13.05.1981
Neðri deild: 93. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4321 í B-deild Alþingistíðinda. (4413)

320. mál, raforkuver

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Það hefur aðeins lítillega verið vikið að vinnubrögðum af hálfu hæstv. ríkisstj. í máli þessu og hef ég svo sem ekki löngu máli við það að bæta. En eftir að menn hafa um langa hríð átt von á að lagt yrði fram á hinu háa Alþingi stefnumótandi frv. til l. um þær stórráðagerðir, sem hafa verið uppi í þessum málum, verður að játa að nú eftir dúk og disk, að kalla má í lok þessa þings, veldur það stórkostlegum vonbrigðum að ekki gefist betri tími til að meðhöndla þetta mikla mál en nú bersýnilega blasir við að verður til ráðstöfunar ef ætlunin er að afgreiða þetta mál fyrir þinglok. Á hinn bóginn er á það lítandi, að það skiptir engu máli, nákvæmlega engu máli, hvort þetta mál verður afgreitt áður en þingi þessu lýkur eða ekki, — þessi mikla bók, fyrir utan ýmis gögn sem frv. fylgja, sem maður hefur að vísu kynnst áður mjög mörgum. Það skiptir engu máli hvort þetta mál nær fram að ganga eða ekki fyrir þinglok. Ríkisstj. hefði rétt eins vel getað birt um það tilkynningu að hún væri nú að vinna að þessum virkjunarkostum, sem menn hafa haft í takinu lengi og velt fyrir sér, eins og að bera það fram í því sem hún kallar hér heimildarlagaformi, enda er ráð fyrir því gert að áður en verði teknar ákvarðanir komi þetta til kasta Alþingis aftur. Hún gæti nú fengið lántökuheimildir, en annað segir sig sjálft að getur ekki orðið til trafala framgangi málsins.

Ég þykist hafa klifað á því um alllanga hríð að tveir málaflokkar, orkumál og samgöngumál, væru þeir málaflokkar sem einna arðvænlegast væri að leggja stórt undir í framkvæmdum. En það vill svo til að um alllanga hríð höfum við átt á að skipa í röðum framkvæmdavaldsmanna þeim mönnum, sem greinilega skortir allan stórhug og áræði til átaka sem um munar í þeim efnum.

Nú er flutt hér heimildarlagafrv. um virkjunarmál. Á því er ekkert að græða varðandi virkjunarkosti sjálfa. En ræða hæstv. iðnrh. og allur málflutningur, sem fylgir þessu frv., flytur okkur heim stórkostleg ný tíðindi, — tíðindi sem við höfum að vísu haft nasasjón af, en ekki þreifað á með þeim hætti sem nú ber raun vitni. Og það eru þau tíðindi, að snarbreytt hafi verið um frá því sérstaklega sem var uppi á sjöunda áratugnum um stefnu í iðnaðar- og orkumálum þessa lands. Það fór ekkert milli mála að núv. hæstv. ríkisstj., og því hefur hæstv. orkuráðh. og hans flokkur ráðið, hefur breytt út frá þeirri stefnu, öllu heldur tekið upp þá stefnu að hafna með öllu að kalla má að ráðist verið til stóriðju eða að við semjum um orkusölu til orkufrekra kaupenda. Ég þarf ekkert að vísa í löngu máli til þess máli mínu til sönnunar að ég hlýt hér að fara með rétt mál. Það gátu menn heyrt af máli hæstv. orkuráðh. og enn fremur lesið í þessum plöggum hér. Það er alveg ljóst að þessi stefna gengur alveg þvert á þá stefnu sem mörkuð hefur verið með frv.-flutningi af hálfu sjálfstæðismanna hér á hinu háa Alþingi og raunar Alþfl. líka.

Hér hygg ég að þeir, sem eru annarrar skoðunar, hljóti að reyna að stinga harkalega við fótum, og ég held að á þann veg verði að halda á þessu máli að fáist hið bráðasta úr því skorið hvort meiri hl. er í núverandi stjórnarliði fyrir þessari nýju stefnu, þessari grundvallarbreytingu á þeirri stefnu sem menn hafa byggt á vonir sínar um að við getum byggt upp lífskjörin í þessu þjóðfélagi. Alveg sérstaklega hlýtur það að knýja menn til að stinga harkalega við fótum undireins að manni heyrist að hér fari ekki allt stjórnarliðið saman í einum flokki. Ég gat ekki annað merkt af ræðu hv. 6. þm. Suðurl. sem hann hélt áðan. Það er orðið gerbreytt frá því sem við höfðum gerst til þekkt hjá okkar flokksmönnum sem styðja núv. hæstv. ríkisstj. ef þessi stefna hefur orðið ofan á til langframa. Á það hljótum við að verða að reyna undireins.

Ég hyggst ekki flytja langa ræðu og ryðja frá mér tölum, samanburðartölum og þeim upplýsingum, sem máli skipta, sem hér liggja fyrir okkur eða hafa legið fyrir okkur á undanförnum misserum og árum um þessi mikilvægu mál. Það er rétt sem fram hefur komið, að alltaf eru að bætast nýjar og nýjar við. En ég tek það líka fram, að ég er ekki frummælandi þess að krefjast röðunar um framkvæmdir, öðru nær, og vísa til þess frv. sem ég stend að og flutt hefur verið í hv. Ed. þar sem ekki er um röðun að tefla, heldur lagt til í lagafrv.-formi að ráðist verði í allar þrjár stórvirkjanirnar sem umtalaðar hafa verið. Það hefur ekki verið gagnrýnt af sjálfstæðismönnum að ekki finnst röðun í þessu ómerkilega plaggi sem nú hefur verið lagt fram og kallað er frv. til l. um raforkuver. Við sjálfstæðismenn álítum hins vegar, að við þurfum að leggja það stórt undir í þessum sökum að á næstu 10 á~rum sé það ráðið að ráðast í allar þessar þrjár virkjanir, og teljum að með því sé ekki verið að leggja meira undir en menn hafa gert ef t. a. m. er tekið árabilið 1960–1970. Þess vegna er það að ég hef enga gagnrýni fram að færa um að ekki skuli finnast röðun í þessari frv.-ómynd.

Það fór þó ekki hjá því, er ég lagði hlustir við því sem hæstv. landbrh. hafði hér fram að færa, að nokkuð sveigði hann til þess, hvort sem það er óskhyggja eða á rökum byggt, að hér væri hægt að lesa út úr þessu frv. röðun á þá vísu að Blönduvirkjun væri þar í fremstu fylkingu. Ekkert skal ég um það dæma. Það mætti þá biðja hæstv. orkuráðh. um ýmsar upplýsingar og nánari skilgreiningu á orðalagi sem verður hér lesið t. a. m. á bls. 6, þar sem segir um verkefnin og undirbúning þeirra að í fyrsta lagi verði hraðað verkhönnun við Blönduvirkjun. Síðan breytist andlagið í næstu setningu: að lokið verði rannsókn vegna Fljótsdalsvirkjunar og hafin verkhönnun. Allt þetta mega menn skilja á sína vísu, en þetta er ekkert aðalmál, enda kemur ekki samkv. þessu til neinna úrslita þessara mála nú og hér. Höfuðviðfangsefnið og vandamálið, sem blasir við okkur, er að ef núv. hæstv. ríkisstj. hefur snúið við blaðinu og ætlar nú einvörðungu að halda sig við hinn almenna innlenda markað um orkuöflun og orkusölu er alveg ljóst mál að okkur nægir að ráðast í eina af þessum virkjunum allt fram undir aldamót, en þá verða hér líka viðhorfin allt önnur en þau sem menn hafa verið að gera sér í hugarlund. Þá mun okkur skila fram á veg með miklu hægara móti en menn hafa leyft sér að gera sér vonir um um langa hríð. Þá er snarbreytt um frá því sem áður virtist vera uppi meðal þjóðarinnar, að hér lægi aðallífstrengur okkar til stórbættra lífskjara í landinu gegnum þessi orkumál okkar, hafandi líka það í huga að við flytjum inn milli 40 og 50% af orkunni sem við neytum, ef má orða það svo. Að vísu er mér ljóst að um langa hríð mun aldrei verða fyrir það tekið af því sem við notum innflutta orku til þeirra hluta sem ekki getur komið raforka eða jarðvarmaorka í staðinn fyrir. Þó kann til þess að draga að vatnsaflsorka okkar eða jarðvarmi verði notum til að framleiða orkugjafa sem mætti nota í skip og bifreiðar eða til annarra þeirra þarfa sem við notum nú innflutt eldsneyti.

Ég batt satt að segja vonir við að hæstv. orkuráðh. mundi hafa einhverja hliðsjón af vilja og samþykktum framámanna í félagsmálum t. a. m. í Austurlandskjördæmi, svo að ég taki ekki dæmin víðar að. Mér datt satt að segja ekki annað í lifandi hug og þess vegna kemur það mér í opna skjöldu, þótt ég hefði að vísu þefað þetta undan sængurhorni, hans skoðanir eða hans þingflokks aðallega, hversu eindregið virðist nú snúist á þá sveif að hverfa frá hugmyndum um að afla orkufreks kaupanda af hálfu okkar Íslendinga. Allt frá upphafi til enda í ræðu hans var þetta höfuðáhersluatriðið. Þá liggur ljóst fyrir, þá liggur á borðinu að með þeirri stefnumörkun, ef hún er orðin ofan á, en ekki verður annað greint af hans máli, hefur hæstv. iðnrh. og orkuráðh. tekið ákvörðun um að ekki skuli í náinni framtíð ráðist í Fljótsdalvirkjun. Það liggur a. m. k á borðinu. Það kom fram í máli hæstv. landbrh. og er öllum vitanlegt að hún stendur ekki að arðsemi neitt nálægt því jafnfætis við Blönduvirkjun nema meginhluti orku hennar verði seldur orkufrekum kaupanda. Þetta er deginum ljósara og öllum vitanlegt. Ef á að stauta sig áfram í þessum mikilsverðu málum með þeim hætti, sem kom fram í ræðu hæstv. ráðh., geta menn séð fyrir sér til hvers leiða muni. Og tal um nauðhyggju í því sambandi er mjög sérkennilegt orðalag, svo að ekki sé meira sagt. Honum er auðvitað sjálfrátt hvað hann ber á borð með sér fyrir kjósendur sína, en ég hafði að ósynju leyft mér að treysta því, af því sem ég þekki viðhorfin til máls þessa í hans kjördæmi, að hann gildraði ekki til þess að fremja pólitískt sjálfsmorð, eins og ég gæti best trúað að slík framhaldsstefna hans gæti þýtt fyrir sjálfan hann.

Ég endurtek það: Úr því verður að fást skorið hið allra fyrsta hvort þessi stefna, sem fram kom í máli hans í stóriðjumálum, sem sker úr um framkvæmdahraða í orkumálunum, er orðin að stefnu núv. hæstv. ríkisstj. því að það gerbreytir öllu viðhorfi okkar við framvindu málanna. Ef á að knýja þetta mál fram með þessum hætti og verður lítið á samþykkt og afgreiðslu þessa frv. sem einhverja undirstrikun og samþykkt við stóriðjustefnu hæstv. ráðh. sé ég engin önnur ráð til en reyna að spyrna við fótum með einhverjum hætti, að það fari þá beinlínis fram umr. með vantrauststillöguflutningi um þessa stefnumótun sem hæstv. orkuráðh. sjálfur ber höfuðábyrgð á, og er mér þó ekki skapfellt að bera slíka vantrauststill. fram við þingfélaga minn úr Austurlandskjördæmi. En mönnum hlýtur að þyngja mjög fyrir brjósti þegar þeir verða áheyrsla að öðru eins afturhaldi, eins makalausu afturhaldi og lýsir sér í þessari afstöðu og kalla það svo íslenska orkustefnu ofan í kaupið. Með framfylgd þeirrar afturhaldsstefnu er Fljótsdalsvirkjun sett til hliðar. Ég hef ekki beðið um að hún yrði sett á oddinn. Ég álít að við þurfum á framgangi allra þessara glæsilegu virkjunarkosta að halda, eins og við enda höfum lagt til í því frv. sem hér liggur fyrir og er til meðferðar í hv. Ed. Alþingis, og ég held að það hljóti að verða ráð að nú verði með öllum ráðum á það knúið hvort hér er ekki meiri hluti fyrir samþykkt þessa frv. Sjálfstfl. Þar með væri loku skotið fyrir afturhaldsjaxlana sem hér eru að bryðja mélin.

Það eru ýmis ráð til þess að menn reyni að knýja á um að það verði sinnt einhverjum fleiri málum en þeim sem hæstv. ríkisstj. þóknast þá og þá að óska eftir afgreiðslu á. Menn hljóta að krefjast einhvers jafnræðis í því, enda þótt menn geri sér grein fyrir að meiri hl. í Alþingi hlýtur að hafa forgang um afgreiðslu mála sinna. En þá er eftir að rannsaka hvort ekki kunni að standa svo á að hér sé löglegur meiri hl. fyrir framgangi þessa máls eins og það er búið í hendur hv. þm. í frv. til l. sem flutt hefur verið um ný orkuver af hálfu sjálfstæðismanna í Ed.

Hæstv. landbrh. gat þess, að það mundi, enda þótt hann orðaði það ekki glapræði, en óráð, að við ákvæðum tímasetningar um stórvirkjanir og þar af leiðandi ættum orku til að selja án þess að á borðinu lægi samningur við orkufreka kaupendur. Ekki hygg ég að menn ætli sem svo, að það rigni niður á borð manna fyrirhafnarlaust aðgengilegum eða girnilegum samningum við orkufreka kaupendur í veröldinni, enda þótt, eins og ég segi, aðstæður snúist á þá sveif að orka okkar verði dýrmætari eftir því sem orkuverð í veröldinni hækkar. Meðan ekkert er aðhafst í því að afla þeirra fáum við auðvitað enga samninga á borð okkar. Þess vegna verður að haldast í hendur að menn ráðist í slíkar virkjanir og að reynt sé að afla orkufreks kaupanda.

Það er alveg rétt, að ef við hefðum virkjað stórt og ættum ekkert víst í þessum efnum gæti það orðið til þess að orkukaupendurnir gætu prúttað við okkur um verð sem um munaði. Það er ekki ráðlegt að vísu. En þegar það liggur fyrir að forsenda virkjunar eins og Fljótsdalsvirkjunar er sala orkunnar, skyldi maður halda að sá, sem veg og vanda ætti að hafa af því, mundi hefjast handa hið allra fyrsta um að sú forsenda gæti orðið að raunveruleika, en ekki, eins og uppi er og Alþb. fær ráðið, að snúið er við blaðinu. En um það verðum við að ganga úr skugga, að hans stefna og hans flokks sé þveröfug við það sem menn hafa haft hér um framkvæmdir, að horfið — verði frá stóriðju að því marki sem mundi t. a. m. nægja okkur til að byggja virkjun á borð við Fljótsdalsvirkjun þar sem við gætum — selt allt að 150 mw. Mér heyrðist hann tala um að hann hefði í hyggju orkufrekan iðnað sem gæti látið sér nægja 400–500 gwst. Heyrði ég það ekki rétt? En Fljótsdalsvirkjun er aftur á móti 1450 gwst., ef ég man rétt, án þess að ég nenni hér að fara að þylja, eins og ég sagði, tölur í heilum fylkingum. Það má þá leiðrétta ef mér hefur skjátlast að því leyti.

En í stað þess að reyna nú að afla orkufreks kaupanda, ef áhugi er á virkjun eins og Fljótsdalsvirkjun, hvað gerir þá hæstv. iðnrh.? Hvaða tilburði hefur hann í frammi? Hann gerir þveröfugt með hegðan sinni, án þess þó að ég ætli að fara að sýkna áliðjuverið. Með hegðan sinni gagnvart þeim viðskiptaaðila okkar er mjög líklegt að hann hafi stórskaðað okkur á þeim mörkuðum þar sem finna mætti orkufreka kaupendur. Og það er ekki bitið úr nálinni með það. Menn hafa haldið því fram í mín eyru að einna hagkvæmast af stóriðjuverum, sem við gætum reist, væri tvöföldun álversins. En ætli það verði ekki bið á því eftir því orðalagi sem Meyer stjórnarformaður þar hafði uppi um íslensk stjórnvöld á aðalfundi þess félags nýlega? Það kynni kannske að verða bið á því að þeir yrðu samningamenn okkar um kaup á frekari orku.

Ég er ekki heldur að tala um að ekki þurfi að breyta þeim forsendum sem gilt hafa í samningum við Alusuisse um orkuverð. En ég er ekki heldur — og legg á það áherslu hér og nú — að halda því fram að við Íslendingar getum ekki átt þessi orkuver ef svo ber undir. Ég er aðeins að minna á það og rifja það upp sem öllum er vitanlegt, að einn er sá þáttur í stóriðjunni sem við getum ekki hjálparlaust ráðið fram úr, og það er endahnúturinn sem ríða þarf á allt málið, það er sala framleiðslunnar. Á þeim mörkuðum ráðum við ekki og komum ekki til með að ráða um ófyrirsjáanlega framtíð. Það er sala hráefnisins sem við verðum a. m. k. að ná samningum og samkomulagi um við þá sem á þeim mörkuðum ráða, hvort sem okkur er það ljúft eða leitt, hvort sem menn kalla það harðsvíraða auðjöfra og auðhringa eða ekki. Það er bara staðreynd í okkar veröld. Og ég er ekki viss um að það sé úr svo miklu að moða á mörkuðum, ef menn ætla að leita sér að orkufrekum kaupanda, að okkur sé alveg óhætt að hafa í frammi tilburði eins og hæstv. orkuráðh. hafði við álverið nú nýverið og allir þekkja til. Hafi þeir brotið af sér fá þeir sinn dóm, en hans tilþrif eru öll á þessa vísu, að skjóta loku fyrir að við náum vopnum okkar á þessu mikilvæga sviði sem stóriðjan er. Hann er þar að þjónusta sinn þingflokk, því að það hef ég fyrir satt, að yfirgnæfandi meiri hl. þingflokks Alþb. sé andstæður stóriðjunni. En ég, eins og ég segi, ætlaði ekki að trúa því fyrr en ég tók á, eftir að hafa hlustað á ræðu hæstv. orkuráðh. áðan, að hann fylkti liði með þeim mönnum, ekki síst og kannske öllu helst vegna þeirra hagsmuna sem kjördæmið Austurland hefur að gæta í þessu sambandi — sá kaldi landshluti sem ekki á eftir í náinni framtíð að sækja stórmikið meira til sjávarins en hann gerir. Liggur alveg ljóst fyrir að ef ekki verður þar stórbreyting með virkjun eins og í Fljótsdal með þeirri orku sem hún gefur, með stóriðju í Reyðarfirði, með afgangsorku til húshitunar, mun óðar en líður bresta á fólksflótti í þeim landshluta. Á því er ekki nokkur minnsti vafi.

Það er ekkert álit, heldur eru þetta kaldar staðreyndir sem blasa við, — kaldar staðreyndir sem afturhaldsöflin í Alþb. vilja ekki skilja eða skynja. En ég endurtek það og legg á það höfuðáherslu: Um það verður nú reynt að ganga úr skugga með öllum ráðum, að vísu þingræðislegum, ég skal taka það fram, hvort sú stefna er orðin ofan á sem birtist í ræðu hæstv. iðnrh. áðan.

Herra forseti. Ég þarf svo engu við þetta að bæta. Þetta er kannske eins og annað í búskap okkar nú um þessar mundir, þar sem, eins og menn hafa fyrir augum, ástandið er heldur bágborið og lítið upp úr athöfnum og tilþrifum stjórnvalda yfirleitt leggjandi. Ég veit ekki hver hefur lagt á það trúnað þótt hann heyri hæstv. forsrh. hneykslast á því, að í frv. okkar sjálfstæðismanna væri ekki tekin ákvörðun um röðun virkjana. Ég veit ekki hver hefur lagt á það trúnað að hann mundi síðar sjá svo um að flutt yrði frv. hér þar sem röðunin væri ákveðin. Ef hv. 6. þm. Reykv., fyrrv. borgarstjóri í Reykjavík, hefur lagt einhvern sérstakan trúnað á það er hann meira auðtrúa en ég hugði. En þannig eru nú yfirlýsingar hæstv. ríkisstj. yfirleitt, að þær hefur ekki verið neitt að marka frá því að hún settist að völdum. Spurningin er sú, hvort maður hefur leyfi til að binda vonir við að það sé ekkert að marka sem hæstv. orkuráðh. sagði áðan í ræðu sinni. Á það legg ég höfuðáherslu að það verði gengið úr skugga um það hið allra fyrsta, enda þótt, eins og ég segi, ég verði að grípa til þess sem að öðru jöfnu mætti kannske kalla örþrifaráð til að fá um það sem nákvæmastan úrskurð.