11.11.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 606 í B-deild Alþingistíðinda. (439)

347. mál, flugstöð á Keflavíkurflugvelli

Fyrirspyrjandi (Karl Steinar Guðnason):

Herra forseti. Á undanförnum árum hefur mikið verið rætt og ritað um byggingu nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Ástæðan er vafalaust sú, að mönnum er að verða æ ljósara hve langt er frá því að núverandi flugstöð sinni þeim þörfum sem fyrir hendi eru, bæði hvað varðar aðbúnað farþega og starfsfólks. Þá hefur um áraraðir verið mikill áhugi á því að skilja farþegaflug frá herflugi og öðrum umsvifum varnarliðsins.

Það var í tíð Emils Jónssonar fyrrv. utanrrh. sem umr. um þessi mál hófust í atvöru, en síðan hefur hver utanrrh. á fætur öðrum unnið að þessu máti og látið í ljós vilja sinn við að hrinda mátinu í framkvæmd. Hugmyndir manna um stærð flugstöðvarinnar hafa vissulega breyst, bæði vegna minnkandi umferðar og ýmissa annarra ástæðna. Hins vegar er mér kunnugt um að gert er ráð fyrir að flytja ýmsa starfsemi í fyrirhugaða flugstöðvarbyggingu sem ekki hefur verið sinnt hér á landi. Á ég þar við aðstöðu til að sjá um alla matargerð fyrir þann flugrekstur sem tengdur er Íslandi. Sú aðstaða mun taka mikið rými. Er það mjög af því góða að yfirtaka þá starfsemi, bæði er hún atvinnuskapandi og gjaldeyrisskapandi.

Frá upphafi hafa menn gert ráð fyrir samstarfi Bandaríkjamanna og Íslendinga um byggingu stöðvarinnar og sameiginlega kostnaðarþátttöku. Í frv. að fjárl. er ekki gert ráð fyrir framlagi til flugstöðvarbyggingarinnar. Því væri fróðlegt að vita hvaða leiðir utanrrn. hyggst fara til að tryggja fjármagn vegna kostnaðarþátttöku Íslendinga. Þá væri fróðlegt að vita hvort unnt verður að byrja á flugstöðvarbyggingunni fyrir það fé sem Bandarík almenn hafa samþykkt að verja til framkvæmda. Ég hef kosið að hafa fsp. mína þannig:

Hvað líður undirbúningi að nýrri flugstöðvarbyggingu á Keflavíkurflugvelli? Hvenær er ráðgert að hefja framkvæmdir?

Langt er síðan bæjarstjórnir í Keflavík og Njarðvík vöktu athygli á mikilli mengunarhættu vatnsbóla vegna olíubirgða varnarliðsins. Þeir olíutankar, sem nú eru notaðir, eru sumir hverjir um og yfir 30 ára gamlir og voru byggðir til bráðabirgða. Þessir olíutankar og leiðslur í tengslum við þá hafa einnig staðið mjög fyrir þróun byggðar á umræddu svæði. Því hafa áðurgreindar bæjarstjórnir í áraraðir lagt á það þunga áherslu, að olíutankar þessir og leiðslur verði fjarlægð. Það var fyrst þegar Benedikt Gröndal tók við embætti utanrrh. að farið var að sinna kröfum Suðurnesjamanna í þessum efnum. Skipuð var sérstök nefnd til að fjalla um málið. Þessi nefnd mun hafa unnið hratt og vel og skilaði áliti fyrri nokkrum mánuðum. Í ljós kom að áhyggjur íbúa í Keflavík og Njarðvík voru mjög á rökum reistar. Er fyrirsjáanlegt að ef ekki verður brugðið skjótt við mega íbúar á umræddu svæði búast við því, að vatnsbólin mengist af olíu, og ekki þarf að fara mörgum orðum um hvaða afleiðingar það hefur.

Olíutankanefndin gerði tillögu um byggingu nýrrar olíubirgðastöðvar í Helguvík. Jafnframt er ljóst að varnarliðið mun byggja þessa olíubirgðastöð, enda atfarið á þess vegum. Mér hefur gefist kostur á að lesa umrædda skýrslu olíunefndar, en vart getur sú skýrsla verið trúnaðarmál lengur því að eitt stjórnarblaðanna hefur rætt þetta mál ítarlega, reyndar haft uppi rangfærslur, og má skilja að alveg sé sama þótt vatnsbólið þarna mengist. Þá vek ég athygli á því, að í skýrslunni er tekið fram að íslensku olíufélögin hafi hafnað því að fá aðstöðu í hinni nýju olíubirgðastöð, en að mínu mati og annarra Suðurnesjamanna væri sú aðstaða olíufélögunum afar mikils virði. Má í því sambandi geta þess, að allt flugvélaeldsneyti, sem notað er á Keflavikurflugvelli, er flutt eftir Keflavíkurveginum frá Reykjavík, sem auðvitað veldur slysahættu og óþarfasliti á vegi. Legg ég áherslu á að á Keflavíkurflugvelli. 608 aðild olíufélaganna að nýju birgðastöðinni verði athuguð nánar.

Í Keflavík og Njarðvík er mikill áhugi á því að núverandi olíutankar og leiðslur verði fjarlægð, bæði vegna mengunarmáta og skipulagsmála. Í sumar gerðu bæjarráð Keflavíkur og Njarðvíkur svo hljóðandi samþykkt, ef ég má lesa hana, með leyfi forseta:

„Sameiginlegur fundur bæjarráða Keflavíkur og Njarðvíkur haldinn fimmtudaginn 31. júlí 1980, fagnar þeirri ákvörðun utanrrh. að hefja undirbúning við olíuuppskipunarhöfn í Helguvík, jafnframt því sem fundurinn lýsir ánægju sinni með mikil og góð störf nefndar sem vann að undirbúningi málsins. Bæjarráðin benda á, að tillögur nefndarinnar eru í meginatriðum í samræmi við óskir og ályktanir bæjarfélaganna, sem árum saman hafa farið fram á úrbætur í þessum málum, og benda í því sambandi á eftirfarandi samþykkt bæjarráðanna frá 20. maí 1978.

Á undanförnum árum hafa farið fram umræður og kannanir á milli Keflavíkurbæjar og Njarðvíkurbæjar og varnarmálanefndar um möguleika á að eldsneytisleiðslur varnarliðsins frá Keflavíkurhöfn að Keflavíkurflugvelli verði fluttar, með tilliti til þess að leiðslurnar standi í vegi fyrir skipulagi hafnarsvæðisins í Keflavík og íbúasvæðis í Njarðvík. Á. s.l. ári skemmdist olíuuppskipunarbryggja í keflavíkurhöfn í óveðri og í framhaldi af því var óskað eftir því af stjórn Landshafnar Keflavíkur og Njarðvíkur að ákvörðun yrði tekin um framhald uppskipunar á eldsneyti í höfninni. Bæjarráð Keflavíkur og Njarðvíkur hafa leitað umsagnar nokkurra ríkisstofnana um málið. Fram kemur í þeirra áliti að nauðsynlegt sé að kanna aðrar leiðir til uppskipunar á eldsneyti, og er bent á tvo valkosti: Helguvík og Innri-Njarðvík. Bæjarráðin eru sammála um að leggja til við samstarfsnefnd um skipulagsmál að hún láti gera ítarlega könnun á því, hvort fært sé að gera í Helguvík uppskipunarhöfn fyrir eldsneyti, og að upp af víkinni, á berginu, verði útbúið tankasvæði fyrir allt eldsneyti sem um er rætt. Nefndinni verði falið að flýta þessu verkefni og taka það sérstaklega til meðferðar, svo að unnt verði að taka sem fyrst ákvörðun um framtíðarstað fyrir uppskipun og geymslu eldsneytis á svæðinu.“

Það má ætla að þetta mál hafi verið rætt í ríkisstj., enda ekki lítið mál. Því hef ég kosið að hafa seinni fsp. þannig: Hefur ríkisstj. tekið afstöðu til byggingar olíutanka í Helguvík? Ef svo er, hvenær hefjast framkvæmdir?