11.05.1981
Sameinað þing: 82. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4181 í B-deild Alþingistíðinda. (4320)
Rannsókn kjörbréfs - varamenn taka þingsæti
Forseti (Jón Helgason):
Mér hefur borist eftirfarandi bréf:
„Reykjavík, 8. maí 1981.
Pétur Sigurðsson, 1. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Sigurlaug Bjarnadóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.
Sverrir Hermannsson, forseti Nd.“
Sigurlaug Bjarnadóttir hefur áður átt sæti á þessu Alþingi og býð ég hana velkomna til starfa.
Þá hefur mér borist annað bréf:
„Reykjavík, 8. maí 1981.
Ingólfur Guðnason, 5. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Framsfl, í Norðurlandskjördæmi vestra, Jón Ingi Ingvarsson rafvirkjameistari, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Sverrir Hermannsson, forseti Nd.“
Hér fylgir enn fremur skeyti frá Boga Sigurbjörnssyni skattstjóra á Siglufirði og kjörbréf Jóns Inga Ingvarssonar sem þarf að fara fram rannsókn á. Verður gefið fundarhlé á meðan kjörbréfanefnd athugar kjörbréfið. — [Fundarhlé.]