13.05.1981
Neðri deild: 93. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4342 í B-deild Alþingistíðinda. (4417)

320. mál, raforkuver

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Ég vil ekki láta þessari umr. ljúka þannig að segja ekki nokkur orð vegna þess að við erum hér að fjalla um mál sem er mikilvægara fyrir okkur en flest annað á yfirstandandi tíma. Ég mun þó ekki halda hér langa ræðu, enda margir búnir að taka til máls og taka ýmislegt það fram sem ég vildi segja um þessi mál.

Ég held að nauðsynlegt sé að átta sig á í raun og veru, hvernig staðan er í orkumálum, og hugleiða hvað er líklegt að muni gerast á næstunni. Því er spáð af ýmsum, að orkuverð í heiminum muni halda áfram að hækka. Heyrt hef ég að menn hafi jafnvel spáð því, að það olíuverð, sem nú er, eigi eftir að þrefaldast á tiltölulega fáum árum. Ef þeir, sem þessu spá, sjá rétt fram í tímann hlýtur okkur að vera ljóst hvað við eigum mikla möguleika og mikinn auð í fallvötnum okkar. Það sýnir okkur líka að við ættum ekki að þurfa að flýta okkur að semja við aðra um hvernig við nýtum þessa orku.

Það eru nokkuð mörg ár þangað til við förum að framleiða þá orku sem við erum að fjalla nú um. Þjóðin stendur í þeim sporum nú — og hefur gert að undanförnu, að það hefur verið verulegur skortur á raforku. Þó að það breytist til batnaðar á næstunni held ég að alrangt sé að stefna að því, um leið og teknar verða ákvarðanir um virkjanir, að fara að semja við aðila um orkufrekan iðnað. Ef þessir spádómar reynast réttir, sem ég vil ekki leggja dóm á, er líklegt að það verði innan stutts tíma hagkvæmt að framleiða hér eldsneyti fyrir okkur sjálfa. Ef orkuverðið hækkar gæti maður vænst þess að tækniþróuninni á því sviði mundi fleygja fram á stuttum tíma. Fróðir menn segja mér að líklegt sé að eftir tiltölulega stuttan tíma sé hægt að fara að undirbúa slíka framleiðslu. Við eigum mikið undir því að tryggja okkur þannig að við gætum sem mest verið sjálfum okkur nægir að þessu leyti. Þegar maður hefur þetta í huga væri óskynsamlegt — ef maður trúir að þetta breytist þannig — að fara að ráðstafa orkunni nú t. d. í ár eða á næstu tveimur árum. Ég vil því halda því fram, að sú stefna, sem kemur fram í þessu frv., sé rétt, hún sé skynsamleg og við megum ekki láta hrekja okkur af þessari leið.

Hitt er annað mál, að við höfum í raun og veru ekki markað skynsamlega atvinnumálastefnu í landinu að mínum dómi. Menn ræða jafnvel um stórfyrirtæki á fámennum stöðum — fyrirtæki sem mundu raska öllu í kringum sig. Við verðum að sníða stakkinn eftir vexti, og þegar við ræðum um fyrirtæki, a. m. k. á hina smærri staði, mega það ekki vera svo stór fyrirtæki að það raski öllu sem þar er fyrir. En nóg um það að sinni.

Hins vegar hef ég ekki verið sáttur og er ekki sáttur við hvernig hefur verið staðið að rannsóknum á virkjunarkostum á undanförnum árum. Það eru 20 ár síðan það var gefið út að t. d. væri jafnhagkvæmt að virkja Jökulsá á Fjöllum og Þjórsá. Síðan er staðið þannig að því, að það er farið að athuga með að flytja Jökulsá á Fjöllum austur á land. Eftir því sem mér er tjáð er alveg hætt við að athuga það í alvöru hvernig eigi og sé hægt og hagkvæmast að virkja Jökulsá á Fjöllum. Ég verð að átelja að það sé þannig staðið að málum. Það væri gaman að fá upplýsingar um hvað er búið að eyða miklu fjármagni í það eitt að velta því fyrir sér að koma Jökulsá á Fjöllum austur á land. Það mundi kannske upplýsa dálítið hvernig fé er sóað að mínum dómi í hreina vitleysu. Þar er ekki um að sakast við þann orkuráðh. sem hér situr, ég vil taka það fram. Það eru syndir annarra.

Ég verð líka að átelja að það hefur ekki verið athugað um Skjálfandafljót. Ég hef ekki mikla þekkingu á þessum málum og ætla ekki að fara að tala þannig, en ég hef athugað þetta með mönnum sem hafa sérþekkingu á þessu sviði, og þeir telja að það sé mjög álitlegt að virkja Skjálfandafljót. Skjálfandafljót er ekki á eldvirka svæðinu. Ég verð að leggja á það áherslu að það verði athugað eftir því sem hægt er. Það þarf náttúrlega að sitja fyrir að rannsaka þær virkjanir sem við þurfum að byrja á, það er mér ljóst. En ég vil að svo verði haldið áfram að athuga þessa valkosti því að allt bendir til þess að við þurfum að halda áfram að virkja, a. m. k. ef sú sýn rætist, sem við sjáum sumir hverjir, að við gætum e. t. v. farið að framleiða eldsneyti fyrir okkur sjálfa eftir 10 eða 12 ár.

Það er sagt í þessu frv. að ríkisstj. geti heimilað Landsvirkjun að gera ráðstafanir sem nauðsynlegar þykja til að tryggja rekstur orkuveranna á Þjórsársvæðinu og koma vinnslugetu þeirra í eðlilegt horf, m. a. með Kvíslaveitu o. s. frv. Hvað felst í þessu? Ekki veit ég hvort það er satt, en það hafa sagt mér menn, að úr einhverjum kvíslum úr Skjálfandafljóti hafi verið gerður skurður þannig að þær séu farnar að renna suður af. Það.er ekki nóg að það eigi að láta norðlensk fallvötn fara austur, heldur líka suður. Ég vil hafa fyrirvara um að verið sé að ásælast vatn frá okkur Norðlendingum. Við höfum nóg með okkar vatn að gera í framtíðinni. Ef staðið er sæmilega að þessum málum á Þjórsársvæðinu, en ég held að orðið hafi veruleg mistök í sambandi við framkvæmdir þar ekki síður en kannske við Kröflu, ef farið væri út í þá sálma, þá ætlast ég til að vatn okkar Norðlendinga sé látið í friði.

Ég er sem sagt ánægður með heildarstefnuna í þessu frv. og ég vil endurtaka að ég legg áherslu á að við flýtum okkur hægt í sambandi við það að ráðstafa orkunni og sjáum hvernig mál þróast í veröldinni í kringum okkur. Mér sýnist að það verði jafnvel líklegt, ef þróunin verður sú sem ég var að geta um, að keppst verði um að fá að kaupa orkuna, og við þurfum sannarlega á því að halda að fá það verð fyrir hana sem hægt er.

Hér hefur verið margt gott sagt í kvöld, en eitt ætla ég að láta duga að taka undir til þess að þessi umr. fari ekki langt fram á nótt. Það kom fram í máli hv. þm. Ólafs Þ. Þórðarsonar að við verðum í sambandi við þessa stefnumörkun í virkjunarmálum að krefjast þess, að landsbyggðin fái orkuna á sama verði og þéttbýlisstaðirnir til sömu nota. Við getum aldrei byggt upp iðnað úti í hinum smærri stöðum nema svo verði. Það er ekki nóg að fá orkuna í heildsölu á sama verði. Við verðum að tryggja þessum fyrirtækjum að þau fái orkuna á sama verði. Ég veit að þar verður að sjálfsögðu á móti að koma nýtingartíminn. Við verðum að reyna að koma því þannig fyrir að hafa hann þá jafnlangan miðað við orkuverðið. En við komum ekki á skynsamlegri atvinnumálastefnu öðruvísi en menn búi við það sama hvar sem er á landinu að þessu leyti.