12.05.1981
Efri deild: 96. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4246 í B-deild Alþingistíðinda. (4340)
56. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Egill Jónsson:
Herra forseti. Það var á vissan hátt nokkuð athyglisverð ræða sem hæstv. landbrh. flutti áðan. Innihald ræðunnar fól í sér mikla viðurkenningu á þeim röksemdum sem ég flutti fyrr í þessari umr. gegn þessari lagagerð og gegn þeirri stefnu sem nú er í landbúnaði á marga vegu og er — rétt eftir mér haft hjá hæstv. ráðh. – á vissan hátt þvingunarstefna. Það er þess vegna ekki neitt að undra þótt það sé hálfgerður luntur í ráðh. þegar hann verður þess var, að hér er ekki létt að bera á móti.
Ég ræddi efnislega um marga þætti í búvöruframleiðslunni og þróun hennar, og ráðh. sá enga ástæðu til þess að gera þar nokkra einustu aths. við. Þetta tel ég vera mjög mikilvægt.
Varðandi eitt atriði sem ekki snerti sérstaklega það efni sem ég fjallaði um, en hins vegar umr. hafa hér fallið um, þ. e. niðurgreiðslur á búvörum eða rekstrarkostnaði búvara á frumstigi, þá vil ég aðeins láta það koma fram, að ég hef athugað eina þessa skýrslu, aðrar ekki. Það er skýrsla Björns Stefánssonar hagfræðings. Í þeirri skýrslu skýrir hann hver sé ástæðan fyrir því, að fjármagnið nýtist verr með því að greiða niður á frumstigi heldur en á sölustigi. Og ástæðan er m. a. sú, og reyndar trúlega einungis sú, að þegar greitt er niður á frumstigi, t. d. áburður, þá hafa útreikningar miðast við að greiða niður allan áburð, en ekki einvörðungu þann áburð, sem er í verðlagsgrundvellinum. Undir það kemur m. a. sá áburður sem notaður er til landgræðslu, til graskögglaframleiðslu og annarra slíkra nota. En til viðbótar við þetta hafa a. m. k. ýmsir menn, sem þekkingu hafa á landbúnaði, ekki talið að allt áburðarverðið kæmi inn í verðlagsgrundvöllinn. Því er að sjálfsögðu rétt það sem hv. 5. landsk. tilgreinir hér, að á ákveðinn hátt er um vísitöluleik að ræða. En ekki meira um það.
Hæstv. landbrh. sagði að með brbl. hefði einungis verið leitað heimilda. Ég verð að minna hæstv. ráðh. á að það voru heimildir fyrir í lögum, heimildir til þess að leggja á kjarnfóðurgjald. Það, sem hér var breytt, var að það voru teknar upp heimildir til þess að leggja kjarnfóðurgjald á allt kjarnfóður, en voru ekki fyrir hendi áður, það var tilskilið magn sem átti að vera undanþegið kjarnfóðurgjaldi. Og eins var heimildin hækkuð úr 100% í 200%. Nú er í lögum heimild til þess að leggja 100% gjald á kjarnfóður ef bændasamtökin vilja nýta sér það.
Það var hálfgerður undansláttartónn í ræðu hæstv. ráðh. þegar hann fór að fjalla um ummæli mín þar sem ég talaði um veðráttu, um harðan vetur og um kalt vor núna, einmitt það tímabil þegar bændur á Íslandi þurfa hvað mest á kjarnfóðri að halda. Og ráðh. komst svo að orði, að enn nytu bændurnir í þessu landi góðrar uppskeru frá s. l. sumri.
Það var líka athyglisvert, að ráðh. sagði að nú þyrfti ekki lengur að stjórna framleiðslunni, hún væri komin í rétt horf, það þyrfti ekki að halda henni niðri með einhverjum sérstökum þvingunum. Og það er ekki heldur gert. Núna er álagt kjarnfóðurgjald um 33%, og það hefur farið fram athugun á því, hvaða áhrif tiltekin hækkun á kjarnfóðurverði hefði á framlegð í landbúnaði. Ég er hér með skýrslu sem var gerð af starfshópi sem sæti áttu í okkar færustu menn í þessum efnum, og niðurstaða þessarar nefndar var sú, að við 50% hækkun á kjarnfóðri mundi þó ekki draga úr framlegð í landbúnaði nema um 13–18%. Að sjálfsögðu snertir þetta bændur með misjöfnum hætti, en samt sem áður liggur í augum uppi að í því felst hagur að framleiða landbúnaðarvörur með tiltölulega lágu kjarnfóðursgjaldi. Þess vegna er mér enn verr við þetta heldur en ella væri, m. a. vegna þess að þó að kjarnfóðurgjald af þessari stærð hafi e. t. v. einhvern samdrátt í för með sér í fyrstu, þá aðlagast þetta landbúnaðinum og hefur ekki áhrif á notkun kjarnfóðursins nema að litlu leyti.
En það er eitt sem ég hef ákaflega mikið við að athuga í sambandi við ýmsa þætti landbúnaðarmálanna á þessu ári, og ég kannast reyndar ekki við það, af því ég þekki vel til starfsmanna bændasamtakanna, að menn geti ekki metið sams konar aðstæður og voru fyrir einu ári þegar ekki var klaki í jörð í nokkru túni eða nokkrum akri bændanna á þessu landi. Og þegar svo kom að því að íslensk uppskera kom á markað mánuði fyrr en venjulegt er, þá var allt saman fullt af erlendum kartöflum. Og hver var ástæðan fyrir þessu? Ástæðan var sú, að það voru fyrirmæli frá ríkisstj. um að það skyldu vera til nægar erlendar kartöflur á lágu verði meðan verðkönnun færi fram tíu fyrstu daga ágústmánaðar. Skyldi það ekki geta þá verið eitthvað af sama toga þegar menn geta ekki almennilega skilið það nú eða tileinkað sér að við höfum verið að kveðja einn erfiðasta vetur á þessari öld og enn þá er ekki farið að vora að nokkrum mun þótt hásauðburður sé? Og það hélt ég að hæstv. ráðh. vissi vel, einn hæfasti sauðfjárræktarmaður á þessu landi, hvað það gildir að taka á móti lambfé við þessar aðstæður. Það er m. a. af þessari tregðu, sem ég óttast að sé með einum eða öðrum hætti þvinguð upp á bændurna í þessu landi, sem ég er á móti þessum háa kjarnfóðurskatti.
Það væri að sjálfsögðu hægt að tala miklu meira um þessi mál. En það er kannske vert að rifja það aðeins upp, að nú talar ráðh. um að mjólkurframleiðslan megi ekki minnka. Á aðalfundi Osta- og smjörsölunnar komu fram miklar áhyggjur um að það yrði ekki næg framleiðsla til þess að vinna úr þann ost sem við höfum þó aðstöðu til þess að selja með nokkuð eðlilegu verði á erlendan markað. Vegna hvers er þá verið að þvinga þetta áfram niður — eða er einhver önnur meining?
Hæstv. ráðh. vék sérstaklega að tillögugerð okkar sjálfstæðismanna í sambandi við stefnumótun í landbúnaði. Ég get verið honum þakklátur fyrir að hafa lesið þar rétt. En ég verð samt að fara aðeins yfir þetta, rétt til þess að hæstv. ráðh. skilji betur hvað hér er átt við. Hann hefur nú lýst yfir að hann sé höfundur að þessari till. og þar af leiðandi kannske túlkar hann þetta út frá sínu sjónarmiði. En það vill nú svo vel til að það eru í grg. skýringar á till. þannig að hér fer ekkert á milli mála. Þar segir svo í a-lið, með leyfi forseta:
„Heimilt verði að leggja gjald á allt innflutt kjarnfóður, er að upphæð verði svipað og nemur útflutningsbótum á kjarnfóðri frá viðskiptalöndum okkar.“
Það er alveg hárrétt að þetta stendur hér. En útflutningsuppbætur á það kjarnfóður, sem við kaupum inn til landsins, eru alls ekki 33%. Þær hafa farið stöðugt lækkandi frá því í des. s. l. og eru, að því er mér hefur verið tjáð, nánast engar um þessar mundir. Það ætti ekki að þurfa að valda nokkrum einasta misskilningi, eins og ég er reyndar búinn að sýna, sýndi fram á í fyrri hluta þessarar umr., að hér er einvörðungu verið að tala um varnaraðgerð gegn því, að erlent kjarnfóður, erlent vinnuafl verði flutt inn til landsins í samkeppni við okkar fóðurframleiðslu. Hér er ekki verið að tala um stjórnunaraðgerð í sambandi við búvöruframleiðslu í þessu landi. Það er stóra málið. Þetta fjallar um allt annan þátt en stjórnunarþáttinn. Það er aftur b-liðurinn sem fjallar um hann, og þar er lögð á það áhersla, að það verði heimilt að leggja hátt kjarnfóðurgjald á toppinn af kjarnfóðurnotkuninni.
En hér kemur líka meira til og þá m. a. það hvernig þessu kjarnfóðurgjaldi er varið. Það er einmitt einn þáttur í þessari lagagerð og framkvæmd hennar sem hefur snert ákveðinn hluta af bændunum í þessu landi mjög illa og þá m. a. þá bændur sem hafa haft aukabúgreinar, svo sem svín og hænsni, til stuðnings sér í hinum hefðbundna búskap. Og mér hefur verið tjáð að einmitt þessir framleiðendur hafi horfið sem framleiðendur. Þetta verður að sjálfsögðu eitt af því sem landbn. Ed. verður að kanna. Það er óhjákvæmilegt að það verði leitast við að upplýsa hvaða áhrif þessi lagagerð og framkvæmd hennar hefur haft á hag bændanna í þessu landi.
En svo ég skýri þetta með tilvitnun í grg. með þál., með leyfi hæstv. forseta, þá er þar að finna eftirfarandi: „Sé lítið á skiptingu kjarnfóðurs eftir búgreinum má ætla að nálega helmingur þess fari til nautgriparæktar, ca. 1/5 fari til sauðfjárræktar og ca. 30% til annarra búgreina. Augljóst er að kjarnfóðurgjald kemur þannig misjafnlega niður á hinar einstöku búgreinar sem óhjákvæmilega hlýtur að leiða til andstöðu við það innan bændastéttarinnar.“
Og enn fremur segir:
„Þá ber líka að athuga hvernig tekjum af kjarnfóðurgjaldi yrði varið. Sé það ekki talið til kostnaðar við búreksturinn er það orðin bein skattlagning á bændurna í landinu. Þess vegna er lögð á það áhersla, að það fjármagn, sem fæst vegna kjarnfóðurgjalds, verði hagnýtt þannig að leiði til frekari framleiðni í búrekstri, hagkvæmni við innlenda fóðurframleiðslu svo og til þróunarverkefna, allt eftir eðli og möguleikum hverrar búgreinar.“
Nú er það alveg ljóst, að kjarnfóðurgjaldinu hefur alls ekki verið skipt eða skilað með þessum hætti. Kjarnfóðurgjaldið hefur að mestu farið á einn og sama stað. Það hefur ekki farið til niðurgreiðslu á áburði eða annarra slíkra þarfa, sem hefði þó verið langsamlega sanngjarnast. Það hefur farið fyrst og fremst inn í mjólkurverðið. Þessi skattheimta hefur þannig verið notuð sem leið til að færa fjármagn á milli bændanna í þessu landi og á vissan hátt verið notuð sem ákveðin verðjöfnunarleið. Þetta skekkir að sjálfsögðu allan grundvöll á milli hinna einstöku búgreina og er í andstöðu við skoðanir mjög stórs hluta af bændum í þessu landi.
Ég vænti þess, að mér hafi nú tekist að leiðrétta þann misskilning sem gætti í máli hæstv. landbrh. Það, sem ég tilgreindi sérstaklega við fyrri hluta umr., stendur enn þá óhaggað. Það verður líka væntanlega hægt að tala nánar um þessi mál í þessari virðulegu deild því að auðvitað er málið alveg óunnið. Það kemur óunnið frá landbn. Nd. Alþingis nema að því er varðar sérstaklega heimildir til að leggja á slíkan skatt. Sá skattur er skýrður þar, en að öðru leyti sé ég ekki að sá aðili, sá meiri hluti sem leiddi málið þar, hafi lagt mikið á sig til að brjóta þetta mál til mergjar. Menn verða að gera sér það ljóst, að það hlýtur að vera nokkrum erfiðleikum háð fyrir okkur í landbn. Ed. og þessa deild að gera það á einni viku sem landbn. Nd. og reyndar Nd. tókst ekki að fá niðurstöðu um á 146 dögum.