06.05.1981
Neðri deild: 88. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4036 í B-deild Alþingistíðinda. (4132)
315. mál, Bjargráðasjóður
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi fagna því, að þetta frv. skyldi loks koma fram, því að eins og allir vita er um að ræða gífurlegt tjón sem fjöldi manna varð fyrir á stóru svæði, og hafa nánast margir beðið í ofvæni eftir því, hvaða lyktir málið fengi hér á hv. Alþingi. Mér er kunnugt um að í sumum sveitum er þannig ástatt, að á einstaka bændabýlum er ekki enn farið að endurbæta það mikla tjón sem menn urðu fyrir þar sem fuku bæði þök af íbúðarhúsum og skepnuhúsum fyrir utan allt annað tjón á tækjum og fleira. Margir þessir aðilar hafa bókstaflega ekki bolmagn til þess að framkvæma endurbyggingu vegna þessara tjóna. Á mörgum gróðurhúsasvæðum er ekki enn búið að ná saman endum og koma framleiðslunni í það horf sem hún þarf að vera.
Ég vek einnig athygli á því, að í aths. með frv. er tekið fram að enn vanti upplýsingar um tjón, t. d. í Kópavogi, Njarðvík og Keflavík. Má því gera ráð fyrir að þessar fjárhæðir eigi eftir að hækka verulega frá því sem kemur fram í frv. eða grg. með frv. En það, sem ég vildi leggja áherslu á, er að ég tek undir það, sem kom fram hjá hv. 2. þm. Suðurl., að það er ákaflega mikilvægt að þessi lán, sem Bjargráðasjóður á að veita, verði í því formi að þau séu viðráðanleg, a. m. k. þannig að hægt sé að una við það. Ég skil ummæli hæstv. fjmrh. og hæstv. félmrh. hér í umr. á þann veg, að þeir reikni með að þessi lán eða þessi fyrirgreiðsla Bjargráðasjóðs verði í svipuðu eða í sama formi og var um að ræða þegar síðast voru veitt lán og styrkir, er tjón urðu á Norðurlandi, eins og hér hefur komið fram í umr. Þetta finnst mér ákaflega mikilvægt og ég skil þetta þannig, að stjórn Bjargráðasjóðs muni eiga í vændum að fá samþykki stjórnvalda fyrir ákvarðanatöku um svipuð kjör í sambandi við þessi tjón og þá voru veitt. Vil ég einmitt undirstrika þetta atriði. Þetta er gífurlega mikilvægt og er í samræmi við þær umr. og undirtektir sem hér urðu í vetur þegar þessi mál voru til umr. hér á Alþingi. Ég veit að flestir tjónþolar treysta því, að við það verði staðið sem þá kom fram.