08.05.1981
Efri deild: 94. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4116 í B-deild Alþingistíðinda. (4246)

45. mál, viðskptafræðingar

Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Á síðari árum hefur það færst mjög í vöxt að ýmiss konar starfshópar hafa óskað eftir því að fá ákveðna vernd fyrir starfsheiti sitt. Það frv., sem hér er til umræðu, er liður í þeirri þróun. Mín skoðun hefur verið sú, að það þurfi að athuga vel, á hvaða braut við erum hvað þetta snertir, og taka jafnvel til heildarendurskoðunar hin ýmsu lög sem sett hafa verið um fjölbreytileg réttindi hinna einstöku starfsgreina á grundvelli menntunar, vegna þess að úrskurður ráðherraleyfa til að geta kallað sig ákveðnum menntunarheitum getur vissulega boðið heim þeirri þróun, að einstök hagsmunafélög eða hagsmunahópar ákveðinna menntagreina reyni að takmarka eðlilega framþróun menntastarfseminnar í landinu eða hindra einstaklinga í því að ganga þá menntunarbraut sem þeir telja heppilegasta. Það hefur verið mín skoðun, að á sviði menntunar eigi að ríkja mjög ótvírætt einstaklingsfrelsi og menn eigi að hafa þar mjög skýran og ákveðinn rétt til þess að ganga þá menntunarbraut, sem þeir óska, og það eigi að fara mjög varlega í það að ríkisvaldið, einstök ráðuneyti eða hagsmunasamtök ákveðinna menntagreina verði takmarkandi aðilar um réttindi einstaklinga sem gengið hafi ákveðna menntabraut, þótt það sé hins vegar vissulega rétt að þjóðfélagið hafi ákveðna hagsmuni af því að almenningur og opinberar stofnanir og einstök fyrirtæki geti haft ákveðna tryggingu fyrir því að þeir, sem vilja nota ákveðin menntunarheiti, fullnægi ákveðnum lágmarkskröfum um það efni.

Ég vildi lýsa þessum sjónarmiðum hér í upphafi, þótt þau séu mín persónulegu sjónarmið, um leið og ég mæli fyrir áliti n., og vona að meðnm. mínir forláti það. Við meðferð þessa máls í menntmn. deildarinnar hef ég vakið athygli á þessum sjónarmiðum, ekki vegna þess að ég hafi eitthvað sérstaklega á móti því að viðskiptafræðingar og hagfræðingar fái sömu réttindi og margar aðrar menntagreinar hafa verið að sækja sér á undanförnum árum, eins konar lögvernd á sínu menntaheiti, heldur vegna þess að ég tel nauðsynlegt að öll þessi mál séu tekin til rækilegrar skoðunar, ella geti niðurstaðan orðið sú eftir 5, 10, 15 ár eða svo, ef fleiri greinar sækja inn á þessa braut, að menntun einstaklingsins ein út af fyrir sig, sem háskólar bæði hérlendis og erlendis eða aðrar menntastofnanir veita þessum einstaklingi, skipti mjög litlu máli, það, sem skipti höfuðmáli, sé hvort hagsmunasamtök viðkomandi starfsgreinar og fulltrúar ríkisvaldsins, viðkomandi rn., vilji veita formleg leyfi til að löggilda slíka menntun. Ef það verður ráðandi kerfi stefnum við í eins konar gildakerfi, gamla miðaldakerfið á sviði menntunar, og stígum veigamikið skref frá þeirri þróun á Vesturlöndum á síðustu áratugum að réttur einstaklingsins, frjáls og óskorðaður réttur einstaklingsins til menntunar, verði verulega takmarkaður annars vegar af hagsmunasamtökum viðkomandi starfsgreina og hins vegar af ríkisvaldinu. Það er þróun sem er mjög andstæð mínum lífsskoðunum.

Ég sagði áðan að það væri ekki sérstaklega vegna frv. um réttindi til að kalla sig viðskiptafræðinga og hagfræðinga sem ég lýsi þessum sjónarmiðum, heldur er þetta einfaldlega fyrsta frv. sem kemur hér til meðferðar á Alþingi síðan ég fékk tækifæri til að fjalla um slík mál hér. Ég vildi þess vegna nota tækifærið til að lýsa þessum skoðunum.

Nefndin hefur orðið sammála um að leggja til að þetta frv. verði samþykkt með þremur breytingum sem gerðar eru á 2. gr. frv.

Fyrsta breytingin er þess eðlis, að í 1. mgr. 2. gr. eru felld niður þau orð sem fólu í sér að ráðh. ætti að löggilda háskóla og aðrar æðri menntastofnanir. Við teljum óeðlilegt að menntmrn. eigi að gefa út löggildingarskrá yfir menntastofnanir erlendis og ganga inn á þá braut að flokka námsstofnanir með þeim hætti. Bæði er slíkt verk ærið og nánast óvinnandi og líka á margan hátt óeðlilegt. Þess vegna er sú setning, sem felur í sér það ákvæði að rn. eigi að gefa út slíka löggildingarskrá eða löggilda slíkar stofnanir, felld niður.

Í öðru lagi er lögð til sú breyting, að möguleikar manna til að öðlast þessi réttindi við sex ára starf að hagfræði- og viðskiptafræðiefnum séu ekki bundnir eingöngu við þau sex ár sem liðu í undanfara þess að frv. yrði að lögum, heldur við sex ára tímabil hvort heldur er á undan eða eftir löggildingu laganna — eða m. ö. o.: við viljum halda þeim möguleika opnum að maður, sem hefur kannske í upphafi ekki tekið það sem talið væri fullgild menntun til að öðlast þessi réttindi, geti í starfi sýnt að hann hafi bætt við sig kunnáttu og hæfileikum og geti því áunnið sér þessi réttindi með starfi. Það teljum við nauðsynlegt svo að möguleikar einstaklinganna til þess að öðlast þessi réttindi séu ekki bundnir eingöngu við einhverjar formlegar prófgraður, sem þeir taka á yngri árum, heldur sé viðurkennt að menn geti í starfi sýnt af sér þá hæfni og þá kunnáttu sem fyllilega sé jafngild þeim prófum sem talin eru nauðsynleg. Sex ára möguleikinn er gerður almennur, bæði á undan og eftir löggildingu frv.

Í þriðja og síðasta lagi er lagt til að í stað umsagnar Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga, eins og stendur í frv., verði skipuð sérstök nefnd sem í eigi sæti einn fulltrúi frá Félagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga, annar fulltrúi frá viðskiptadeild Háskóla Íslands og þriðji fulltrúinn eða nefndarmaðurinn tilnefndur af menntmrh. Við teljum það meiri tryggingu fyrir því, að samræmi gildi í mati á prófum og hæfileikum manna til þess að öðlast þetta starfsheiti, að slík úrskurðarnefnd sé til, en að það sé háð stjórn eða ráðamönnum í tilteknu félagi hverju sinni, og enn fremur að til komi aðilar frá viðskiptadeild Háskóla Íslands til að fjalla um þessi efni, slík dómnefnd sé meiri trygging fyrir því, að einstaklingar hljóti sanngjarna meðhöndlun og sambærilega meðhöndlun yfir lengri tíma en það sem upphaflega var lagt til.

Nefndin er einhuga um að gera þessar breytingar á frv. og við höfum rætt þær við menntmrh. og einnig forsvarsmenn þeirra félagssamtaka sem upphaflega óskuðu eftir að slík löggjöf yrði sett. Þeir geta fyrir sitt leyti fallist á þessar breytingar, og vænti ég þess, að deildin geti gert það einnig.

Ég vil svo endurtaka að lokum þá persónulegu skoðun mína, að það geti verið hættuleg braut til lengdar að menntun einstaklingsins sé takmörkuð með þeim hætti að hagsmunasamtök og ríkisvald sameinist um að byggja hér upp formlegt leyfakerfi sem eitt sér geti löggilt menntun einstaklingsins. Í því frjálsa lýðræðissamfélagi og því samfélagi andlegs frelsis, sem við viljum viðhalda hér, er það einn af hornsteinunum að sérhver einstaklingur hafi möguleika til að heyja sér þá menntun og þann fróðleik, sem hann kýs, og beita því samkvæmt eigin dómgreind, en ekki séu lagðar á slíka möguleika óeðlilegar hindranir, annaðhvort hagsmunaaðila eða ríkisvalds.