06.05.1981
Neðri deild: 88. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4036 í B-deild Alþingistíðinda. (4130)

315. mál, Bjargráðasjóður

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Um leið og ég fagna því, að þetta frv. er fram komið, vil ég vekja athygli á þeim ákvæðum skattalaga, að ef þetta lán er óverðtryggt með t. d. 8% vöxtum og verðbólgan er 40% má gera ráð fyrir að á næsta ári verði mönnum reiknaðar tekjur af lántökunni. Það mundu þá vera 40% af láninu sem tekjur á því eina ári og til frádráttar hefðu þeir svo að sjálfsögðu vextina. Mér sýnist því að það sé alveg vonlaust að afgreiða þessi lán með þeim hætti að þessi atriði séu ekki skoðuð jafnframt. Annað tveggja þyrfti að veita hluta af lánunum sem styrk og hluta sem verðtryggð lán, en þá mundi þetta ekki koma svona út, eða þá að breyta þessum ákvæðum skattalaganna og undanþiggja þessi lán verðbreytingafærslu.