12.05.1981
Efri deild: 96. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4229 í B-deild Alþingistíðinda. (4331)
305. mál, grunnskólar
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á l. nr. 63 1974, um grunnskóla. Þetta frv. var lagt fyrir Nd. og hefur fengið þar afgreiðslu og er nú til 1. umr. hér í þessari hv. deild. Þetta frv, fjallar um að stefnt skuli að því að ákvæði grunnskólalaganna um níunda ár skólaskyldu komi til framkvæmda samtímis á landinu öllu, eins og hér segir, átta árum eftir gildistöku laganna. Þessi breyting er í því fólgin, að í stað þess, sem stóð upphaflega í lögunum: „sex árum“ — stendur nú: átta árum. Þessu var reyndar breytt í fyrra í sjö ár, og rökin fyrir því, að lagt er til að breyta þessu, eru þau sömu og þá, að það eru ýmsir annmarkar á því að láta lögin taka að fullu gildi hvað þetta snertir, þ. e. framkvæma að fullu níunda ár skólaskyldunnar.
Ég vil nefna m. a. í þessu sambandi að vonir hafa staðið til þess að löggjöf um framhaldsskólastig yrði afgreidd svo að segja á hverju þinginu á eftir öðru þó að það hafi sífelldlega dregist. Það mun dragast enn þó að í vetur hafi að vísu verið unnið allmikið í þeim málum og að mínum dómi sjái fyrir endann á því máli að vissu leyti vegna þess að náðst hefur þokkaleg samstaða milli ríkis og sveitarfélaga um afgreiðslu málsins þó að sú samstaða hafi ekki náðst fyrr en komið var nokkuð langt fram á þetta þingár og því ekki möguleikar á því að leggja málið fyrir, en að því stefnt að svo verði á næsta þingi.
En það, sem ég vil ekki síður leggja áherslu á í sambandi við þetta mál, er að það er naumast hægt að segja að skólakerfið sé við því búið að framkvæma níu ára skólaskylduna að fullu. Það eru ýmsar hindranir þar í veginum. M. a. má segja að það sé mjög örðugt vegna stöðu Námsgagnastofnunar sem á við fjárhagserfiðleika að etja og er ekki við því búin að láta í té nægilega mikið af skólagögnum sem til þess þarf að þetta komist að fullu til framkvæmda. En ég vil þó leggja hvað mesta áherslu á það atriði sem ég nefni nú síðast, og það er að það hefur verið og er enn talsvert mikill ágreiningur um hvort lögfesta skuli eða framkvæma skólaskylduna með þeim hætti sem gert var ráð fyrir við setningu grunnskólalaganna. Það er ágreiningur enn uppi um þetta og endurskoðunarnefnd, sem hafði með að gera endurskoðun á grunnskólalögunum og hefur nú skilað áliti sem verður tekið til umræðu í sumar, sú nefnd varð ekki á eitt sátt um það, hvort leggja ætti til yfirleitt að skólaskyldan væri ákveðin níu ár eða átta.
En sem sagt, þetta mál er lagt fram með svipuðum hætti og á síðasta þingi og stefnir að því að fresta um ár þessu lagaákvæði um níunda skólaskylduárið. Og eins og ég segi hefur málið fengið meðferð í Nd. og er hingað komið í sama búningi og það var lagt fram.
Ég legg til, herra forseti, að eftir að þessari umr. lýkur verði málinu vísað til 2. umr. og hv. menntmn., en það er von mín að takast megi að afgreiða þetta mál áður en þingi lýkur nú í vor.