10.11.1980
Neðri deild: 14. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í B-deild Alþingistíðinda. (419)

33. mál, málefni Flugleiða hf.

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég skal ekki verða til þess að hér þurfi að halda kvöldfund og ég ætla ekki að ræða frv. efnislega, en mig langar til að koma á framfæri örstuttri aths. eða kannske ábendingum.

Í öllum þeim umr., sem orðið hafa um þetta mál, hefur verið mikið um það talað að nauðsynlegt væri að bæta sambúðarvandamál annars vegar stjórnenda Flugleiða og hins vegar starfsfólksins, og réttilega hefur verið á þetta bent, að því er ég hygg. Í áframhaldi af þessu mun fjh.- og viðskn. Ed. hafa kvatt á sinn fund, að því er ég best veit fulltrúa flugmanna, flugfreyja og kannske einhverra fleiri, en mér sýnist að það hafi ekki verið rætt við einn eða neinn úr hinum stóra hóp hins lægra launaða starfsfólks Flugleiða. Þar á ég við skrifstofu- og afgreiðslufólk, fólk í hlaðdeild o.s.frv., o.s.frv. Mér sýnist því að út undan hafi orðið stórir hópar starfsfólks Flug sem ekki hafi verið talin ástæða til að ræða við. Ég tel eigi að síður fullkomlega nauðsynlegt að heyra álit þess fólks ekkert síður en flugstjóra og flugfreyja. Mér sýnist að þarna megi segja að hafi verið talað fyrst og fremst við það fólk sem hefur yfir 1 millj. kr. á mánuði í tekjur, ekkert við það fólk sem hefur undir þeim launum. Þetta finnst mér óeðlilegt í öllu þessu tali um að nauðsynlegt sé að bæta sambúðarvandamál innan fyrirtækisins. Fyrst hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður fjh.- og viðskn. Ed., virðist ekki hafa séð ástæðu til að tala við það fólk, sem hafði undir milljóninni á mánuði, þá vænti ég þess, að hv. þm. Halldór Ásgrímsson, formaður fjh.- og viðskn. Nd., eða meðnm. hans einhverjir telji ástæðu til að tala við þetta fólk því að það er ekki síður ástæða til þess. Þessu vildi ég koma á framfæri. Ég vænti þess, að við fulltrúa þessa fólks verði rætt ekki síður en hina.