08.05.1981
Efri deild: 94. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4139 í B-deild Alþingistíðinda. (4258)
56. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Landbrh. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Frv. þetta til l. um breyt. á lögum nr. 15/1979 um breyt. á lögum nr. 101/1966, um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarafurðum o. fl., er flutt til að leita staðfestingar á brbl. sem út voru gefin 23. júní s. l. Frv. var lagt fyrir hv. Nd. á haustþinginu og hefur hlotið afgreiðslu deildarinnar með nokkrum breytingum.
Frv., eins og það upphaflega var lagt fyrir, var eins og brbl. aðeins þrjár greinar sem fólu í sér tvö efnisatriði. Í fyrsta lagi var þar ætlað að rýmka þær heimildir, sem eru í lögunum frá 1979 um að greiða mishátt verð eða nota svokallað kvótakerfi, þannig að auka mætti frávik fyrir þá sem höfðu mikinn fjármagnskostnað vegna byggingarframkvæmda sem teknar hefðu verið í notkun 1976 og síðar, og enn fremur vegna þeirra sem voru að hefja búskap. Þetta var talið nauðsynlegt vegna þess að við vinnslu á svokölluðu kvótakerfi kom í ljós að nokkrir þeirra aðila, sem með þessum ákvæðum brbl. var ætlað að veita aukinn rétt, stóðu höllum fæti og þurfti sérstök ákvæði til að þeirra hagsmunir væru ekki um of fyrir borð bornir.
Í öðru lagi var í þessum brbl. breytt heimildum laganna við álagningu kjarnfóðurgjalds þannig að heimilt væri að leggja sérstakt gjald á innflutt kjarnfóður sem nema mátti allt að 200% á innkaupsverð vörunnar. Þessar heimildir voru ákveðnar í brbl. vegna þess að þau ákvæði, sem eru í lögunum frá 1979, voru flókin og erfið í framkvæmd.
Þetta voru meginatriði þeirra brbl. sem sett voru hinn 23. júní s. l. Að þessu sinni sé ég ekki ástæðu til að flytja langa ræðu um aðrar orsakir þess, að nauðsynlegt þótti að grípa til lagasetningar af þessu tagi. Þau mál eru það ítarlega rædd og þaulkunnug. Ég vil aðeins segja það og rifja það upp, að við samþykkt Alþingis á lögunum á síðari hluta þings 1979 voru veittar allrúmar heimildir fyrir Framleiðsluráð landbúnaðarins og Stéttarsamband bænda með samþykki landbrh. til að grípa til ráðstafana til stjórnunar á framleiðslu búvara. Þær heimildir þótti nauðsynlegt að rýmka í samræmi við það sem brbl. greina.
Í hv. Nd. voru gerðar, eins og fyrr segir, breytingar á þessu frv. Þær breytingar eiga að meginhluta rót sína að rekja til þess, að lögfróðir menn töldu að í lögunum frá 1979 væri réttur til ákvarðana fluttur nokkuð langt frá löggjafarvaldinu varðandi álagningu og innheimtu kjarnfóðurgjalds og breytingar. á slíkri gjaldtöku. Að þessum aths. gerðum leitaði ég til lögfræðinga um meðferð þessa máls og var það að þeirra ráði að fluttar voru brtt. við frv. þess efnis í megindráttum að breyta þeim heimildum sem lögin frá 1979 fela í sér hvað snertir ákvarðanir um þær leiðir sem lögin heimila að grípa til. Í stað þess, eins og segir í gildandi lögum frá 1979 um þessi efni, að Framleiðsluráð landbúnaðarins geti með samþykki fulltrúafundar Stéttarsambands bænda og staðfestingu landbrh. heimilað tilteknar ráðstafanir, verði valdið fært til landbrh., sem hann beitti þá að fengnum tillögum Framleiðsluráðs og Stéttarsambands bænda. Með því móti er farið í slóð löggjafar um önnur efni sem eru nokkur dæmi um hér á landi. Svo er t. a. m. um bensíngjald til Vegasjóðs, flugvallaskatt o. fl. sem nefna mætti í því sambandi.
Þetta var meginorsök þess, að frv. var breytt í hv. Nd. Er þá talið að frv. sé í sambærilegu horfi og algengt er um lagasetningu hér á landi, að framselt sé vald til ráðh. að ákveða að taka upp gjald, í þessu tilliti fóðurbætisskatt, og enn fremur að breyta þeirri gjaldheimtu eða fella hana niður án sérstakrar löggjafar frá Alþingi.
Ég taldi rétt að láta þetta koma hér fram og vænti þess, að þessar upplýsingar nægi til þess að hv. Ed. sjái í hverju það liggur að breytingar voru gerðar á frv. frá því sem það var upphaflega lagt fram.
Nú hafa lögin frá 1979 verið í gildi í tvö ár og þessar aðfinnslur höfðu eigi komið fram fyrr en við meðferð þessa frv. Auðvitað er ekkert við því að segja, en sjálfsagt er að ganga eins tryggilega frá málum af þessu tagi af hálfu Alþingis og lögfróðir menn telja fært.
Nú getur það út af fyrir sig verið álitamál, hvort hér sé um skattheimtu að ræða í venjulegum skilningi. Hér er ekki um að ræða skatt til ríkisins, heldur er hér um að ræða gjald sem tekið er af tiltekinni rekstrarvöru og notað er í þágu þeirrar stéttar sem rekstrarvöruna notar og um leið er það gert í þeim tilgangi að hafa áhrif á framleiðslumagn og stjórnun framleiðslunnar. Það er nokkuð öðru máli að gegna en þegar um er að ræða skatta sem renna til ríkisins eða renna t. a. m. til Vegasjóðs, eins og bensíngjald, sem þar með er þá varið til að standa straum af rekstri opinberrar stofnunar og framkvæmda á vegum þeirrar stofnunar. Það er því umdeilanlegt a. m. k. hvort hér sé um sambærilega gjaldheimtu að ræða, en þrátt fyrir það þótti rétt að hlíta ráðleggingum þeirra lögfróðu manna sem um þetta fjölluðu.
Ég tel að það sé ekki ástæða til, herra forseti, að fjalla efnislega um þessi mál í þessari hv. deild frekar að sinni. Ég vil aðeins leggja á það mikla áherslu að frv. þetta hljóti afgreiðslu hv. deildar. Það hefur hlotið meðmæli bændasamtakanna, bæði Stéttarsambands bænda og Búnaðarþings, og þær breytingar, sem gerðar voru á frv. í hv. Nd., eru gerðar með fullu samþykki og samráði við forustumenn Stéttarsambands bænda og Framleiðsluráðs. Ég vænti þess vegna að frv. hljóti góðan byr í þessari hv. deild, enda þótt það komi hingað nokkuð seint eftir að hafa verið til meðferðar í hv. Nd. frá því, eins og ég áður sagði, snemma á haustþinginu.
Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.