10.11.1980
Neðri deild: 14. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í B-deild Alþingistíðinda. (416)

33. mál, málefni Flugleiða hf.

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Ég mun ekki við 1. umr. ræða efnisatriði þessa frv. Ástæðan er sú, að ég tel mikilvægt eins og aðrir hv. ræðumenn sem hér hafa talað, að koma frv. til nefndar. Nægilega langur tími hefur farið í tilgangslítið þref í stað afgerandi athafna varðandi þetta mál og þess vegna vil ég sem sagt ekki tefja það nú.

Ég vil hins vegar gera aths. við málsmeðferð, og ég gagnrýni þar sérstaklega, að fjh.- og viðskn. beggja þd, skuli ekki hafa starfað saman að athugun málsins. Það hefur verið viðtekin venja, þegar um svo viðamikil mál sem þetta er að tefla, að nefndir beggja deilda hafi starfað saman, og á það, held ég, alveg sérstaklega við fjh.- og viðskn. En svo hefur sem sagt ekki verið gert nú. Fjh.- og viðskn. þessarar hv. deildar þarf auðvitað sinn tíma til að kanna málið, en sá tími hlýtur að verða skemmri en nm. kynnu að óska.

Ég spurði formann fjh.- og viðskn. Ed. hvers vegna þessi háttur hefði ekki verið hafður á. Hann svaraði mér því til, að hann hefði ekki talið það vera í sínum verkahring að koma á slíkum sameiginlegum fundum. Það má vel vera rétt, og ég get út af fyrir sig fallist á það. Ég tel að hæstv. ráðh. hefði átt að hvetja til þessa samstarfs þegar hann mætti fyrir frv. í hv. Ed. En nóg um þetta.

Ég lýsi stuðningi mínum við frv. eins og það er komið frá hv. Ed. Ég hvet til þess, eins og aðrir hv. ræðumenn hér, að við 1. umr. verði ekki settar á langar ræður, en málinu verði sem fyrst komið til nefndar. Sjálfstæðismenn munu greiða fyrir framgangi málsins þrátt fyrir þá óeðlilegu málsmeðferð, sem ég hef hér gagnrýnt. Þegar ég tala um óeðlilega málsmeðferð á ég reyndar ekki eingöngu við að fjh.- og viðskn. hafi ekki unnið saman. Stundum hefur virst svo sem meira hafi verið lagt upp úr umr. utan þings um þetta mál og þeirri umr. þá gjarnan stjórnað af einstöðum ráðh. eða vissum þm. Hæstv. fjmrh. sagði áðan að mesta loftið væri að fara úr mönnum, og ég hugsa að það sé rétt, að mesta loftið sé að fara úr mönnum. En það er kannske athugunarefni fyrir hæstv. ráðh. að kanna í hverjum loftið hefur verið mest. (Gripið fram í.) Já, ég býst við því.

Eins og hæstv. fjmrh. gæti ég margt sagt fleira vegna málflutnings ýmissa aðila á undanförnum vikum, en eins og hann ætla ég mér að geyma það og hvet sem sagt til þess að málið komist til nefndar í kvöld.