08.05.1981
Neðri deild: 90. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4154 í B-deild Alþingistíðinda. (4283)

297. mál, tilraunastöð Búnaðarsambands Suðurlands

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Ég vil byrja á því að leyfa mér að taka undir margt af því sem hv. 1. landsk. þm. sagði áðan um hversu óvarlega er oft farið með fjármuni og skattpeninga borgaranna. Þar mætti auðvitað á flestum sviðum fara miklu betur með og kannske ekki síður í sambandi við mörg mál sem við erum að afgreiða hér af öllu tagi, alls konar þáltill. sem lagðar eru hér fram í því skyni að óska eftir að þetta og hitt verði rannsakað, kannað og gert, sem kostar gífurlega fjármuni og kemur sjaldnast mikið út úr og allt þar fram eftir götunum.

Hitt er annað mál, að jafnvel þó að ég sé sammála hv. þm. um, að við þurfum að gæta vel fjármunanna og leggja beri áherslu á að þeir nýtist sem best á öllum sviðum, tel ég að þessi aths. sé kannske síst til þess fallin að koma einmitt fram í umr. í tengslum við þetta mál. Þessi tilraunastöð í nautgriparækt, þar sem hefur farið fram ýmiss konar starfsemi önnur að vísu, sæðingastöð, kynbætur, fóðurrannsóknir, beitarrannsóknir o. fl., hefur nefnilega verið rekin af miklum myndarskap af Búnaðarsambandi Suðurlands og ríkið hefur ekki þurft að leggja fjármuni til rekstrar þess fyrirtækis. Um það hafa bændur í Búnaðarsambandi Suðurlands séð sjálfir, og færi betur ef hægt væri að segja það sama um aðrar stofnanir af svipuðu tagi í landinu. Þessi stöð hefur sem sagt verið rekin af óvenjumiklum myndarskap hér syðra.

Herra forseti. Ég ætlaði aðeins að leyfa mér að koma hér til að láta þetta koma fram. Það er hins vegar alveg ljóst að þær aðstæður eru komnar upp sem verða til þess, að Tilraunastöðina getur ekki haldið áfram starfsemi sinni þar sem hún hefur verið. Hún á ekki það land og eigandinn, sem er fyrirtæki í samvinnuhreyfingunni, býður afarkjör á jörðinni. Þess vegna telja þessir menn að þeir þurfi að flytja þaðan á sína jörð sem er má segja næsti bær við þannig að ekki er um stórkostlega flutninga að ræða. Auðvitað kostar nokkra fjármuni að byggja hús undir þessa starfsemi, en húsin, sem fyrir eru á jörðinni Laugardælum, eru orðin gömul og hafa sinnt sínu hlutverki og eru auðvitað að fullu afskrifuð fyrir löngu, yfir 30 ára gömul hús. Ég held að það sé því ekki ástæða til að sjá eftir þeim fjármunum þó að það kunni að kosta nokkuð að reisa hús undir þessa starfsemi á þeim stað sem stöðin fer á nú.

Herra forseti. Það er sameiginlegt álit okkar allra þm. Suðurl. að leggja áherslu á að þetta mál fái jákvæða afgreiðslu hér í þinginu.