08.05.1981
Efri deild: 94. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4141 í B-deild Alþingistíðinda. (4259)

56. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins

Egill Jónsson:

Herra forseti. Hæstv. landbrh. hafði orð á því áðan, að það hefðu orðið tafir á afgreiðslu þessa máls í hv. Nd. Alþingis. Það er mikil ástæða til að vekja athygli einmitt á þessu. Málið var lagt fram 24. nóv. og landbn. Nd. Alþingis var rúma tvo mánuði að hita sig upp í það að taka málið til meðferðar. Umræður um það hófust ekki fyrr en 3. febr., eða rúmum tveimur mánuðum eftir að það var lagt fram á Alþingi, og Nd. afgreiddi málið ekki frá sér fyrr en 7. maí og voru þá liðnir 164 dagar frá því að málið kom fram á Alþingi. Það gefur sannarlega auga leið að ekki hefur verið mikill starfsvilji í kringum þetta mál í hv. Nd. Það hefði áreiðanlega verið hægt, ef menn hefðu kært sig um, að afgreiða það á miklu skemmri tíma en 164 dögum. Það er engin furða þótt hæstv. landbrh. hafi af því nokkurn beyg að nú er aðeins hálfur mánuður eftir af Alþingi, og menn geta rétt getið sér nærri hvað sá tími kann að reynast drjúgur fyrir þessa hv. deild til að fara í gegnum þetta mál. En ef Ed. Alþingis og ef landbn. Ed. Alþingis haga sínum málflutningi og afgreiðslu með sama hætti og hæstv. landbrh. hagaði sínum skýringum áðan, þ. e. að fjalla ekki efnislega um þetta mál, er vitanlega hægt að koma því í gegnum Alþingi á stuttum tíma. Kannske vakir það fyrir hæstv. landbrh. að tíminn verði ekki tekinn í það hér í meðförum þessarar deildar að fjalla um þetta mál efnislega, gagnsemi þess og afleiðingar.

Það er vert að geta þess hér í upphafi, að við útgáfu brbl. er getið tveggja forsendna fyrir þeirri nauðsyn sem þar er talin liggja að baki. Annars vegar er að niðurgreiðslur á erlendum fóðurvörum séu svo miklar að innlendri fóðurframleiðslu stafi þar hætta af. Hin ástæðan er, eins og það er orðað, framleiðsluvandinn í landbúnaðinum. Það eru að sjálfsögðu þessir tveir þættir sem menn þurfa að brjóta til mergjar til þess að unnt sé að meta hvort eðlilegt sé að staðfesta þessa löggjöf hér á Alþingi.

Þá er fyrst þess að geta, að á áratugnum frá 1970–1980 var kjarnfóðurverð af þeim ástæðum, sem ég hef hér tilgreint, niðurgreiðslu á erlendum fóðurvörum, má segja óeðlilega lágt. Á því tímabili nam innlendur framleiðslukostnaður á heyi, sem að sjálfsögðu er langþýðingarmesta fóðurtegund sem hér er notuð, um 70–80% af verði innflutts kjarnfóðurs. Ef þetta verðhlutfall er hins vegar athugað eins og það er nú er það orðið 50%, þ. e. að innlenda fóðurframleiðslan, og þá á ég að sjálfsögðu við hey, er núna, miðað við fóðureiningu, helmingi ódýrari en innflutt kjarnfóður. Þá er að sjálfsögðu með í því dæmi 33%-gjaldið sem nú hefur verið í gildi, en eftir sem áður stendur óhaggað að þetta hlutfall er núna orðið með allt öðrum hætti en það hefur vérið á s. l. áratug. Þetta má raunar skýra miklu nákvæmar en aðeins þessar tilvitnanir og er vert að gera það að nokkru marki.

Á því tímabili, sem liðið er frá því að brbl. tóku gildi, en það var í júnímánuði fyrir tæpu ári, hefur verð í Danmörku á fóðurblöndu hingað fluttri hækkað um 44.5%. Aftur á móti hefur þetta leitt það af sér, að 33% kjarnfóðurskatturinn hefur á þessu tímabili hækkað um tæplega 62%. Það, sem skiptir kannske einna mestu máli í þessu sambandi, er að útsöluverð á kjarnfóðri hér á landi, samkvæmt þeim heimildum sem ég hef hér fyrir mér, hefur hækkað um 142% með 33%-gjaldinu og tæplega um 100% í útsölu án þess. Ástæðan fyrir þessum verðbreytingum er m. a. sú, að niðurgreiðslan á erlendu fóðurvörunum, sem Efnahagsbandalagið hefur greitt niður, er að langmestu leyti hætt. Hún er orðin hverfandi lítil. Þar með hafa menn séð að hinar raunverulegu forsendur, sem sérstaklega er getið í brbl., eru að því er þennan þátt málsins varðar ekki lengur fyrir hendi. Kjarnfóðurverð hefur hækkað það mikið og niðurgreiðsla Efnahagsbandalagsins hefur verið felld niður. Af þessari ástæðu er þessi þörf ekki lengur fyrir hendi.

Það er líka vert að undirstrika það alveg sérstaklega, að sú skipan, sem tekin var upp í sambandi við gjaldtökuna og breytingu frá fyrri lögum þar um, er í algjörri andstöðu við stefnu og markmið Sjálfstfl. í þessum efnum. Í fyrri lögum eins og þau voru var tilskilið að ákveðinn hluti af kjarnfóðurnotkuninni skyldi vera undanþeginn skattlagningu, en aftur á móti lagður sérstakur skattur á hærri hlutann af kjarnfóðurnotkuninni. Og í þeim lögum var miðað við 100% álag á innflutt kjarnfóður. Breytingin er með öðrum hætti sú, að það er ekki orðið lengur skylt að hafa ákveðinn hluta undanþeginn gjaldtökunni og að skatturinn er hækkaður úr 100% upp í 200%.

Það er viðurkennd afstaða Sjálfstfl. í þessum efnum, að helst beri að haga kjarnfóðurgjaldi með þeim hætti að skapa aðhald í kjarnfóðurnotkun, að kjarnfóður sé ekki notað þannig í óhófi í landinu, en auk þess ef um sérstakar niðurgreiðslur er að ræða á erlendum mörkuðum sem innlendri fóðurframleiðslu kann að geta stafað hætta af. Undir öðrum kringumstæðum er Sjálfstfl. andvígur því skattafyrirkomulagi sem nú er viðhaft, þ. e. að leggja tiltölulega lágan skatt á kjarnfóðrið, þótt hann hins vegar nemi nú orðið um 6 kr. á hvert kg af innfluttu kjarnfóðri.

Þá er það hinn þátturinn, sem þessi lög fjalla um, þ. e. framleiðsluvandinn. Það er kannske ekkert óeðlilegt þótt hæstv. landbrh. kæri sig ekki um þessar mundir ýkjamikið um að vera margorður um þann vanda. Sannleikurinn var nefnilega sá, að árið 1979 varð eitt harðasta árferði, sérstaklega að því er vorið snerti, sem hefur gengið yfir íslenskan landbúnað á þessari öld. Það skildi það m. a. eftir sig, að mjólkurkúm fækkaði um 7.1% og kvígum fækkaði um tæplega 20%. Það er fróðlegt að leggja það niður fyrir sér, að miðað við sambærilega framleiðslu eftir hverja kú og verið hafði næstu fjögur ár á undan hefði framleiðslan átt að nema 106.5 millj. kg. á s. l. ári. Það er athyglisvert, að þessi tala er svo að segja alveg nákvæmlega sú sama og framleiðslan varð á árinu 1980. Það er líka athyglisvert, að hér er um að ræða tölu sem er líka svo að segja sú sama og markaðurinn tók á móti á árinu 1980. Þar skildi aðeins um tæplega 1 millj. kg sem framleiðslan var umfram markaðsþörfina hér innanlands eins og hún var á s. l. ári.

Nú vilja menn kannske segja að það hafi verið gerðar sérstakar ráðstafanir til að koma landbúnaðarframleiðslunni og þá sérstaklega mjólkurvörunum í verð og þar hafi að sjálfsögðu haft mest áhrif smjörútsalan sem var haldin síðla árs. En þá er líka vert að benda á og leggja á það áherslu, að frá áramótum, þ. e. fyrstu fjóra mánuði þessa árs, hefur samdráttur í mjólkurframleiðslu numið í kringum 3 millj. kg. Það er sama eða mjög svipað magn og hefði þurft til framleiðslu á því smjöri sem var selt á smjörútsölunni. Þannig er þar þegar í stað kominn jöfnuður á og miðað við að framleiðslan verði sú sama það sem eftir er ársins og hún var fyrir einu ári er komin alger jöfnuður á.

Þetta skýrir það m. a. vegna hvers það passar ekki sérstaklega vel að vera að ræða þessi mál efnislega um þessar mundir. Ef menn hefðu viljað leggja þessi mál niður fyrir sér um áramótin 1979 og 1980, þá hefði ekki farið hjá því að menn hefðu komist að þeirri niðurstöðu, að bústofninn var orðinn það lágur að með engum hætti var hægt að hafa áhyggjur af offramleiðslu í landbúnaði. Í rauninni voru líka til fleiri upplýsingar en þetta, því að á fyrri hluta síðasta árs, þ. e. frá jan. til maí, varð minnkun á mjólkurframleiðslunni sem nam 1.5%. Þannig var þegar orðið ljóst, áður en til þessara ráðstafana var gengið, að framleiðslan var komin í eðlilegt jafnvægi.

Það, sem vekur kannske eftirtekt núna, er að hæstv. landbrh. var þetta þá þegar og reyndar þó nokkru áður alveg fyllilega ljóst. Þannig var, að í Nd. Alþingis fóru fram umr. um framleiðslumál landbúnaðarins 12. mars þar sem m. a. Alþfl.-menn deildu mikið á það mál sem þar var til umræðu, heimild Framleiðsluráðs landbúnaðarins til lántöku. Þá komst hæstv. landbrh. þannig að orði, með leyfi hæstv. forseta:

„Ég vil hins vegar benda á að samkvæmt fréttabréfi frá upplýsingaþjónustu landbúnaðarins hefur búpeningi í landinu fækkað verulega á síðasta hausti, t. a. m. mjólkurkúm um 6.8%, nautpeningi í heild um 8.68%, sauðfé um 10,68% og hrossum um 6.07%. Miðað við þær tölur, sem hér eru raktar og t. a. m. snerta kúastofninn, þar sem kúm hefur fækkað um 6.8%, má leiða að því líkur, að sú aukning, sem er á mjólkurframleiðslu fyrstu mánuði ársins, muni ekki halda áfram þegar lengra liður á árið. Það gæti átt sínar skynsamlegu rætur í því, að bændur hafi vegna takmarkaðra heyja á s. l. hausti slátrað fremur síðbærum en snemmbærum. Ég vænti þess, að jafnskarpur maður og hv. þm. Árni Gunnarsson átti sig á því, að þarna getur verið um stundarfyrirbrigði að ræða sem a. m. k. er óvíst að nái yfir þróun í mjólkurframleiðslunni þegar mjólkurframleiðslan er mest, og þá hafa prósentustigin til eða frá miklu meiri áhrif en nú á fyrstu mánuðum ársins.“

Hér lýkur tilvitnun í orð hæstv. landbrh., sem sá það þegar um miðjan mars á s. l. ári að bústofninn í landinu var orðinn að þeirri stærð sem svaraði til neysluþarfarinnar hér innanlands. Það verður þannig að teljast alveg óskiljanlegt hvers vegna til þessarar útgáfu á brbl. var gripið 23. júní s. l. Hæstv. landbrh. hafði sagt frá því hér á Alþingi, að bústofninn væri af þeirri stærð sem hentaði markaðnum, og sú framleiðslusveifla til aukningar, sem varð fyrstu tvo mánuði ársins, var gengin yfir og það var orðin minni framleiðsla fimm fyrstu mánuðina en verið hafði árið áður. Það er alveg nauðsynlegt að menn geri sér ljóst hvaða fát og hvaða fum hefur legið hér að baki.

Ég hef lagt fram í Sþ. fsp. til hæstv. landbrh. sem fjallar um kjarnfóðurgjaldið, hversu hátt það er, hve mikið hafi innheimst af því og þannig fram eftir götunum. Ég trúi því ekki, að Alþingi ljúki svo að hæstv. landbrh. svari ekki þeirri fsp., og þess vegna ræði ég það ekki sérstaklega hér. En það hygg ég að sé óvefengjanleg reynsla, að öll framkvæmdin hafi gengið með miklum erfiðleikum og að í raun hafi bændur tapað miklu fjármagni á þessari skattheimtu. Skatturinn var lagður á strax 23. júní og þar eftir og það er alveg nýlega búið að skila honum aftur til bændanna í þessu landi. Menn geta rétt lagt niður fyrir sér hvaða rýrnun hefur orðið á þeim verðmætum sem þar hafa um hendur farið.

Það, sem kannske vekur einna mesta eftirtekt í þessu öllu saman, er að þrátt fyrir að við stöndum enn gagnvart einum allra erfiðasta vetri á þessari öld, köldu vori og einstaklega frosthörðum vetri, þótt það sé orðið á allra vitorði nú að tún eru stórlega skemmd af kali mjög víða um land, sem alveg er ljóst að muni hafa í för með sér mjög rýrnandi uppskeru, þá er samt haldið áfram að skattleggja, samt er haldið áfram að leggja kjarnfóðurgjald á fóðurbætinn. Út af fyrir sig er það kannske ekki óeðlilegt séð frá sjónarmiði þeirra manna sem eru að berjast fyrir gjaldtöku á þennan hátt, vegna þess að nú þurfa bændurnir í landinu að nota miklu meira af þessu fóðri en í nokkurn annan tíma og að sjálfsögðu mega þeir þá ekki missa af þeim „bisness“ sem í því felst að leggja skatt á sjálfa sig, láta hann vera svo í umferð í þjóðfélaginu í tæpt ár og skila honum þá aftur til baka. Það er þó kannske enn hættulegra í þessum efnum, að auðvitað gengur meira á hey við þessar aðstæður en heppilegt er. Það hefur lengst af þótt góður búskapur á þessu landi að geta miðlað heyjum á milli góðæris og harðæris, og allir vita að kjarnfóður getur ekki komið í staðinn fyrir heyfóður nema að nokkrum hluta, ekki einu sinni þó að það sé skattlagt, og því er alveg sérstaklega ógætilegt og ámælisvert að við þær aðstæður, sem nú eru í landbúnaði, skuli þessi skattur vera lagður á. Í raun og veru verður ekki séð að það hafi verið neinn annar tilgangur með lagabreytingunni en sá, að hægt væri að koma á þessu lága kjarnfóðurgjaldi, ef ég mætti kalla það svo, 33% eða hvað það nú er.

Aðrar heimildir fyrir undanþágum varðandi framleiðslukvóta voru fyrir, og það var byrjað að vinna eftir þeim. Reglugerðin, sem var gefin út samkvæmt breytingum á framleiðsluráðslögunum árið 1979, gerði ráð fyrir heimildum til að meta með sérstökum hætti rétt frumbýlinga og þá um leið þeirra sem höfðu óeðlilega mikinn fjármagnskostnað miðað við bústærð.

Það verður erfitt að sjá hver séu þau sérstöku rök sem fyrir þessari gjaldtöku eru, og það verður ekki komist hjá því að spyrja hæstv. landbrh. um það alveg sérstaklega. Menn mega ekki gleyma því, að mjólkurframleiðslan er í lágmarki miðað við markaðsþörfina hér innanlands. Á aðalfundi Osta- og smjörsölunnar, sem nýlega hefur verið haldinn, kom fram ótti um það frá forráðamönnum þess fyrirtækis, að ekki væri hægt að framleiða og selja allan þann ost sem við eigum rétt á að flytja til Bandaríkjanna samkvæmt þeim kvóta sem við þar eigum. Það er kannske ekki úr vegi að minna á þá umræðu, sem fram fór þegar þeim útflutningskvóta var breytt fyrir fáum árum í 600 tn., út frá þeim viðhorfum sem eru núna í mjólkurframleiðslunni í landinu þar sem e. t. v. eru horfur á að ekki verði einu sinni hægt að framleiða upp í þann kvóta.

Ég undirstrika það sem ég sagði áðan, að við höfum nýlega kvatt einn kaldasta vetur á þessari öld, og ég minni á að það eru algjörlega breytt viðhorf gagnvart kjarnfóðurverðinu. Það hefur stórhækkað frá því sem það var fyrir einu ári og útflutningsuppbætur í Efnahagsbandalagslöndunum eru að mestu leyti niður felldar. Það er þess vegna alveg ljóst af því, sem ég hef þegar sagt, að þessi brbl. og framkvæmd þeirra eru ekki einungis óþörf, þau eru líka skaðleg. Þau verka sem þvingun á starf íslenska bóndans, þau hafa haft mjög slæm áhrif á aukabúgreinarnar í landinu og alveg sérstaklega þann hluta þeirra sem bændur, sem jafnframt stunda hefðbundnar búgreinar, hafa búið við.

Ég hef rakið í stórum dráttum þessa lagagerð. Ég vænti að ekki fari milli mála og öllum sé ljóst að það, sem hér hefur átt sér stað, hefur verið gert í fljótfærni ef ekki býr eitthvað annað alveg sérstakt að baki.

Hæstv. landbrh. sagði frá því á s. l. vetri í umr. um landbúnaðarmál í Ed. Alþingis að það væri stefnt að því að ákvarða stefnu í landbúnaðarmálum. Orðrétt sagði hann í þessum umr.:

„Ég tel að í þessu frv. birtist t. a. m. á engan hátt stundleg friðþæging, eins og hv. þm. Kjartan Jóhannsson orðaði það.“ — Þetta var um heimild til lántöku til handa Framleiðsluráði. — „Hér er verið að greiða úr máli sem er m. a. erfðasynd frá þessum hv. þm. þegar hann var ráðh. Það er nauðsynlegt, að áður en ný stefna tekur að verka í landbúnaði sé búið að gera nokkurn veginn hreint borð miðað við það ástand sem nú ríkir.“

Væntanlega hefur ráðh. tekist að gera borðið hreint fyrir 23. júní s. l., þegar stefna hans fór að verka hér í landbúnaði. En það er ýmislegt fleira sem er athyglisvert í þessu sambandi og hefur komið fram hjá hæstv. ráðh. Minnast menn þá væntanlega þeirrar ræðu sem hann flutti við setningu Búnaðarþings árið 1980 og kom hér þó nokkuð til umr. á Alþingi. Þar sagði hæstv. ráðh. svo, með leyfi forseta:

„Því miður eru horfur þær á þessu verðlagsári, að miklar fjárhæðir skorti til þess að útflutningsbótafé dugi svo fullri verðtryggingu verði náð. Í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. segir svo um þetta efni: „Leitað verði samkomulags um viðunandi lausn á fyrirsjáanlegum vanda vegna halla á útflutningi búvara á þessu verðlagsári í tengslum við heildarstefnumörkun í landbúnaði.““

Nú hefur hæstv. ríkisstj. bráðum setið tvö þing, afgreitt tvenn fjárlög og hefur þannig komist hálfa leið í sínum starfsferli í raun á þessu kjörtímabili. Því er augljóst hvað hæstv. ráðh. hefur átt við með þessum orðum. Það þurfti að gera borðið hreint og síðan átti að leysa vandamálin með heildarstefnumótun í landbúnaði. Þetta skýrist enn þá betur þegar lítið er á þá ræðu sem hæstv. ráðh. flutti á aðalfundi Stéttarsambands bænda. Ég vitna orðrétt í frásögn af fundinum. Þar segir svo:

„Á aðalfundi Stéttarsambands bænda, sem haldinn var á Kirkjubæjarklaustri um mánaðamótin ágúst-sept. s. l., gerði hæstv. landbrh. grein fyrir þessum brbl. Hann greindi frá því, að lögin hefðu verið sett að tillögu stefnumörkunarnefndar, sem hann nefndi svo“ — en í henni eiga sæti eða áttu sæti: Egill Bjarnason ráðunautur, Helgi Seljan. hinn virðulegi forseti þessarar deildar, og Hákon Sigurgrímsson framkvæmdastjóri. Brbl. voru sem sagt sett að tillögu stefnumörkunarnefndar hæstv. landbrh. Ég man ekki til að það hafi sést annað frá þeirri stefnumörkunarnefnd. Ef framhaldið yrði eftir upphafinu held ég að bótin sé að svo verði ekki. En þetta tengir þann þráð allan saman, að hér er um að ræða ákveðna stefnu í landbúnaði sem er ólík fyrri stefnu í þeim málum. Það verður ekki annað séð en að hún miðist við að koma framleiðslunni niður fyrir neysluþarfir. Þá sjá allir í hvað er stefnt.

Það er þannig kannske ekki nein tilviljun þótt hv. þm. Árni Gunnarsson, sem deildi manna mest á hæstv. landbrh. fyrir stefnuleysi í landbúnaðarmálum á s. l. vetri, skili nú áliti með stjórnarsinnum í þessu máli. Þar virðist Alþfl. hafa hitt þá stefnu sem honum hefur hentað. Kannske gefur nokkuð auga leið, miðað við afstöðu þess flokks til landbúnaðarmála á undanförnum árum, hver stefna núv. ríkisstj. er í landbúnaðarmálum.

Það hefur líka komið glögglega fram, að formaður Framsfl., hvar sem hann kann að vera staddur í heiminum um þessar mundir, telur að sú stefna, sem hæstv. núv. landbrh. fylgir, sé í beinu framhaldi af þeirri stefnu sem hann mótaði þegar hann var landbrh. í ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar. Menn vita væntanlega að sú stefna, sem hann mótaði þar, var nokkuð á annan veg en stefna fyrirrennara hans og flokksbróður, Halldórs E. Sigurðssonar. Þar var með breytingu á jarðræktarlögunum skertur jarðabótastyrkurinn til að draga úr umbótum í ræktun og uppbyggingu í sveitum landsins, lán hjá Stofnlánadeild landbúnaðarins voru verðtryggð, sem ekki hafði verið áður, og sá hæstv. ráðh. gat þess, að það ætti að fella niður útflutningsbótatrygginguna í áföngum á fimm árum. Sjá allir hvað felst í rauninni í þessari stefnu. Það átti að framleiða landbúnaðarvörur fyrir innlendan markað, en bæta svo við erlendis frá þegar það dygði ekki. Nú hefur formaður Framsfl. lýst yfir í áheyrn allrar íslensku þjóðarinnar að það væri haldið uppi fána hans í landbúnaðarmálum af eftirmanni hans, núv. hæstv. landbrh.

Þannig verður ekki séð annað en að komin sé nokkuð sterk fylking fyrir þessa stefnu, sem var upp tekin í ráðherratíð Steingríms Hermannssonar, hæstv. núv. sjútvrh., þar sem Alþfl. skrifar nú undir stefnumarkandi álit hér á Alþingi og allir vita að Alþb. er sama sinnis.

Afstaða Sjálfstfl. hefur hins vegar ekki breyst. Nú vil ég biðja hæstv. landbrh. að fylgjast með því að það er orðið stutt eftir af ræðu minni. Ég vil endilega að hann heyri það og viti að stefna Sjálfstfl. í landbúnaðarmálum hefur ekki breyst á tveimur síðustu árum. Það er satt að segja ákaflega mikilvægt að bæði menn og flokkar séu sjálfum sér samkvæmir. Ég met það t. d. mikið við hv. 5. þm. Vesturl. að hann hefur óbreyttar skoðanir í landbúnaðarmálum. Ég hef orðið þess mjög var í samstarfi við þann heiðursmann nú í vetur að hann er nokkuð staðfastur í skoðunum. Þetta tel ég mikinn kost í samskiptum á milli manna því það er ekkert við það að athuga þó að menn séu ekki á sama máli. Þetta er óbreytt varðandi Sjálfstfl. frá því sem var fyrir tveimur árum, en þá lýsti talsmaður Sjálfstfl. afstöðu sinni fyrir hönd hans í Nd. Alþingis við umr. um þessi mál þar. Það skiptir að sjálfsögðu engu máli hvað maðurinn heitir. Það er talað í nafni ákveðins flokks og stefnan er óbreytt. Það þarf kannske ekki að taka það fram, að sá talsmaður var núv. hæstv. landbrh. Ég held að þeirri stefnu, sem var mótuð af þáv. landbrh., hafi aldrei verið lýst jafnvel og í jafnstuttu máli og þá var gert, en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Þetta er mjög hættuleg leið“ þá er hann sérstaklega að tala um flatan kjarnfóðursskatt — „sem á þó sínar röksemdir og þarf mikillar athugunar við. Við vitum að afkoma bændastéttarinnar er mjög misjöfn. Í röðum bænda eru margir, sem betur fer, sem búa við ágæta afkomu og hafa sæmilega rekstrarfjárstöðu. En þeir eru kannske jafnmargir sem búa við bága afkomu og mjög þrönga rekstrarfjárstöðu. Skattlagning af þessu tagi mundi fyrst og fremst koma niður á þessum mönnum. E. t. v. væri þetta liður í því að skipuleggja fátækt meðal bænda á Íslandi.“

Ég lýk hér tilvitnun, herra forseti, ég held að það leiki ekki vafi á að hér er mælt af miklu viti. Stefnan, sem var upp tekin, var sannarlega ámælisverð fyrst og fremst fyrir þær sakir að hún fól í sér skipulegt átak til að gera bændurna á þessu landi fátækari, eins og svo spaklega var komist að orði um fyrir tveimur árum.