06.05.1981
Neðri deild: 88. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4031 í B-deild Alþingistíðinda. (4119)

123. mál, hollustuhættir

Sigurgeir Sigurðsson:

Herra forseti. Þessi mikli lagabálkur eða þessi mikla frumvarpssmíð, sem við höfum hér fyrir framan okkur og hefur hlotið umfjöllun á 13 fundum þingnefnda og óteljandi brtt., er mér satt að segja nokkur þyrnir í augum. Ég játa fúslega að það er erfitt að taka mjög stórt upp í sig þegar maður er að skoða þetta eiginlega í fyrsta skipti, en þó eru nokkur atriði hér sem stinga mig strax í augu og ég vil gjarnan vekja athygli á.

Ég held að ég megi hafa það rétt eftir að frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, þar sem ég sit í stjórn, hafi ekki verið óskað eftir skriflegri umsögn um þetta frv., heldur mun framkvæmdastjóri Sambandsins hafa komið á einn fund n. og gert grein fyrir sínum persónulegu skoðunum á þessu frv., sem þó skiptir hvert einasta sveitarfélag í landinu og að sjálfsögðu alla landsmenn. Að vísu var sveitarstjórnarmaður í þeirri nefnd sem samdi upphaflegu frv.-drögin, og kom hann eitt sinn til viðræðu á fund stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga til þess að svara þar fsp. og gefa upplýsingar, en að öðru leyti mun Sambandið ekki hafa verið með í ráðum og þrátt fyrir langa meðferð frv. þótti ekki ástæða til að kalla eftir skriflegri skoðun sambands sveitarfélaganna, sem þetta bitnar kannske mest á, á þessu stóra máli.

Það er sérstaklega 3. gr. frv. sem mér sýnist geta orðið nokkuð tafsöm í framkvæmd fyrir sveitarstjórnir. Þar er raunverulegt ákvörðunarvald tekið af þeim að miklu leyti í sambandi við staðsetningu fyrirtækja og fengið héraðsnefndum í hendur í sambandi við mengunarvarnir o. fl.

Ég vil vekja athygli á 5. gr. þar sem hér er kominn einn nýr skattlagningaraðili á sveitarfélög í landinu án þess að þau geti nokkuð um sagt. Ég vil fyrir þeirra hönd mótmæla því eindregið að svo verði. Sveitarfélögum er gert skylt að leggja á sína þegna og þurfa að sækja um leyfi til þess til æðri yfirvalda hverju sinni, þó að þau ættu að standa nær sínum þegnum en fjarlægt ríkisvald. En í 5. gr. er beinlínis gert ráð fyrir að hér geti komið inn sérstakur aðili, sem er heilbrigðiseftirlit í héruðunum, og skattlagt sveitarstjórnir án takmarkana — ég tek það fram: án takmarkana. Það er ekki sagt að sveitarfélögin þurfi að samþykkja þessar fjárhagsáætlanir, heldur er sagt að heilbrigðiseftirlit héraðanna búi til fjárhagsáætlanir og deili niður á sveitarstjórnirnar. Þetta er ótækt.

Fleira mætti tína til. Ég skal fúslega játa að heilbrigðisreglugerðir þurfa að vera í gangi. En ég tek fastlega undir með hv. þm. Friðrik Sophussyni um það hvað við erum farnir að gera miklar kröfur til atvinnurekstrarins í landinu. Sumar hverjar geta hreinlega gengið út í öfgar þar sem 3–4 stofnanir eru kannske farnar að yfirbjóða hver aðra til þess að geta sýnt hverjir völdin hafi.

Ég vil mjög eindregið, ef þetta frv. fer í gegnum Nd. nú á þessum fundi, hvetja nefnd Ed. til að fara vel yfir frv. og gera á því þær breytingar sem mér sýnist þurfa. Mér sýnist 3. gr. þurfa meiri umfjöllunar við og ég mótmæli 5. gr. alfarið.