13.05.1981
Neðri deild: 93. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4351 í B-deild Alþingistíðinda. (4420)
320. mál, raforkuver
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Það vill svo til að ég er yfirleitt í þeirri aðstöðu að skilja mætavel að þegar líður á kvöld er það vel þegið að menn stytti mál sitt, og þá aðferð ætla ég að nota. Enn fremur taldi ég eðlilegast að tala strax, enda hafði hæstv. iðnrh. óskað eftir því að svara að loknum ræðum manna og þar sem hann var aðeins einn eftir á mælendaskrá vildi ég ekki nota aðstöðu mína til að skáka mér aftur fyrir hann, enda eðlilegast, eins og ég segi, að hann fái til þess tækifæri í lok 1. umr. að taka saman svör við því sem fram hefur komið.
En ástæðan til þess, að ég stend hér upp, er aðallega einhver sérkennilegasta ræða sem ég hef heyrt í samanlagðri þingtíð minni, og það er ræða hv. 12. þm. Reykv. Hún var út í gegn stórkostlegar upphrópanir um stórhuga framkvæmdir, merkustu stefnumörkun sem um getur, mikilvægustu framkvæmdir í lífi þjóðarinnar o. s. frv., o. s. frv. Mér datt helst í hug að hann hlyti að enda ræðu sína á a. m. k. ferföldu húrrahrópi.
Hann þóttist vera einn læs á tölur og vændi menn æ ofan í æ um að þeir væru ekki læsir á það, sem frv. hefði inni að halda, og talaði þar náttúrlega með yfirlæti hins menntaða verkfræðings sem sér í lagi á að geta lagt rétt saman þegar um slík mál er að tefla. Hann fann út stórar tölur, en það kom að vísu engum á óvart sem hafði séð þessa frv.-ómynd. En hvers vegna hafði hann þá ekki áhrif á það að fleira væri tekið með af þessum speglasjónum? Því var ekki Austurlandsvirkjunin stóra tekin með, Jökulsá á Brú, Hafrahvammagljúfur, Jökulsá á Fjöllum, Dettifoss og Skjálfandafljót? Það hefði glatt gömul augu hv. 2. þm. norðurl. e., Stefáns Valgeirssonar. Þá hefðu komið út vænar tölur á reiknistokk verkfræðingsins og þá hefði verið hægt að halda áfram enn stærri upphrópunum um þessa stórhuga sókn — hina mestu í heimi, heyrðist mér hann helst segja.
Það vill nefnilega þannig til, að fyrir lifandi löngu var á hinu háa Alþingi flutt frv. til l. um ný orkuver og þar eru þessi orkuver öll sem gefa þessa stórkostlegu útkomu í orkuvinnslu. Það eru að vísu ekki heimildarlög. Það er frv. til l. sem fyrirskipar, mælir svo fyrir að ráðist skuli í hinar þrjár stóru virkjanir, fyrir utan stækkun Hrauneyjafoss sem allir eru sammála um. Þetta eru fyrirmæli og ekki leitað eftir neinum heimildum í því sambandi. Þannig er þessi stórkostlega stefnumörkun, sem menn hafa aldrei séð þvílíka í samanlagðri kristni. Hún hafði að vísu verið lögð fram um þessar virkjanir hér á Alþingi í frv.formi.
En það er eitt sem hv. 12. þm. Reykv. sniðgekk algerlega, er meginatriði málsins. Hann sniðgekk með öllu aðalinnihald í ræðu hæstv. orkuráðh. og þá stefnumörkun sem þar kom fram og öllu mali skiptir og lét eins og hann væri hinum megin á sjöstjörnunni. Það koma stórar tötur út úr þessum virkjunum, það er mikið rétt, en hvert var aðalinnihald í framsöguræðu hæstv. iðnrh. fyrir þessari frv.-ómynd? Hún var um það, sú nýbreytni sem ég kalla, hin nýja stefna hæstv. ríkisstj., að hverfa frá því að leita eftir kaupendum orkufrekum iðnaði til uppbyggingar. Þess vegna geta menn haldið áfram að raða saman möguleikum okkar, sem eru stórkostlegir í landinu, um þær virkjanir, sem hefur verið haft á orði að við getum ráðist í, og fengið út ótrúlegar tölur. En þær skipta engu máli ef við hefðum engin tök á að nýta þessa orku. Ég fann ekkert að röðun og ég fann ekkert að því sem hér er til nefnt að einu eða neinu leyti. Meginmálið, sem nú kemur fram, er að það er snúið þvert á leið frá því sem hafið var hér á sjöunda áratugnum. Mér fellur það þeim mun þyngra sem það virðist augljóst að sú stefnubreyting, fráhvarf frá stóriðjunni, muni ráða af dögum um hríð a. m. k. Fljótsdalsvirkjun, og það gefur að skilja.
Hitt er svo annað mál, að mönnum hlýtur að ofhasa að heyra framsóknarmenn taka stórt upp í sig um stórvirkjanir á Íslandi ef menn minnast skrifa þeirra þegar verið var að byggja álverið á sínum tíma, — álverið sem var forsenda þess, að við gátum byggt Búrfellsvirkjun, — ef ég rifja það upp fyrir mér að sú ógæfa henti að Framsfl. komst í ríkisstj. árið 1974 með Sjálfstfl. og gerspillti þá fyrir framgangi Fljótsdalsvirkjunar á sínum tíma með því að ná samningi við þáv. hæstv. orkuráðh., núv. forsrh., um að taka sprænuvirkjunina Bessastaðaárvirkjun fyrir, en ekki Fljótsdalsvirkjunina, eins og flutt hafði verið till. um þá. Ég hefði satt að segja ekkert orðið meira hissa á því þótt hæstv. iðnrh. hefði komið með heimildarfrv. um Bessastaðaárvirkjun núna, en ekki þessi býsn hér, og hann hefði endurtekið ákvörðun sína frá því að hann hraktist frá völdum eftir 13 mánaða stjórnina um að gefa út heimildarlögin um Bessastaðaárvirkjunina, eins og frægt var.
Það má ýmislegt til tína í handabakavinnu þessara hv. alþm. og hæstv. ríkisstj. Það er það sem ég hef lagt út af nær eingöngu í öllu mínu máli og mínum aðfinnslum og skiptir sköpum að horfið er frá þeirri stefnu sem ein getur fært okkur upp í hendurnar möguleikana á því að nýta alla þessa orku og fleyta okkur fram eins ört og við þurfum að gera á næstu árum til að ná fram lífsgæðunum. Á þessu veltur allt.
Það mátti heyra í máli manna, eins og hv. 2. þm. Norðurl. e., að það væri óskynsamlegt, eins og hann orðaði það, að fara að ráðstafa orkunni nú, orkuverð færi hækkandi. Það er alveg hárrétt. Hv. 12. þm. Reykv. minntist eitthvað á að menn yrðu líka að gá að sér því að það kynni að koma upp olía fyrir norðan. Það getur allt skeð. Það er mikið eftir. En hversu lengi ætla menn að bíða og hversu lengi ætla menn að láta þessa orku renna óbeislaða til sjávar og stilla upp slíkum spádómum út í bláinn. Sama var að heyra á hv. þm. Páli Péturssyni, hv. 1. þm. Norðurl. v., og honum gengur að vísu nokkuð annað til, stórtækt frv., en hann bað menn að flýta sér ekki um of, flas væri ekki til fagnaðar, og hann sagði að hæstv. iðnrh. hefði sem betur fer ekki kálfsótt. Það var ekkert að undra. Ég hélt að bóndinn vissi að kálfurinn fær ekki kálfsótt, heldur kýrin. Og hann til kynnti að ef það brysti í böndunum um samninga við Blöndu yrði það einhverjum vondum viðsemjendum að kenna, en ekki bændum. Það er nú að setja sig í samningastellingar, orðfæri á borð við þetta, eða hitt þó heldur. Ég ætla ekkert að ráða í hvort menn sitja á einhverjum svikráðum hver við annan innan hæstv. ríkisstj. um framkvæmd á hinum ýmsu orkuverum, það dettur mér ekki í lifandi hug, en allt er þetta með þeim hætti að ég örvænti um að mikilvægustu framfaramálin nái svo skjótum framförum sem ég tel lífsspursmál. Fyrir því er mér eins mikið niðri fyrir og raun ber vitni um. Og ég endurtek að ég tel alveg lífsnauðsyn að fá úr því skorið, hvort þessi stefna er orðin ríkisstjórnarinnar allrar og hvort þessi nýja stefna gegn stóriðju nýtur meirihlutafylgis á hinu háa Alþingi vegna þess að þá er mikið um breytt frá því sem verið hefur síðustu misserin.
Ég misheyrði ekkert í ræðu hæstv. iðnrh., en hafi ég misheyrt eitthvað og misfarið með það leiðréttist það. Ég mun athuga hana enn gaumgæfilegar eftir að hún verður prentuð. En í fyrsta skipti að mínu áliti, þótt oft hnigju orð hans í þá átt að vísu, tók hann af skarið um að það stendur ekkert til að afla okkur kaupenda að orku í stórum stíl. En á þetta minntist hv. 12. þm. Reykv. alls ekki, verkfræðingurinn sjálfur.
Ég endurtek það, eins og kom fram í ræðu hv. 6. þm. Norðurl. e. og ég hafði áður getið um, að samþykki á frv. þessu út af fyrir sig skiptir ekki nokkru lifandi máli.
Ríkisstj. hefur vitaskuld heimild til þess, eins og hún hefur gert, að athuga um framkvæmdir við þessar virkjanir, og það bannar henni áreiðanlega enginn að grípa til þeirra fjármuna sem þarna er lagt til. Það er margsinnis tíðkað að menn teita sér heimildanna eftir á ef þeir þurfa að nota fjármuni til gagnsamlegra hluta, enda kemur hér fram að það á að taka þetta allt fyrir í lánsfjáráætlun, þó síðar verði, og röðun og ákvarðanir að takast fyrir af hinu háa Alþingi. Allt er þetta með þeim hætti að veldur stórkostlegum vonbrigðum.
Ég bendi á það upp á vinnubrögð, eftir því sem ég sé fyrir, að þetta mál muni, ef á að þrýsta því fram með miklu afli hér á hinu háa Alþingi, kosta gífurlegan tíma. Þá vil ég í allri vinsemd benda mönnum á það ítrekað að auðvitað breytir engu þó að það nái ekki samþykki nú og ekki fyrr en á haustdögum. Maður skyldi þá vona að hæstv. ríkisstj. væri búin að fá eitthvað fastar undir fætur um hvernig hún ætlar að standa að framkvæmd þessara stórmála.