fullvaxinna fiska árlega og á sú tala eftir að hækka verulega að mati vísindamanna.
Haustið 1976 slepptu Norðmenn í hafið fimm mánaða gömlum merktum þorskseiðum. Þeir hafa nú þegar á fyrsta veiðiári fengið yfir 10% merkjanna til baka. Hafa verður í huga að ekki koma öll merki af veiddum fiskum til skila og mörg ár enn er eftir að veiða úr árganginum frá 1976. Allt bendir þetta til þess, að vísindamenn hafi rétt fyrir sér þegar þeir segja að 60% þeirra seiða, sem sleppt er í hafið fimm mánaða gömlum, nái kynþroskaaldri.
Dag Möller, yfirmaður þessara rannsókna við tilraunastöð Norðmanna í Austevoll nálægt Bergen, býður íslenskum fiskifræðingum og öðrum hér á landi, sem áhuga hafa á þessum málum, aðgang að öllum sínum tilraunum og býðst til að veita allar upplýsingar sem hann hefur yfir að ráða. Hann telur að fiskveiðihagsmunir Norðmanna og Íslendinga séu svo samtvinnaðir að þeir eigi að hafa fulla samvinnu um þessi mál.
Fyrsta skrefið, ef þetta frv. verður samþykkt, verður það, að íslenskir fiskifræðingar kynna sér vel reynslu Norðmanna og annarra þjóða, sem að þessum málum hafa unnið, og nota reynslu þeirra til að hanna tilrauna- og eldisstöð hér á landi. Strax á næstu vertíð gætu hafist undirbúningsrannsóknir við Náttúrugripasafn Vestmannaeyja.
Ef gengið er út frá því, að 1% seiða nái fimm mánaða aldri, en Norðmenn telja, eins og áður segir, að það hlutfall eigi eftir að stórhækka, þyrfti u.þ. b. 10 000 hrygnur eða 50–100 tonn af þorski til að fá 400–500 millj. fimm mánaða gömul seiði eða álíka mikið og meðalhrygningarárangur gefur af sér í sjálfri náttúrunni. Þetta er vel framkvæmanlegt. Auðvitað verða ýmsar rannsóknir og tilraunir að fara fram áður en hafist verður handa um stórframleiðslu, en reynsla Norðmanna mun auðvelda okkur undirbúning mjög.
Birgir Hermannsson ritstjórnarfulltrúi Ægis, blaðs Fiskifélagsins, fór á þessu ári í stutta heimsókn í tilraunastöð Norðmanna í Austevoll. Hann kynnti sér starfsemi stöðvarinnar, m.a. tilraunirnar með þorskeldi. Þetta skrifar hann í 9. hefti Ægis m.a. með leyfi forseta:
„Hvað sem öllu líður, þá er það orðin staðreynd, að í framtíðinni munu menn grípa æ meir inn í vistkerfi sjávarins og koma náttúrunni til hjálpar þar sem hún fer halloka vegna ágengni okkar mannanna.“
Það er einmitt þetta sem flm. þessa frv. vilja beita sér fyrir að strax verði hafist handa um hér við land. Það er tilgangur þessa frv. að hrinda af stað fiskeldi í stórum stíl og leitast þannig við að auka fiskgengd verulega í framtíðinni og leitast við að tryggja að engir hrygningarárgangar misfarist.
Það er eindregin skoðun flm. þessa frv., að efnahagsleg afkoma íslensku þjóðarinnar í framtíðinni byggist öðru fremur á ræktun nytjafiska í sjó. Stærstu framfaraspor mannkyns hafa verið stigin þegar veiðimennskan hefur vikið fyrir hjarðmennsku, og svo mun einnig verða um fiskrækt í sjó.