07.05.1981
Efri deild: 93. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4060 í B-deild Alþingistíðinda. (4170)
139. mál, söluskattur
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég tel að hér sé á ferðinni allmikið framfaramál sem eðlilegt sé að Alþingi beiti sér fyrir að samþykkt verði. Við höfum hér hlustað á ræðu hæstv. fjmrh. þar sem hann hefur óskað sérstaklega eftir því, að það kæmi fram að hann væri ekki samþykkur þessu og samþykkt þessa frv. væri í andstöðu við fjmrn. Ég held að það eigi ekki að hrella menn frá samþykkt þessa frv. þó slík mótmæli hafi komið fram. Ég þekki það af reynslu minni að það er við nokkuð ramman reip að draga að koma framfaramálum af þessu tagi í gegnum fjmrn. Það tókst á sínum tíma þegar ég var sjútvrh. að fá fram nokkra ívilnun af þessu tagi. Hún var ekki eins mikil og ég hefði óskað og þess vegna var ég svolítið hnugginn yfir því framan af. En þegar ég komst að raun um að tveir forverar mínir í starfi höfðu engu náð fram, þá varð mér ljóst við hversu afturhaldssamt afl var þarna að fást og að menn urðu að taka hlutina skref fyrir skref.
Ég held að það frv., sem hér liggur fyrir, sé einmitt skref af því tagi sem sé eðlilegt og sjálfsagt að stigið verði. Því er haldið fram af hálfu fjmrn. í fyrsta lagi, að það séu ekki rétt rök að þetta styrki innlendan iðnað. Ég tel að það sé rangt, vegna þess að samkeppnin í þessari grein er ekki bara við sams konar tæki af erlendum toga, heldur líka við önnur tæki sem eru mekanísk að uppbyggingu, — önnur tæki, sem eru ekki byggð á rafeindatækni, heldur á öðrum aðferðum, sem hafa verið notuð til þessa. Ég get þess vegna ekki fallist á þá röksemd, að þetta styrki ekki innlendan iðnað. Það gerir það vissulega. Og ég verð að segja að það er mjög ánægjuleg þróun, sem hefur átt sér stað einmitt í þessari iðngrein, og það er ástæða til að stuðla að því, að sú þróun geti haldið áfram. Ég tel að þetta frv. geri það.
Talsmenn fjmrn. og hæstv. fjmrh. hafa talað um að hér sé ein undantekningin enn. Vitaskuld er það rétt að hér er um undantekningu að ræða. En hún er hvorki snúnari né erfiðari, eins og gefið er í skyn, heldur en ýmsar aðrar þær undantekningar sem hafa verið samþykktar. Hún er í raun og sannleika einfaldari vegna þess að þetta eru betur skilgreindir hlutir en ýmislegt annað sem hefur verið undanþegið söluskatti. Ég get tekið sem dæmi að matvörur af ýmsu tagi eru undanþegnar söluskatti, eins og kjötvörur, og það er langtum erfiðara að hafa eftirlit með því heldur en því að þetta skuli vera undanþegið, því að hér er þó um fáeina einstaka hluti að ræða sem seldir eru af ákveðnum aðilum og ekki í bland við aðra hluti í sama mæli og ýmislegt annað það sem undanþegið er söluskatti. Sú röksemd fær því ekki staðist að þetta sé sérstaklega snúið og erfitt og hafi í för með sér einstaka erfiðleika. (Gripið fram í: Það býður upp á svindl.) Það býður síður upp á svindl en ýmislegt annað sem undanþegið hefur verið.
En það, sem skiptir mestu máli í þessu, er að það er ákaflega mikilvægt fyrir okkur að framvinda eigi sér stað í fiskiðnaðinum, að hann sé tæknilega vel búinn miðað við þá hörðu samkeppni sem við eigum við að búa í þessari grein, í útflutningi okkar á þessum afurðum. Og sú samkeppni fer greinilega harðnandi.
Ég mæli eindregið með því, að þetta frv. verði samþykkt. Það er vitað mál, að það stendur framþróun á þessu sviði fyrir þrifum að þessi tæki eru óþarflega dýr. Mér finnst ekki heldur að fjmrn. þurfi að hafa sérstakar áhyggjur af þeim tekjum sem það fái ekki af þessum orsökum, vegna þess að hér er um nýja hluti að ræða og þess vegna í rauninni um nýjan tekjustofn að ræða ef lítið er á það af sjónarhóli fjmrn., — tekjustofn til viðbótar við aðra tekjustofna sem það getur vel látið vera að seilast í.
Ég held að við verðum að hafa það í huga, eins og ég sagði áðan, að fiskiðnaður okkar er að ýmsu leyti vanþróaður og það er meginmál fyrir okkur til þess að bæta lífskjörin í landinu og starfsaðstöðu og aðbúnað verkafólks á vinnustöðum að það takist vel til um alla framþróun. Við þurfum að vera í fararbroddi í þeim efnum. Þetta frv. miðar að því, að svo geti orðið, og þess vegna mæli ég eindregið með því, að það verði samþykkt, og tel ekki að afneitun eða mótmæli fjmrn: eigi að hafa nein áhrif á þm. að því er þetta varðar.