08.05.1981
Neðri deild: 90. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4159 í B-deild Alþingistíðinda. (4297)

174. mál, fiskveiðilandhelgi Íslands

Skúli Alexandersson:

Herra forseti. Ég skal ekki eyða miklum tíma þingsins í það sem ég vildi segja hér, en ég vil taka undir ósk hv. þm. Jósefs H. Þorgeirssonar um að forseti endurskoði úrskurð sinn, þetta mál verði ekki tekið fyrir í dag, og taka undir rök þessa hv. þm. þar að lútandi. Einnig óska ég eftir að komi fram mótmæli við því a. m. k., að við, sem nú óskum eftir að þessu máli verði frestað, höfum staðið að því að fresta þessu máli fram á þennan tíma og þm. úr þeim hóp hafi verið að plata hæstv. forseta svo að þetta mál kæmist ekki til umr. fram að þessum tíma. Einnig vil ég mótmæla því, að hæstv. forseti hefur gert lítið úr nál. hv. 6. landsk. þm. um þetta mál. Ég geri ráð fyrir að nál. hans hafi verið eins stutt og raun ber vitni vegna þess að hann hafi ætlað að flytja mál sitt hér í hv. deild og, eins og þm. Jósef Þorgeirsson benti á, sjálfsagt þurft að leggja hér fram ákveðnar spurningar og ræða málið þar betur.