08.05.1981
Neðri deild: 90. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4176 í B-deild Alþingistíðinda. (4304)

174. mál, fiskveiðilandhelgi Íslands

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra torseti. Aðeins nokkur orð. Þetta mál er búið að hljóta hér allmikla umræðu og ég hygg að helstu rök með og móti hafi þegar komið fram og óþarfi sé því að vera að teygja mikið úr málum.

Ég vil þó leggja áherslu á að í grg. með þessu frv segir: „Ráðuneytið getur síðan bundið úthlutun leyfa þeim skilyrðum, sem þurfa þykir t. d. um leyfilegt hámark annars afla en skarkola. Veiðarnar yrðu undir ströngu eftirliti og gæti rn. fyrirvaralaust svipt leyfishafa leyfum brjóti þeir gegn ákvæðum leyfisbréfa, enn fremur stöðvað veiðar á ákveðnum svæðum eða allar veiðar, ef ástæða þætti til.“ Síðan er ítarlega rakið að þetta sé undir stjórn og eftirliti Hafrannsóknastofnunar. Fram hefur komið í mjög ítarlegri og góðri ræðu hv. 1. landsk. þm., Péturs Sigurðssonar, að þetta sé eingöngu heimilað í hluta Faxaflóa og það örlitlu broti af honum, en í 9/10 flóans eru þessar veiðar algjörlega bannaðar. Einnig hefur komið fram að ekki sé lögð á það áhersla af sölusamtökum að þessar skarkolaveiðar séu auknar. Það kom vel og skýrt fram hjá hv. 1. landsk. þm. að við stæðum frammi fyrir þeim vanda, að ýmsir fiskstofnar okkar væru í hámarksnýtingu eða jafnvel þar yfir. Álit fiskifræðinga er hins vegar að þessi fisktegund, skarkolinn, sé vannýtt. Umsögn þess fiskifræðings, sem hefur rannsakað þessi mál vísindalega í langan tíma, er sú, að það sé með öllu hættulaust og beri að leggja áherslu á að nýta þessa fisktegund betur, hún deyi sennilega úr elli í Faxaflóa.

Það hefur verið dregið í efa að sölusamtök leggi áherslu á að þessar veiðar séu efldar. Ég hef kynnt mér þetta hér á Reykjavíkursvæðinu. Eitt stærsta og vandaðasta frystihús í Reykjavík, Ísbjörninn, er með fullkomnar vélar af þessu tagi. Þar er útkoman sú, að þetta er sú vinnsla sem skilar langsamlega bestum arði. Arðurinn er bestur af þeirri fisktegund sem fiskifræðingar segja að sé vannýtt. Og hvernig er ástandið á Reykjavíkursvæði þegar við horfum til sumars? Ástandið er þannig vegna breytinga á verðlagi á hinum ýmsu fiskmörkuðum á þessari vertíð og verður örugglega fram eftir sumri að lögð hefur verið meiri áhersla á saltfisk og skreið en frystingu. Þetta þýðir að það er veruleg hætta á að það verði lítil vinna fyrir ungt fólk í sumar á Reykjavíkursvæðinu. Það veitir sennilega vinnu fyrir á annað hundrað manns á Reykjavíkursvæðinu í sumar ef þessi arðvænlega vinnsla fengi að eiga sér stað og það að ráðleggingu fiskifræðinga. Upplýsingar, sem ég hef aflað mér einnig, eru á þá leið, að fyrir utan að verðlag sé hærra á flökuðum skarkola en heilfrystum sé 15% tollur hjá Efnahagsbandalaginu á heilfrystum kola, en enginn á flökum. Þetta bætist við. Jafnframt eru þær upplýsingar að engin fisktegund standi jafnstutt við í frystihúsi vegna þess að markaðirnir gleypi samstundis við þessum fiski. Hætta er sem sé á að þröngt verði um vinnu, að vegna breyttra atvinnuhátta við fiskvinnslu verði þröngt á vinnumarkaði fyrir ungt fólk í Reykjavík og á Suðurnesjum. Fiskverkendur þar hafa aftur á móti haft framsýni til að tryggja sér vélar til flökunar á kola.

Það er verið að álasa stjórnmálamönnum og ráðherrum fyrir að þeir fari ekki eftir ábendingum fiskifræðinga og þeir hundsi þær og það sé aldrei of varlega farið. Hver ráðh. á fætur öðrum hefur verið átalinn fyrir þetta. En nú er farið eftir meðmælum fiskifræðinga. Það má vel vera að Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna — ég veit ekki af hverju það er — ráðleggi ekki þeim á Snæfellsnesi eða einhvers staðar annars staðar að kaupa vélar til kolaflökunar. En eitt er víst, að þessi framleiðsla rennur út í þeim frystihúsum sem hafa tæki til vinnslunnar. Þetta er arðvænlegasta hráefnið sem unnið er í frystihúsum sem stendur og tryggir stórum hóp fólks atvinnu, sér í lagi skólafólks, sem ella mundi ekki hafa atvinnu.

Ég þarf ekki að endurtaka það, því að ég held það hafi komið ákaflega skýrt fram í ræðu hv. þm. Pétur Sigurðssonar áðan rökin fyrir þessu. Og ég sé enga ástæðu til að hundsa álit fiskifræðinga í þessum efnum eða gera lítið úr þeim varnöglum sem slegnir eru við misnotkun. Ég sé enga ástæðu til að meina frystihúsum að vinna skarkolann þar sem þetta er arðvænlegasta vinnslan. Og ég sé enga ástæðu til að koma á atvinnuleysi í Reykjavík þó svo að það sé hægt að vitna í eldri reynslu sem ekki hefur verið háð neitt svipað því jafnstífu eftirliti og vísindalegu og hér ætti að liggja fyrir að verður beitt. Sem þm. Reykv. styð ég þetta frv. af heilum hug og mun greiða því atkvæði.