07.05.1981
Sameinað þing: 81. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4104 í B-deild Alþingistíðinda. (4235)
372. mál, málefni Ríkisútvarpsins
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég fagna því, að þessi beiðni um skýrslu var hér lögð fram, og fagna því, að það gefst kostur á að þakka menntmrh. alveg sérstaklega fyrir það að hafa höggvið á þann hnút og þá sjálfheldu sem málefni Ríkisútvarpsins voru í hvað byggingarframkvæmdir snerti.
Hinu er ekki að leyna, að þegar ég sat hér undir ræðu hv. 5. þm. Vesturl. fór um mig hrollur, ef reyndin væri sú, að allir þeir, sem óskuðu eftir þessari skýrslu, væru sama sinnis og hv. ræðumaður. Hinn neikvæði málflutningur, sem einkenndi allt hans tal, vakti í fyrsta lagi undrun mína og einnig vaknaði sú spurning, hvort það gæti verið að það væri stefna Alþfl. gagnvart Ríkisútvarpinu sem þarna kom fram. Það gladdi mig þess vegna mjög þegar annar Alþfl.-maður, hv. 6. þm. Norðurl. e., kom hér í ræðustólinn og talaði með jákvæðu hugarfari um þessa stofnun og það sem þar þyrfti að gera. Ég vona að við getum lítið svo á, að hann sé nær því að túlka raunverulegan vilja Alþfl. í þessu máli. Sé það rangt væri rétt að það kæmi fram hjá hv. 5. þm. Vesturl. ef honum hefur af flokksins hálfu verið falið að flytja hér skoðanir Alþfl.
Ég fór einnig yfir þær óskir, sem fram komu í beiðni um þessa skýrslu, og leitaði að því, hvort þar væri borin fram ósk um að gerð yrði grein fyrir menningarlegu hlutverki Ríkisútvarpsins eða væntanlegri stefnu í þeim efnum. Þar er hvergi vikið að slíku. Og það má furðulegt vera ef maður kominn á þann aldur sem hv. 5. þm. Vesturl. er óskar eftir menningarstefnu Ríkisútvarpsins. Ég hef orðið fyrir áhrifum menningarstefnu Ríkisútvarpsins frá því að ég fór að geta hlustað á útvarpið. (EG: Þess gætir nú ekki mikið.) Ég vil bæta því við alveg sérstaklega í þessu sambandi, að það eru sennilega þó nokkuð ólík viðhorf hjá þegnunum í þessu landi, þ. e. þeim hluta þegnanna; sem hefur notið þess að hlýða á dagskrá útvarps og sjónvarps, og hinum hlutanum, sem fyrst og fremst leit á þá dagskrá sem stökkpall til áhrifa.