10.11.1980
Neðri deild: 13. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 587 í B-deild Alþingistíðinda. (409)

50. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Páll Pétursson:

Herra forseti. Bara örfá orð.

Mig langar til að lýsa velvilja mínum til þessa máls. Ég held að þetta sé merkilegt mál, og ég fagna því, að það skuli hafa komið fram. Vafalaust verður þetta einhvern tíma í framtíðinni að raunveruleika og gagnlegur hluti í þjóðarbúskap okkar Íslendinga.

Flm. er mikið í hug. Það gætir mikillar bjartsýni, bæði í grg. og í framsöguræðu, ef til vill fullmikillar bjartsýni. En það er líka nauðsynlegt að hafa trú á hlutunum og kjark til að nefna þá.

Við höfum unnið nokkurt starf að ræktun laxins og náð á því verkefni nokkrum tökum, í sumum greinum verulegum tökum, og sá árangur kemur til með að skita sér enn betur í framtíðinni. Ég vil minna á það hér á þessum stað, að við þurfum nauðsynlega að vinda bráðan í þágu atvinnuveganna. 588 bug að því að efla Fiskræktarsjóð til þess að sá árangur megi verða betri.

Að lokum vil ég einungis minna á að að sjálfsögðu þyrfti að framkvæma hér mjög vandaðar rannsóknir á þessu sviði. Ég sé einnig ástæðu til að nefna, að ég held að það sé mjög mikilvægt áð gæta náttúruverndarsjónarmiða mjög eindregið við undirbúning að þessu máli.