07.05.1981
Efri deild: 93. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4061 í B-deild Alþingistíðinda. (4171)
139. mál, söluskattur
Guðmundur Karlsson:
Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. 2. þm. Reykn. og hvet til þess að þetta frv. verði samþykkt og nái fram að ganga nú í vor. Sú þróun hefur átt sér stað í íslenskum fiskiðnaði, að það hafa verið tekin upp rafeindatæki í vaxandi mæli og á vonandi eftir að verða enn meira nú á næstu árum. Mörg okkar ágætustu fyrirtækja eru vel búin slíkum tækjum og hafa keypt þau dýrum dómum erlendis frá, en sem betur fer á sú ánægjulega þróun sér stað, að íslensk fyrirtæki eru að byggja sig upp í rafeindaiðnaði og hafa aðallega starfað fyrir fiskiðnaðinn. Þessi fyrirtæki eru að byggjast upp bæði hér í Reykjavík, á Ísafirði og í Vestmanneyjum, og ég held að með samþykkt þessa frv. verði þessi fyrirtæki ekki síður styrkt en íslenskur fiskiðnaður. Það er vel ef við gætum náð að samþykkja þetta frv. nú fyrir vorið.