13.05.1981
Efri deild: 97. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4276 í B-deild Alþingistíðinda. (4389)
231. mál, eftirlaun til aldraðra
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Sú breyting, sem hér er lögð til, er þýðingarmikil og er til komin með samningum verkalýðshreyfingarinnar við ríkisvaldið, eins og yfirleitt allar úrbætur sem eiga sér stað í tryggingamálum. Frumkvæðið kemur ekki annars staðar frá. Hitt er annað, að í frv. til l. um þessi mál er kveðið á um að fólk í verkalýðshreyfingunni eigi sjálft að borga þetta úr eigin sjóði. Á það getum við ekki fallist, hvorki Alþfl. né verkalýðshreyfingin og ekki heldur aðrir landsmenn sem ég hef rætt við um þessi mál. Við teljum að ríkissjóður eigi að greiða þetta.
Verkalýðshreyfingin barðist allmikið fyrir því að greiðslum vegna fæðingarorlofs yrði létt af Atvinnuleysistryggingasjóði og átti samleið með Alþb. og Alþfl. í baráttunni fyrir því, að það yrði af tekið. Í samningunum síðustu varð niðurstaðan að aflétta því, en svo er komið aftan að okkur með því að leggja þessar byrðar á sjóðinn í staðinn.
Ég og Salome Þorkelsdóttir höfum ákveðið að leggja til, að sú breyting verði á lagatexta að út verði tekið að þetta skuli borið uppi af Atvinnuleysistryggingasjóði, en í staðinn komi að þessi úrbót skuli borin uppi af ríkissjóði. Hvers vegna skyldum við gera þetta? Hvers vegna skyldi okkur vera svo sárt um að Atvinnuleysistryggingasjóður greiði þetta? Það er vegna þess að greiðslugeta Atvinnuleysistryggingasjóðs er alveg í núlli og hann getur ekki komið til aðstoðar þegar vanda ber að höndum hjá atvinnufyrirtækjum, og er það mikil afturför frá því sem áður var. Áður var þannig að málum staðið að Atvinnuleysistryggingasjóður gat lánað til fyrirtækja væru þau í vanda stödd og atvinnuöryggið væri að bresta, en nú getur hann það ekki nema að mjög litlu leyti.
Það vildi til í gær að það komu til okkar þm. Reykn. forsvarsmenn stórs fyrirtækis á Suðurnesjum. Var okkur tilkynnt að þeir yrðu að loka fyrirtækinu næstu daga fengju þeir ekki fyrirgreiðslu til að halda rekstri áfram. Þetta er fyrirtæki sem hefur 200 manns í vinnu. Fyrst spurðu þeir einmitt um hvort þeir gætu ekki fengið aðstoð úr Atvinnuleysistryggingasjóði, en var auðvitað svarað neitandi því að þar er ekkert til. Ef þetta dæmi hefði komið upp fyrir 10 árum hefðu þeir átt aðgang að Atvinnuleysistryggingasjóði og getað fengið aðstoð til að greiða úr vanda sínum því að sjóðurinn var á margan hátt eins og annar byggðasjóður — annar sjóður til að koma í veg fyrir atvinnuleysi, en það er eitt hlutverkið sem hann hefur.
Við leggjum afskaplega mikla áherslu á að menn samþykki þetta og hjálpi þannig til að varðveita Atvinnuleysistryggingasjóð og varðveita atvinnuöryggið í landinu. Okkur þykir það út í hött, að jafnhliða því sem fæðingarorlof er tekið út úr Atvinnuleysistryggingasjóði séu lagðar á hann jafnþungar byrðar af öðrum toga.