12.05.1981
Efri deild: 96. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4231 í B-deild Alþingistíðinda. (4334)
203. mál, veiting ríkisborgararéttar
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Afturkölluð er fyrri brtt. við 2. gr. frv., en fram lögð ný, járnbent nú með sérfræðilegri stoð frá ráðuneytisstjóra og með auknum stuðningi Eyjólfs Konráðs Jónssonar. Annars erum það við hin sömu sem að till. stöndum sem hinni fyrri. Till. er á þessa lund, að 2. gr. orðist svo:
„Nú fær maður, sem heitir erlendu nafni, íslenskt ríkisfang með lögum og skulu þá börn hans fædd síðan heita íslenskum nöfnum samkvæmt lögum um mannanöfn. En hann skal, þá er hann hlýtur íslenskt ríkisfang, taka sér íslenskt eiginnafn — ásamt því sem hann ber fyrir — er börn hans taki sem kenningarnafn. Honum skal þó heimilt, ef hann kýs heldur, að breyta svo eiginnafni sínu að það fullnægi kröfum laga um mannanöfn.“
Ég hirði ekki að endurtaka fyrri rök fyrir hinni upprunalegu till., en vil aðeins skýra breytinguna sem felst í þessari till. sem nú er komin í stað hennar.
Með orðanna hljóðan í þessari brtt. er hinum erlenda ríkisborgara heimilað að halda nöfnum sínum, skírnarnafni sínu eða nöfnum, hvort þau eru fleiri eða færri, en honum er ætlað auk þess að velja sér sjálfur íslenskt nafn, sem uppfylli skilyrði í lögum, til þess að börn hans geti kennt sig við hann með því nafni, við það kenningarnafn, og þá jafnt börn hans, sem hann kann að hafa átt — eða hún — frá því áður en hann hlaut ríkisfangið, sem hin síðari börnin. Þetta þykja okkur flm. sæmileg boð til þess manns, sem við ætlum að taka í þegnrétt í landi okkar, og viljum svo gera enn betur og að því lýtur niðurlag greinarinnar:
„Honum skal þó heimilt, ef hann kýs heldur, að breyta svo eiginnafni sínu að það fullnægi kröfum laga um mannanöfn.“
Svo er um allmarga af útlendingunum, sem sækja hér um ríkisfang, að þeir heita nafni, bera skírnarnafn, þar sem í mjög mörgum tilfellum þarf ekki annað en að víkja við endingu til, þess að úr sé orðið íslenskt nafn.
Ég ætla ekki að orðlengja frekar um þessa till., en vænti þess, að hún hljóti nokkurt fylgi.