13.05.1981
Neðri deild: 93. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4332 í B-deild Alþingistíðinda. (4416)

320. mál, raforkuver

Guðmundur G. Þórarinsson:

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir Alþingi til umr., um raforkuver, er stórhuga stefnuyfirlýsing íslensku ríkisstj. í virkjunarmálum. Óskað er eftir heimildum til virkjunar 820 mw., en afl núverandi virkjana okkar er um 680 mw. Óskað er eftir heimildum til að auka virkjað afl íslenskra virkjana úr 680 mw. í um 1500 mw. Óskað er eftir stærri og meiri heimildum til virkjunar á Íslandi en dæmi eru til um í sögu þessarar þjóðar. Óskað er eftir heimildum til að auka afl vatnsaflsvirkjana um 720 mw., en núverandi afl þeirra er 540. Er því um að ræða ósk um virkjunarheimildir sem eru stórfelldari en dæmi eru til um áður. Orkuvinnslugeta íslenska raforkukerfisins var á árinu 1980 um 3140 gwst. á ári. Þegar þeim framkvæmdum er lokið, sem hér er óskað eftir heimildum til, verður orkuvinnslugeta kerfisins 7770 gwst. á ári. Hér er því um að ræða aldeilis feiknalegar orkuframkvæmdir.

Í grg. með þessu frv. er gert ráð fyrir að framkvæmdatími allra þeirra framkvæmda, sem hér er óskað eftir heimilda til, geti orðið 10–15 ár, en í framsögu iðnrh. kom fram að í reynd gæti framkvæmdatíminn orðið um 12 ár. Að sjálfsögðu hlýtur virkjunarhraði að verða nokkuð háður orkunýtingarmöguleikum. Því er óhjákvæmilegt að nokkur teygja sé í því tímabili sem menn gera ráð fyrir að koma þessum framkvæmdum fram á. Stefna ríkisstj. kemur hins vegar ótvírætt fram í ræðu iðnrh. þegar hann segir: „Í reynd gæti virkjunartími allra þeirra framkvæmda, sem hér um ræðir, orðið tólf ár.“ — Ef gert er ráð fyrir tólf ára framkvæmdahraða verður orka til ráðstöfunar eftir tólf ár umfram almennan markað og núverandi orkufrekan iðnað um 2900 gwst. á ári. Hér er því um mjög mikilvæga stefnumörkun að ræða. Framkvæmdir, sem verið er að tala um, eru Kvíslaveita á Þjórsársvæðinu, bygging stíflu við Sultartanga, virkjun Blöndu, virkjun Jökulsár í Fljótsdal, virkjun við Sultartanga og Villinganesvirkjun. Allar þessar framkvæmdir eru menn að tala um í reynd á tíma sem gæti orðið tólf ár. Krafa um meiri framkvæmdahraða en það er hreinlega út í bláinn. Krafa um meiri framkvæmdahraða er hreinlega yfirboð. Enginn getur ákveðið meiri hraða í virkjunum en þetta á þessum tíma.

Hvað vilja menn gera ef menn finna t. a. m. olíu fyrir norðan á þessum tíma? Flestum er kunnugt um að norður af landinu eru þykk setlög. Undir Flatey á Skjálfanda eru 4 km þykk setlög. Það má vel vera að það séu ekki miklar líkur á að þar finnist olía, en einhverjar eru þær. Áframhaldandi rannsóknir á þessu svæði gætu jafnvel leitt til þess, að fyrir norðan land ættu Íslendingar vinnslumöguleika á olíu. Ég nefni þetta. Ég nefni það, að orkunýting verður auðvitað að samsvara þeim framkvæmdum sem menn vilja ráðast í. Ég dreg stórlega í efa að nokkur þm., sem hér er inni, treysti sér til að halda því fram, að viturlegt væri á þessari stundu að stefna að meiri virkjunarhraða á öllum þeim framkvæmdum, sem hér eru taldar upp, en tólf árum.

En jafnframt því sem mörkuð er sú stefna að ráðast í þessar miklu framkvæmdir á orkusviðinu á næstu tólf árum er líka með þessu frv. mörkuð stefna í orkuframkvæmdum til aldamóta. Þar er gert ráð fyrir að Íslendingar setja sér það mark, að orkureikningurinn verði jafnaður um aldamót, að Íslendingar framleiði um aldamót ígildi allrar þeirrar orku sem þeir nota. Innflutt orka í formi fljótandi eldsneytis er núna einhvers staðar um 4000 gwst. á ári. Bensíninnflutningur nemur líklega um 1600 gwst. á ári. Og fiskveiðiflotinn notar um 2200 gwst. á ári. Þessi stórmerka stefnumörkun, sem kemur fram í grg. þessa frv. um raforkuver, gerir því ráð fyrir að raforkuframleiðsla Íslendinga geti verið um 10 000 gwst. um aldamót. Sú orkuspá, sem fyrir liggur og nýlega hefur verið endurskoðuð, gerir ráð fyrir að orkumarkaður almennrar notkunar og þess orkufreks iðnaðar, sem rekinn er á Íslandi sem stendur, muni vera um 5925 gwst. á ári um aldamót. Þetta þýðir því það, að samkvæmt þessari stefnumörkun yrði orkuframleiðsla íslensku raforkuveranna hvorki meira né minna en 10 terawattstundir á ári um aldamót. Það þýðir hvorki meira né minna en að orkufrekur iðnaður Íslendinga notar núna um 2000 gwst. á ári, en um aldamót gæti þessi notkun orðið samkvæmt þessu um 6000 gwst. eða hafa þrefaldast samkvæmt þeim framkvæmdahraða og þeirri stefnumörkun sem fram kemur í því frv. sem hér er lagt fram.

Það hlýtur því öllum að vera ljóst, sem lesa þetta frv. og grg. með því, þá stefnumörkun sem í því liggur, með opnum augum, með berum augum og einhverri sanngirni, að ljóst er að orkuframkvæmdir munu verða mjög fyrirferðarmiklar á Íslandi, ekki bara þann áratug sem nú er fram undan, heldur allar götur fram til aldamóta.

Lítum svolítið nánar á það tímatakmark sem hér um ræðir og iðnrh. nefndi í ræðu sinni að þeim framkvæmdum, sem aflað er heimilda til með þessu frv., verði lokið á næstu tólf árum. Hvað þýðir það? Það þýðir að Íslendingar munu fá til umráða um 2900 gwst. á ári til orkufreks iðnaðar og almennrar uppbyggingar á iðnaði í landinu. Og hvað þýðir það? Hvað þýða 2900 gwst. á ári? Ef menn vilja bera það saman við ígildi einhvers sem menn þekkja frá rekstri, þá þýðir það að með þessum 2900 gwst. er hægt að reka tvær álverksmiðjur sem hvor um sig framleiddi 100 000 tn. af áli á ári. Í öðrum ígildum gæti það þýtt það, að á þessum tólf árum hefðum við næga orku til að koma hér upp t. a. m. magnesíumframleiðslu sem framleiddi 25 000 tn. af magnesíum á ári og notaði um 500 gwst. á ári. Í viðbót við það gætum við reist hér kísilmálmverksiniðja sem framleiddi 30000 tn. af kísilmálmi á ári og nýtti um 500 gwst. á ári. Í viðbót við það gætum við tvöfaldað á þessum tólf árum stærð kísiljárnsverksmiðjunnar á Grundartanga og aukið við hana um 500 gwst. á ári. Á þessum tíma gætum við jafnframt — og hefðum næga orku til — reist þær verksmiðjur sem hér liggja frv. fyrir um: stálverksmiðju, steinullarverksmiðju, sjóefnaverksmiðju o. s. frv., jafnvel sykurhreinsun. Við gætum leyst af hólmi olíunotkun, sem nú er í loðnubræðslunum, og stóraukið almennan iðnað og varið um 600 gwst. á ári í það. Þrátt fyrir allt þetta, sem ég nú hef talið upp, hefðum við um 800 gwst. á ári afgangs. Og hvað gætum við gert við ígildi þess? Við gætum reist natríumklóratverksmiðju sem framleiddi um 30 000 tn. á ári af natríumklórati og nýtti 200 gwst. á ári, og við gætum reist í viðbót við allt þetta kísiljárnverksmiðju eða fjölgað ofnunum enn á ný um tvo í kísiljárnsverksmiðjunni við Grundartanga og tekið þar um 500 gwst.

Orkunotkun í orkufrekum iðnaði á Íslandi er um 2000 gwst. á ári nú. Eftir þessi tólf ár, sem hér er um að ræða, og allar þær framkvæmdir, sem þetta stórhuga frv. um orkuver óskar eftir heimildum til að reisa, gætum við varið til iðnaðaruppbyggingar hér um 5000 gwst. Ef þetta er ekki mikill framkvæmdahraði í orkuframkvæmdum, þá veit ég ekki hvað menn eru að tala um. Ég efast um það, með öllu því sem Íslendingar hafa áhuga á að gera í þessu landi og eiga eftir að gera, ekki bara í uppbyggingu iðnaðar og orkufreks iðnaðar og virkjunarmála, heldur í stórhuga vegagerð, lagningu bundins slitlags um landið og fjölmörgum öðrum framkvæmdum, að við ráðum fyllileg við meiri hraða en þetta. Hér er um að ræða miklu örari og miklu meiri uppbyggingu en verið hefur. Hér er um að ræða stórhuga áætlun um byggingu orkuvera og uppbyggingu innlends iðnaðar.

Ég vil biðja menn alveg sérstaklega að líta ekki fram hjá þeirri stefnumörkun sem fram kemur einmitt í grg. um orkaframleiðslu Íslendinga fram til aldamóta. Ég verð að segja það eftir að hafa skoðaða allar þær tölur sem fyrir liggja og fram komi í þessum grg., að ég er aldeilis undrandi yfir þeim ræðum sem stjórnarandstaðan lætur hafa eftir sér í útvarpi landsmanna í kvöld. Mér er næst að halda að menn hafi hreinlega ekki lesið það sem hér er um að ræða eða ekki skilið það, nema hvort tveggja sé. Ég satt að segja átta mig engan veginn á því, hvað menn eru að fara.

Hér er verið að fara fram á heimildir til virkjunar, hér er verið að fara fram á heimildir til byggingar vatnsorkuvera á u. þ. b. tólf árum — vatnsorkuvera sem munu kosta á verðlagi 1. jan. 1981 um 4000 millj. nýkr. eða 400 milljarða gkr. hvorki meira né minna. Nýting þessarar orku, sem verður umfram almenna notkun í orkufrekum iðnaði á þessum tíma, gæti hæglega þýtt fjárfestingu upp á aðra 400 milljarða gkr., eða um 8000 millj. nýkr. alls, fyrir utan allar aðrar framkvæmdir. Þarna eru ekki taldar með stórkostlegar vatnaveitur á Þjórsársvæðinu eða jarðvarmavirkjanir, varaaflsstöðvar eða annað slíkt sem er um að ræða í þessu frv.

Ég skal fúslega játa að ég hef lengi verið talsmaður þess, að stjórnvöld reyndu að leggja ekki of mikið á efnahagslíf þjóðarinnar og reyndu að valda ekki of mikilli þenslu á þeim tíma sem allir stjórnmálamenn þykjast standa á öndinni við að berjast gegn verðbólgu í þessu landi. Ein meginkenningin, sem ekki hvað síst stjórnarandstæðingar á þessu þingi hafa haldið fram, er einmitt sú, að peningamagn í umferð skyldi nú ekki verða aukið of mikið, að ríkisstj. legði ekki í of mikla þenslu á vinnumarkaði þjóðarinnar o. s. frv. Ég hygg að þær framkvæmdir, sem ríkisstj. er að leita eftir heimildum til að ráðast í með þessu frv., muni spenna þrek þjóðarinnar til hins ýtrasta á þeim framkvæmdatíma sem þarna er um að ræða. Ég hygg jafnframt að það muni verða að ráðast í verulegar erlendar lántökur til að koma framkvæmdunum fram á þessum tíma. Það eru ansi margir hér, ekki hvað síst í liði stjórnarandstæðinga, sem þykir að erlendar lántökur séu orðnar nokkuð háar. Það er auðvitað rétt, að það má segja sem svo að það sé ekki vandi að ráðast í erlendar lántökur ef menn byggja jafnframt fyrirtæki sem afla mikils erlends gjaldeyris. Allt er það rétt. En eigi að síður er það svo, að við búum við nokkuð valt veraldargengi og menn þurfa að hafa gát á öllu. Vilji menn virkja hraðar en hér er talað um verða menn að spenna framkvæmdagetu þjóðarinnar miklu meira en æskilegt er og jafnvel meira en hægt er. Menn verða að auka erlendar lántökur mikið frá því sem nú er vilji menn fara hraðar.

Það, sem hér er að stefnt með þessu frv., er að ráðast í miklar framkvæmdir á sviði orkumála, en jafnframt er stefnt að því að auka framleiðni þjóðarbúsins, að auka framleiðslu þjóðarbúsins með fjölmörgum iðnaðarfyrirtækjum sem bæði koma fram í grg. og sum liggja þegar fyrir í frv.-formi hér fyrir á Alþingi. Það getur þess vegna engum blandast hugur um, sem les þetta frv. með athygli á annað borð, að hér er um stórhuga stefnumótun að ræða. Hér er um að ræða með þessu frv. stórkostlega áætlun um að bæta lífskjör þjóðarinnar fram til aldamóta með virkjun orku, með nýtingu þeirra auðlinda sem íslenska þjóðin á í sínum orkusvæðum. Virkjunarhraði hlýtur auðvitað, þrátt fyrir þá yfirlýsingu sem fram kom í ræðu iðnrh., að í reynd gæti þessi framkvæmdahraði orðið tólf ár, að vera háður orkunýtingunni. Það getur engum blandast hugur um.

Ég heyri nokkra menn standa hér upp og segja: Það á að gera meira í markaðsmálum og það á að fara beint í samninga núna og tryggja sölu á ákveðnum afurðum o. s. frv. Ég held að menn verði að horfast í augu við það, að í kjölfar þeirrar seinni sprengingar, sem varð á olíuverði núna í löndunum í kringum okkur, hefur orðið mikill samdráttur í efnahagslífi flestra þjóða í kringum okkur. Nú er að mínu viti alls ekki rétti tíminn til að semja við erlend fyrirtæki um markaðssetningu iðnaðarvara. Fjölmörg iðnfyrirtæki á fjölmörgum sviðum, hvort sem er í EFTA eða Efnahagsbandalaginu eða öðrum iðnríkjum í kringum okkur, hafa eins og er meiri framleiðslugetu en markaðurinn stendur undir. Hagvöxtur þessara þjóða hefur dregist saman og orðið miklu minni en menn höfðu vonað, og atvinnuleysi landanna í kringum okkur er geigvænlegt. Hins vegar spá menn því, að fram undan sé grundvallarbreyting í þessum málum, að fram undan séu þeir tímar að atvinnulíf iðnríkjanna í kringum okkur muni reisast við og risa úr þeirri öskustó sem það nú er í. Ég hygg að þá væri óviturlegt að vera búinn að binda sig í samningum á þeim samdráttartími sem nú er.

Ég legg áherslu á það sem fram kemur í þessu frv. og grg., að það er mikilsvert að Íslendingar hafi virk yfirráð yfir þeim atvinnufyrirtækjum sem eru á þessu landi. Ég legg áherslu á það ekki síst vegna þeirrar reynslu sem ýmsar aðrar þjóðir hafa af uppbyggingu orkufreks iðnaðar. Ég held að menn þurfi ekki að líta lengra en til Kanada, því að þar býr þjóð sem er feiknalega rík af orkulindum og ýmsum hráefnum, en er þrátt fyrir allt nánast fátæk þjóð vegna þess að erlend fyrirtæki eiga og nýta bæði orku og hráefni í landinu.

Ég held að við eigum að stefna að virkum yfirráðum yfir þeim atvinnufyrirtækjum í mestum mæli sem hér eru og hér eiga eftir að rísa, hvort sem þau virku yfirráð koma á einhverju löngu árabili eða um leið og atvinnufyrirtækin eru reist. Í því sambandi vil ég sérstaklega vekja athygli á því, að þó að Íslendingar eigi meiri hluta í málmblendiverksmiðjunni á Grundartanga, sem út af fyrir sig er sjálfsagt ágætt mál, hafa þeir sáralítið að segja um markaðssetningu þeirra vara sem þar eru framleiddar. Það er feiknalegt mál fyrir Íslendinga að hefja þegar samninga við Elkem um að Íslendingar taki þátt í sölu þessara vara, að íslenskir menn séu ráðnir einmitt við vinnu við markað þessara vara þannig að Íslendingar nái sjálfir þekkingu og tökum á markaðnum.

Ég hygg að þó að málmblendiverksmiðjan á Grundartanga hafi ekki starfað lengi sé samt svo komið að tæknilega séð geti Íslendingar rekið hana einir. Við búum orðið yfir þekkingu til þess, og þeir starfsmenn, sem þarna vinna, hafa öðlast reynslu til þess að fást við þetta starf. En það gagnar okkur ekki ef okkur vantar þann hluta starfsins sem markaðurinn er. Þess vegna er það mjög mikilvægt mál að Íslendingar hefjist þegar handa við að komast inn í það starf sem þar er unnið að sölu vörunnar. Yfirráð yfir málmblendiverksmiðjunni án þekkingar og vitneskju um markaðinn eru ekki nægilega mikils virði því eignaryfirráð eru ekki virk yfirráð. Virk yfirráð yfir þessu fyrirtæki fáum við ekki nema við þekkjum alla starfsemina og höfum hönd á henni.

Á sama hátt er ég þeirrar skoðunar, að það eigi að taka upp samninga við álverið með það fyrir augum að Íslendingar eignist eignarhlut í þeirri verksmiðju, sem aukist á komandi árum, og þá eigi að setja menn einmitt inn í markaðsmál fyrirtækisins jafnóðum.

Eins og allir vita, sem hér eru inni, starfar nú á vegum ríkisstj. sérstök orkustefnunefnd. Orkustefnunefndin hefur m. a. á sinni könnu að vinna að athugun á þeim fjölmörgu iðnaðarkostum sem fyrir hendi kunna að vera við nýtingu okkar miklu orkulinda. Ég er algjörlega sammála því, hvernig að því er staðið að kanna þessa iðnaðarkosti. Ég er algjörlega sammála því og vil stefna að því, að Íslendingar sjálfir kanni þessa möguleika sem mest og til þrautar áður en þeir hefja viðræður við erlenda menn og erlenda sérfræðinga um markaðsmál eða byggingu slíkra fyrirtækja, hvort sem um sameign er að ræða eða samvinnu eða hvernig sem það er. Ég held að það sé mjög mikils virði og ég held að það hljóti að vera þm. mjög mikils virði að fá hér greinargóðar bækur um þá nýtingarkosti sem til greina koma.

Núna alveg nýverið fengu þm. í hillur sínar þykka skýrslu um athugun á magnesíumframleiðslu hér á landi. Sjálfsagt þarf að vinna þá athugun miklu ítarlegar en þar kemur fram, en þar eru þó Íslendingar búnir að draga saman þá vitneskju sem hægt er að fá um þessi mál á tiltölulega stuttum tíma og standa vel að vígi að hefja viðræður við erlenda menn um þessa framleiðslu. Ég vek athygli á að magnesíumframleiðsla við Ísland er feiknalega áhugavert mál. Hún notar ekki bara orku háhitasvæðanna og orku okkar vatnsaflsvirkjana, innlenda orku, heldur nýtir hún innlend hráefni. Við mundum vinna þetta magnesíum úr okkar sjó, og ekki bara það, heldur mundu með þeirri vinnslu opnast möguleikar á feiknalegri efnavinnslukeðju — reyndar í tengslum við sjóefnaiðjuna sem þegar er búið að leggja fram frv. um hér á Alþingi.

Menn eru að kvarta um að ekki sé gert nóg í að byggja upp iðnað hér. Fyrir þinginu liggur frv. um byggingu stálbræðslu, stórmerkilegt mál sem fjöldi áhugamanna er búinn að vinna að, að nýta það brotajárn sem fellur til í landinu, bræða það hér og framleiða steypustyrktarjárn, að færa inn í þetta land þekkingu á stáliðnaði. Ég á erfitt með að trúa því, að ekki sé hægt að bræða þetta brotajárn hér á landi og framleiða steypustyrktarjárn í stað þess að flytja brotajárnið og láta bræða það í erlendum verksmiðjum og flytja svo steypustyrktarjárnið inn.

Þetta er mikilvægur áfangi í atvinnusögu Íslendinga. Ekki bara það. Fyrir þinginu liggur frv. um steinullarverksmiðju. Fáar þjóðir eru jafnháðar því og Íslendingar hér á norðurhjara heims og hafa góða og næga hitaeinangrun í sínu landi. Með þessu yrði stigið merkt skref til framleiðslu á óbrennanlegri einangrun í þessu landi. Slík atvinnufyrirtæki gæfi 60–70 manns vinnu og sparaði feiknalegan gjaldeyri.

Fyrir þinginu liggur frv. um sjóefnaiðju, 8 þús. tonna saltverksmiðju sem risið gæti á þessu ári og yrði stækkuð í 40 þús. tn. á næstu þremur árum. Hér er ekki bara um framleiðslu á 40 þús. tn. af salti að ræða á sama tíma og Íslendingar nota að meðaltali um 60 þús. tn. í sína fisksöltun. Hér er um að ræða framleiðslu á feiknalega mörgum öðrum efnum. Framleiðslu á kali, kalsíumklóríði, framleiðslu á brómi o. s. frv., framleiðslu á saltsýru, framleiðslu á vítissóda og feiknalegir möguleikar sem þarna opnast í kringum þetta mál. Þetta skal verða innlend verksmiðja með innlent hráefni, innlenda orku og í eigu Íslendinga. Yfir hverju eru menn að kvarta?

Þingmenn hafa fengið, eins og ég sagði áðan, í hendur skýrslu um magnesíumverksmiðju. Reyndar eru niðurstöður þeirrar skýrslu svo bjartsýnar að ég þori varla að trúa þeim. Ég hygg að þær þurfi að skoða miklu nánar og þær þurfi miklu meiri athugunar við. En ef sannleikurinn eða raunveruleikinn liggur einhvers staðar nálægt þeim niðurstöðum dreg ég ekki í efa að einmitt framleiðsla á magnesíum með innlendri orku úr innlendu hráefni er einhver vænlegasti og mikilvægasti iðnaðarkostur sem Íslendingar eiga völ á. Það er mál sem við þurfum að kanna mjög vel.

Þingmenn hafa fengið í hendur rannsóknir og skýrslur um möguleika á framleiðslu á kísilmálmi. Kísiljárn er framleitt á Grundartanga. Kísiljárn er notað í stál sem blöndunarefni og er háð stálmarkaðnum. Kísilmálmur er aftur notaður í blöndun í ál og tengist áliðnaðinum mikið.

Þingmenn, hygg ég, hafa fengið í hendur áætlanir nefnda um byggingu kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði, — kísilmálmverksmiðju sem yrði af svipaðri stærð og Grundartangaverksmiðjan er nú, kísilmálmverksmiðju sem mundi veita um 120 manns vinnu. Verksmiðja, sem reist væri á þeim stað, mundi með afgangsvarma geta hitað upp Reyðarfjörð og Eskifjörð og kannske einhvern hluta af Norðfirði ef vel tækist til. Þarna eru stórfelldar áætlanir uppi. Í þessum málum er mikið unnið þó að ekki sé hlaupið í fangið á útlendingum með öll mál á fyrsta stigi. Það kann vel að vera að fara verði í samvinnu við erlenda menn um þessi mál, en áður en slík samvinna er hafin verða menn að vita nokkur skil á efninu. Íslendingar eiga að nýta sérfræðinga sína til að vinna þessi mál fyrst, enda eru þeir ekki hæfir samningsaðilar nema þeir hafi sjálfir kannað málin ofan í kjölinn.

Nú er unnið að athugun á því að reisa natríumklóratverksmiðju á Íslandi sem mundi vera beint framhald af saltverksmiðjunni, ein af þeim fjölmörgu efnaverksmiðjum sem risið gætu í beinu framhaldi af sjóefnaiðjunni á Reykjanesi. Þarna er um mjög athyglisverða nýtingarkosti að ræða, sem vonandi getur orðið úr. Þetta verða menn að hafa í huga og sérstaklega verða menn að hafa það í huga, að ef af þessum áformum verður um sjóefnaiðju og alla þá möguleika, sem íslensku þjóðinni opnast í tengslum við hana, er hægt að beina þeim íslensku ungmennum, sem leita eftir háskólanámi, einmitt yfir í slíkar greinar því að fjölmargir ungir menn og konur spyrja um það þegar þau hefja framhaldsnám: Hvar eru atvinnumöguleikar? Ef áform eru uppi um að ráðast í sjóefnaiðju og möguleikar verða á þeim feiknalega efnaiðnaði sem í beinu framhaldi af því getur opnast, þá mun margt ungt fólk leita sér að menntun á því sviði. Og ég hygg að það muni verða Íslendingum til mikils framdráttar að unga kynslóðin geti leitað sér menntunar einmitt á sviði sem beinist að framleiðsluiðnaði, en ekki fari allir ungir menn og konur að læra félagsfræði eða sálarfræði þö að þær greinar séu ágætar og að þeim ólöstuðum.

Ég hygg að þm. hafi séð að fyrir liggja áætlanir frá Orkustofnun um útreikninga á byggingu á olíuhreinsunarstöð á Íslandi, lítilli olíuhreinsunarstöð sem eingöngu mundi hreinsa hráolíu sem svarar notkun Íslendinga sjálfra. Fyrstu áætlanir um þessa stöð sýna að hún mundi borga sig upp á ótrúlega skömmum tíma. Fyrstu áætlanir sýna að þarna sé um mjög arðvænlegt fyrirtæki að ræða, — fyrirtæki sem gæti varið okkur gegn þeim feiknalegu sveiflum sem hvað eftir annað verða einmitt á verði á gasolíu og unninni olíu.

Þegar er unnið að víðtækum áætlunum um byggingu pappírsverksmiðju á Íslandi. Hún gæti einmitt mjög vel hentað í tengslum við sjóefnaiðju vegna þess að pappírsverksmiðjan mundi væntanlega nýta talsvert mikið klór.

Margir eru þeir sem halda því fram, að það kynni að verða arðvænlegt fyrir Íslendinga að nýta þá möguleika, sem þegar eru fyrir hendi í orkufrekum iðnaði, og stækka álverið eða stækka kísiljárnverksmiðjuna á Grundartanga vegna þeirrar miklu aðstöðu sem þar er þegar fyrir hendi, vegna þess að þar er höfn þegar fyrir hendi, vegna þess að háspennulínur eru komnar þangað, vegir liggja þangað og aðstaða er þar fyrir hendi. Það er sjálfsagt mjög mikið til í því og á það þarf líka að líta. En ég hygg að sérstaklega varðandi álverið þurfi ýmis atriði að koma til endurskoðunar áður en menn ráðast í beina stækkun á því fyrirtæki. Með því vil ég þó alls ekki útiloka það að stækkun álversins gæti verið hagkvæm fyrir okkur Íslendinga. Það má vel vera, en ég get ekki horfið frá þeirri tilhugsun, að raforkuverð álversins er allt of lágt, enda allar forsendur í orkumálum veraldarinnar breyttar í grundvallaratriðum frá því að sá samningur var gerður. Með því er ég ekki að álasa þeim mönnum sem þann samning gerðu, þó að framsóknarmenn hafi á sínum tíma lagt fram miklar efasemdir um þann orkusölusamning hér á Alþingi, heldur hefur heimurinn breyst í öllum grundvallaratriðum að því er lýtur að orkumálum. Við erum bundnir við þennan samning til 1994. Við erum sennilega bundnir við framlengingarákvæði fram til 2014. Þessum samningi verðum við að fá breytt. Við verðum að fá þetta orkuverð hækkað. Það er enginn efi á því. Að mínu mati er það algjört skilyrði þess, að rætt sé um nokkra stækkun á álverinu, að endurskoðun komi á raforkusamninginn. Þessi raforkusamningur er að verða myllusteinn um háls okkar Íslendinga. Hann minnir einna helst á landhelgissamninginn fræga sem viðreisnarstjórnin gerði við Breta á sínum tíma, 12 mílna samninginn um að við skyldum ekki færa út landhelgi Íslendinga nema Bretar samþykktu það eða við vísuðum málinu til Haag-dómstólsins. Ég veit að það er enginn maður hér inni sem þorir að hugsa þá hugsun til enda hvað hefði skeð ef við hefðum ekki brotið þennan landhelgissamning og neitað að mæta fyrir Haag-dómstólnum, einfaldlega vegna þess að íslenska þjóðin átti allt of mikið í húfi til að geta tekið áhættuna af því að dómur félli gegn henni. Hvar halda menn að við stæðum ef við hefðum ekki brotið þann samning upp? Ekki meira um það.

Raforkusamninginn við álverið verður að endurskoða. Hann minnir því miður á fyrri samning viðreisnarstjórnarinnar um landhelgina. En það er ekki bara það. Það eru fjölmörg önnur stefnumarkandi ákvæði í því frv. sem nú liggur fyrir þinginu . Í grg. þessa frv. er sérstaklega tekið fram að ríkisstj. ætlist til þess, að sama gjaldskrá um raforku verði í heildsölu um allt land. Það kemur mér á óvart ef ekki er tekið eftir þessu um allt land. Það kemur mér á óvart ef menn kalla þetta ekki stefnumörkun. Mér kemur á óvart ef allir þm. geta ekki tekið undir það, að hér sé barist fyrir miklu nauðsynjamáli. Og það kemur mér á óvart að þeir þm., sem talað hafa af hálfu stjórnarandstöðunnar, hafa ekki minnst á þetta mál, heldur vaðið hér eld og reyk og reynt að þyrla upp einhvers konar móðu til að fela megintilgang frv. og þá stórhuga stefnu í orku- og atvinnumálum þjóðarinnar sem tekin er með framlagningu þessa frv.

Það er alveg rétt, að þessum orkuframkvæmdum er ekki öllum raðað með frv. Mér heyrist reyndar á stjórnarandstæðingum að þá greini nokkuð á um hvort raða skuli. Margir þeirra telja ekki ástæðu til þess, eins og t. a. m. hv. 4. þm. Austurl., sem tók fram sérstaklega í ræðu sinni að hann væri ekki að mælast til þess að raðað væri á þessu stigi mála. En það er tekið fram í grg. frv. að röð þessara virkjunarframkvæmda skuli fara eftir þjóðhagslegri hagkvæmni og öryggi í raforkukerfinu og ég spyr: Er nokkur þm, hér inni sem getur ekki tekið undir það? Hvaða þm. getur ekki tekið undir að við förum eftir þjóðhagslegri hagkvæmni og nauðsynlegu öryggi við þessa röðun? Ég veit það ekki.

Það er sérstaklega tekið fram í frv. að Alþingi muni fá að segja sitt orð um hver þessi röð verður. Á haustþinginu koma fram tillögur um það. En það er samt ákveðin röðun sem kemur fram í þessu öllu saman, og því máli vil ég sérstaklega beina til þeirra Sunnlendinga sem talað hafa og eru óánægðir með að ekki skuli raðað. Í þessu frv. kemur fram að gert er ráð fyrir að ráðist verði í byggingu stíflu við Sultartanga og það er gert ráð fyrir að ráðist verði í feiknalegar vatnaveitur á Þjórsársvæðinu. Gera menn sér grein fyrir því, hvað hér er um að ræða? Gera menn sér grein fyrir því, að hér er um að ræða orkuframkvæmdir sem samsvara meðalvirkjun? Gera menn sér grein fyrir því, að eingöngu þessar orkuframkvæmdir, sem eiga að sitja í fyrirrúmi og á að ráðast í á Þjórsársvæðinu, samsvara 800 gwst. framleiðslu á ári? Þar er hreint ekki um lítið að ræða. En menn verða jafnframt að gera sér grein fyrir því að framkvæmdir við Hrauneyjafossvirkjun standa af fullum krafti nú og fram á næsta ár og síðasta aflvél Hrauneyjafossvirkjunar mun ekki taka til starfa fyrr en á árinu 1983.

En hvert eru menn þá að fara þegar menn eru að æsa sig yfir að ekki sé raðað þessum framkvæmdum? Ég fullyrði að endanlega, þegar upp er staðið, skiptir það þjóðhagslega ekki öllu máli í hvaða röð þessar virkjanir koma ef þetta kemst til framkvæmda á þeim 12 árum sem um er að ræða og iðnrh. gat um sérstaklega í ræðu sinni. Eru þm. hér almennt tilbúnir að lýsa því yfir t. a. m. að þeir vilji setja Blöndu fyrsta? Ég spyr: Eru menn tilbúnir í það? Ég er alveg viss um að Blanda er hagkvæmur virkjunarkostur, en það er bara ekki fullur friður um Blöndu heima í héraði. Menn hafa ekki náð samkomulagi um Blöndu enn þá. Og ég segi það sem þm. Reykv., að ég er ekki tilbúinn að taka um það ákvörðun hér á Alþingi Íslendinga að ráðast næst í Blönduvirkjun, hvernig svo sem þeim samningum kann að ljúka, hvernig sem þeir fara, áður en þeim er lokið. Hver vill standa frammi fyrir lögbannsmálum eða bótakröfum í þeim málum eftir á, svipað og menn þekkja frá Laxárdeilunni á sínum tíma? Ég held að það séu ekki margir, ef menn hugsa sitt ráð. Hitt er annað, að í þessu frv. og grg. með því er lögð alveg sérstök áhersla á að flýta samningum um Blöndu, að ljúka þeim þannig að unnt sé að taka ákvörðun um næstu virkjun á haustdögum.

Rannsóknir við Fljótsdalsvirkjun eiga að fara fram í sumar. Það eru talsverðar rannsóknir sem þar eru eftir. Niðurstöður úr þeim rannsóknum munu ekki liggja fyrir fyrr en í haust. Gengu þó rannsóknir s. l. sumar við Fljótsdalsvirkjun miklu betur en menn höfðu framast þorað að vona. Ég er ekki tilbúinn að taka ákvörðun um Fljótsdalsvirkjun nema þær rannsóknir liggi fyrir.

En með þessu frv. er tekin ákvörðun, ákveðnar vatnaveitur og stíflugerð á Þjórsársvæðinu sem samsvara í orkuvinnslugetu meðalstórri virkjun. Það er því nánast verið að ræða um þarna fjórar stórar virkjanir og eina litla. Þetta verða menn að hafa í huga. Og það er sérstaklega tekið fram, einmitt vegna þess hvað menn gera ráð fyrir að framkvæmdahraði verði mikill í þessum virkjunum, að virkjunarframkvæmdir verði að skarast. Það er sérstaklega gert ráð fyrir að Íslendingar muni vinna að uppbyggingu meira en einnar virkjunar í einu til að hraða þessum virkjunarframkvæmdum. Einmitt þetta frv. gerir ráð fyrir að Alþingi heimili ríkisstj. lántöku um 50 millj. nýkr. eða 5 þús. millj. gkr. til að hraða undirbúningi að þessum nýju virkjunum. Það er þess vegna lögð öll áhersla á að flýta þessu máli.

Tekið er fram sérstaklega í þessu frv. að leitað verði eftir samningum við Landsvirkjun um framkvæmd þessara virkjana, en ef þeir samningar takist ekki muni Rafmagnsveitur ríkisins verða virkjunaraðilar. Nokkrir, sem hér hafa talað, hafa fundið að þessu. Þeir hafa talið nauðsynlegt að þingið kvæði upp úr um að Landsvirkjun yrði falið með lögum að gerast virkjunar- og rekstraraðill þessara virkjana. Þeir telja það dæmi um að ríkisstj. tvístígi að tekið sé fram að ef ekki náist samningar við Landsvirkjun og við eigendur Landsvirkjunar verði samið við Rafmagnsveitur ríkisins. Ég dreg stórlega í efa að þeir menn, sem þannig tala, hafi hugsað þetta mál til enda. Ég er ekki viss um að Alþingi Íslendinga sé stætt á því að kveða upp úr um það með lögum, að Landsvirkjun verði virkjunar- og rekstraraðill þessara virkjana, án þess að semja um það við Landsvirkjun og eigendur hennar. Hvernig ætla menn að standa að þessu? Auðvitað er nauðsynlegt að semja við Landsvirkjun um þessar virkjanir. En lætur nokkur maður sér detta í hug að Landsvirkjun reisi og reki þessar virkjanir án þess að eiga og reka línurnar frá virkjununum? Ég veit ekki hvort menn láta sér detta það í hug. Auðvitað yrði Landsvirkjun að yfirtaka stofnlínurnar líka. Halda menn virkilega að um það þurfi ekki að gera samninga með hverjum hætti það fer fram? Halda menn virkilega að Alþingi Íslendinga geti einhliða með lögum ákveðið að Landsvirkjun og eignaraðilar hennar taki þetta að sér án þess að tala við þá? Ég er hræddur um að þar einfaldi menn málið glettilega mikið. Menn eru sennilega búnir að gleyma því, að það er ekki ýkja langt síðan þess var freistað einmitt að ná samningum um eitt heildarorkuvinnslufyrirtæki. Þeir samningar voru á sínum tíma felldir í borgarstjórn Reykjavíkur. Við skulum ekki vera allt of bjartsýn á það, þó að vonandi fari vel, að það takist að ná samningum við Landsvirkjun um allt þetta mál.

Ég segi það alveg eins og er, að ég vil eiga þá útleið, ef engin leið er að ná samningum um þetta mál, að ríkisstj. geti þá samið við annan virkjunaraðila. Það er engin önnur leið fyrir ríkisstj. en að eiga þann möguleika líka. En ég vil jafnframt leggja áherslu á að ég tel það algjört neyðarúrræði fyrir íslensku þjóðina að koma sér upp öðrum aðila til að sérhæfa sig í virkjun stórvirkjana. Landsvirkjun hefur reynslu og þekkingu til að byggja stórar virkjanir í landi okkar. Þá reynslu og þekkingu verðum við að nýta. Það væri mikið skref aftur á bak að þurfa að koma upp öðrum aðila til að sjá um slíkar framkvæmdir, í því tilviki að Rafmagnsveitur ríkisins þyrftu að sjá um þessa virkjun. En ég legg áherslu á að um þetta mál verða að takast samningar. Þá samninga getur ríkisstj. ekki gert undir þeim kringumstæðum að hún eigi engra kosta völ annarra en þeirra að ná slíkum samningum hvernig sem kringumstæður verða. Það er algjörlega útilokað. Allt tal þeirra manna, sem þannig tala, hlýtur að falla dautt ef þeir hugsa málið.

Ég vil síðan leggja áherslu á að ég hygg að þess dags muni lengi verða minnst meðal íslensku þjóðarinnar þegar þetta frv. um raforkuver var lagt fram á Alþingi Íslendinga. Hér er lagt fram frv. um stórhuga virkjunarframkvæmdir. Hér er lagt fram frv. þar sem óskað er heimilda til gífurlegra framkvæmda í orkumálum, og stefnuyfirlýsing ríkisstj. er að ljúka þeim framkvæmdum á 12 árum, — stefnuyfirlýsing um virkjunarhraða sem raunar er forsenda stuðnings Framsfl. við virkjunarfrumvarpið. Hér er um að ræða stórhuga stefnumörkun í orkuframkvæmdum og orkunýtingu. Þetta frv. boðar einhverja stórfelldustu uppbyggingu í orku- og iðnaðarmálum sem íslenska þjóðin hefur litið fram á þennan dag. Með framlagningu þessa frv. er lögð áhersla á að afla fjár til að hraða undirbúningsframkvæmdum við virkjanir fram yfir það, sem gert var ráð fyrir í byrjun þessa árs, og er þess vegna feiknalega mikilvægt. Þetta frv. markar þá stefnu, að gjaldskrá um heildsölu á raforku verði sú sama um allt land. Þar er stórt skref stigið. Þetta frv. aflar heimilda til þess að ráðast nú þegar í byggingu stíflu við Sultartanga til að leysa þau ísvandamál, sem Íslendingar hafa staðið frammi fyrir við rekstur Búrfellsvirkjunar, og stórfellda vatnaveitu við Kvíslaveitu.

Þetta frv. aflar heimilda til meiri framkvæmda í orkumálum en nokkur ríkisstj. hefur nokkurn tíma farið fram á frá Alþingi Íslendinga. Þetta frv. aflar heimilda til að semja við virkjunaraðila um þessar virkjunarframkvæmdir. Það aflar heimilda til að reyna að sameina þjóðina um einn stóran virkjunaraðila, aðilann sem rekur þessar virkjanir. Þar er mikið starf fyrir höndum. Þess vegna er nauðsynlegt að fá þá heimild sem fyrst. Þetta frv. markar þá stefnu að Alþingi taki síðan afstöðu um röð einstakra framkvæmda á haustþingi.

Þetta frv. um orkuframkvæmdir, sem hér liggur fyrir nú, sýnir íslenskri þjóð hvert ríkisstj. vill stefna í orkumálum og uppbyggingu atvinnumála, ekki bara á næsta áratug, heldur fram til aldamóta, og boðar þess vegna stórfelldari og merkari stefnumörkun í orkumálum en nokkur ríkisstj. hefur nokkurn tíma lagt fram á Alþingi. Þetta frv. boðar þess vegna stórhuga sókn til bættra lífskjara íslensku þjóðarinnar í orkusveltandi heimi.