06.05.1981
Efri deild: 92. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4003 í B-deild Alþingistíðinda. (4088)
312. mál, sjóefnavinnsla á Reykjanesi
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég fagna því, að þetta frv. skuli vera komið fram og er nú kannske ekki vonum fyrr. Víst hefði verið ástæða til að taka þessi mál til umfjöllunar í sambandi við lánsfjáráætlun. Það veldur að sjálfsögðu nokkrum vanda að taka ákvarðanir með þeim hætti sem hér hefur verið gert: að afgreiða lánsfjáráætlun án þess að taka tillit til áforma af því tagi sem hér eru uppi, en ætla sér síðan að leggja í þau eftir á. Þess vegna hefði auðvitað verið eðlilegast og best ef þetta frv. hefði getað komið fram fyrr og áður en lánsfjáráætlun var tekin til afgreiðslu.
Eins og komið hefur fram í ræðum hæstv. iðnrh. og hv. þm. Þorvalds Garðars, sem töluðu hér á undan mér, svo og í aths. með þessu lagafrv., hefur þetta frv. haft verulegan aðdraganda og hefur verið unnið að þessu verkefni um langan tíma. Ég held að í máli sem þessu þurfi vitaskuld að fara saman bjartsýni, trú á það, sem menn eru að gera, og forsjá um að hrapa ekki að neinu. Sá jafnvægisgangur er auðvitað ævinlega vandasamur. Við Alþfl.-menn munum greiða fyrir því, að þetta frv. fái góða og rösklega athugun í nefndum, því að eins og ég sagði er það ekki vonum fyrr að þetta frv. kemur fram.
Auðvitað er ýmislegt í aths. með þessu lagafrv. sem vekur spurningar í hugum manna, en ég held að það sé rétt að þeim spurningum verði svarað í sambandi við umfjöllun n. um þetta mál.
Ég vil aðeins drepa á það, að vitaskuld hefur það veruleg áhrif í sambandi við atvinnuástand á Suðurnesjum að leggja í verkefni sem þetta, enda ekki vanþörf á að treysta undirstöður atvinnulífsins á því svæði, eins og dæmin sanna. Það má líka segja að með framkvæmd af því tagi, sem hér er lagt til að gerð verði, sé verið að leggja út á nýja braut — braut sem felur í sér ýmsa mjög athyglisverða möguleika í íslenskri iðnsögu og eiginlega að því er varðar almenna þróun iðnaðar yfirleitt, ekki bara hér á landi, því að hér er um verulegar nýjungar að ræða.
Ég ætla ekki að lengja þessa umr. með því að bera fram sérstakar spurningar í sambandi við það frv. til l. sem hér er til umr. En auðvitað verður að segja eins og er, að þeir afkastavextir, sem hér er gert ráð fyrir, virðast nokkuð lágir og væri ástæða til að líta á markaðs- og rekstrarforsendur út frá því. Ég gæti líka aðeins drepið á það, að í sambandi við iðjuver af þessu tagi skiptir vitaskuld mjög miklu máli að sú orka, sem fæst úr iðrum jarðar, sé sem allra best nýtt og þess vegna sé ástæða til að huga að margvíslegum möguleikum á að nýta hana samhliða verksmiðjuvinnslunni og treysta þannig undirstöður þessa fyrirtækis. Ég tel t. d. að það sé sjálfsagt að líta á möguleika í sambandi við raforkuframleiðslu alveg sérstaklega og með hvaða hætti það gæti styrkt undirstöður þess fyrirtækis sem hér er tillaga um gerð að setja á fót.
Að lokum aðeins þetta: Ég fagna því, að þetta skuli vera komið fram, og við Alþfl.-menn munum greiða fyrir því, að málið fái skjóta og góða athugun í þeirri nefnd sem því verður vísað til.