07.05.1981
Neðri deild: 89. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4073 í B-deild Alþingistíðinda. (4203)
305. mál, grunnskólar
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég vil þakka nefndinni fyrir skjóta afgreiðslu á þessu litla frv. Ég ætla ekki að rekja ástæðurnar fyrir því enn einu sinni, að þetta frv. er flutt og ég hef farið fram á það að frestað verði gildistöku eða framkvæmd skólaskyldunnar í níu ár. Það kemur fram í grg. og ég flutti um þetta nokkuð ítarlega ræðu þegar málið var lagt fyrir.
En ein meginástæðan er sú — og ég vil leggja á það mikla áherslu — að það er ekki að mínum dómi full samstaða um það, hvernig fara skuli með þetta mál, hvort framkvæma skuli 9 ára skólaskylduna eða halda sér við 8 árin. En það, sem kom mér nú til þess að standa upp, voru nokkrar almennar athugasemdir tveggja hv. þm. um grunnskólann. Ég vil geta þess, að eins og fram kemur í aths. við frv. hefur nefnd manna farið yfir grunnskólalögin nú nýlega og skilað áliti um málið. Þetta álit liggur fyrir, því verður dreift til þingflokka og því verður dreift til skólamanna. Eins og ég hef áður skýrt frá verður haldin ráðstefna um grunnskólamál á grundvelli þessa nál., og ég vænti þess, að þeir hv. þm., sem áhuga hafa á þessum málum, sem ég veit að eru margir, fylgist með því þegar þessi ráðstefna verður haldin, og þeir eru boðnir velkomnir til þess að sækja hana og láta þar álit sitt í ljós um þau efni sem þar verða rædd.
Ég er sammála þeim um það, að þetta eru ákaflega stór mál og það er engin ástæða til þess að gera ekki sitt besta í því að ræða skólamál frá öllum hliðum og reyna að finna þar bestu lausnirnar. Ég ætla ekki að fara að deila um það hvernig til hefur tekist í einstökum atriðum um fræðslu á þessu skólastigi, á grunnskólastiginu, m. a. um það sem hér var sagt um það að byrja erlenda málakennslu svo snemma að það komi niður á móðurmálskennslunni. Það má vel vera að þessa séu dæmi og að eitthvað sé til í þessu, en ég held samt að það liggi ekki fyrir neinar ákveðnar athuganir á þessu eða fullar sannanir fyrir því að svo sé. En hitt veit ég, að það eru margir þeirrar skoðunar, að það sé óheppilegt að byrja of snemma kennslu erlendra mála og að slíkt geti komið niður á móðurmáli vegna þess að þroski barna er auðvitað mismunandi. Þetta þarf allt að athuga og ekkert sem mælir gegn því að það sé gagnrýnt og athugað eins og annað sem varðar framkvæmd skólamála.