13.05.1981
Neðri deild: 93. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4354 í B-deild Alþingistíðinda. (4421)
320. mál, raforkuver
Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Það væri ástæða til að ræða þessi mál hér talsvert áfram. Ég ætla þó ekki að taka langan tíma í viðbót við framsöguræðu mína, en rétt að víkja að örfáum atriðum sem mega teljast fsp. og beint var til mín. Að ýmsu hefur verið vikið af talsmönnum ríkisstj. hér og ekki síst í skörulegri ræðu frá hv. 12. þm. Reykv., sem hæstv. forseti þessarar deildar var að finna að að hefði flutt mál sem honum líkaði ekki. Það undrar mig út af fyrir sig ekki að það félli ekki þar í frjóa jörð fremur en sá málflutningur sem ég hafði uppi er ég mælti fyrir þessu frv.
Fyrir utan umr. hér í deild í dag höfum við heyrt viðhorf úr röðum stjórnarandstöðunnar einnig í ríkisfjölmiðlum og hefur það allt verið nokkuð á einn veg. Þó er það ekki einlitt. Það hafa komið fram raddir sem vekja vonir um að það megi ná þokkalegri samstöðu um afgreiðslu þessa máls. Ég minni sérstaklega á hv. 5. þm. Suðurl., sem talaði hér sem talsmaður síns flokks eða fyrstur Alþfl.-manna í umr. og gat þess sérstaklega að hann mundi greiða götu þessa máls hér í gegnum þingið. Hv. 6. þm. Norðurl. e. lofaði ekki heitum stuðningi við málið að vísu, en ég treysti því, að hann verði einnig í hópi þeirra sem vilja greiða fyrir málinu.
Það var að því vikið í máli eins hv. þm. að fjölmiðlar hefðu getið um að stórtíðindi væru í vændum í sambandi við framlagningu þessa frv. Það er athugunarefni út af fyrir sig hvernig fjölmiðlar og þá ríkisfjölmiðlar eigna mönnum orð sem þeir segja ekki, enda ekki við mig rætt í þessu tilviki. Hefði út af fyrir sig verið ástæða til þess fyrir viðkomandi fjölmiðla að biðja opinberlega afsökunar á slíku. Það var aðeins gert persónulega í þessu tilviki. Mér hafði að sjálfsögðu aldrei dottið í hug að fara að lýsa þessu frv., sem hér var í vændum, sem stórtíðindum. Það verður hver og einn að meta hvað eru tíðindi og hvort þau eru stór. En í mínum huga er það býsna stórt mál að með þessu frv., sem hér er fram lagt, er mótuð um það stefna að reistar skuli í fyrsta sinn tvær stórar virkjanir utan Suðurlands, og það eru stór tíðindi fyrir fólk í þeim landshlutum og eiga ekki að vera minni tíðindi fyrir fólk á Suðurlandi, sem býr við nákvæmlega sömu áhættu og öryggisleysi af því að virkjunum hefur ekki verið dreift með skynsamlegum hætti um landið.
Ég skil afar vel að hv. talsmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýni þetta frv. og hafi margt á hornum sér í sambandi við það. Einn hv. ræðumaður hér í umr., hv. 6. þm. Reykv., tók tíma í að bera saman þau frv. sem hafa komið fram hér í sambandi við virkjunarmál. Ef menn hafa lagt við eyra hafa þeir fundið í hans ræðu að vissulega er ýmislegt keimlíkt í sambandi við hugmyndir um framkvæmdir og áherslu á framkvæmdir í virkjunarmálum í þessum frv. Ég held því að það sé ekki ástæða fyrir menn að ýkja um of það sem á milli ber þó að þetta frv., sem hér er lagt fram af ríkisstj., sé að sjálfsögðu með mun viðameiri bakgrunn en þau frv. sem stjórnarandstaðan lagði hér fram fyrr á þessum vetri til þess að sýna sinn lit, sem eðlilegt er, og var annað þeirra flutt í hv. Ed.
Það hefur hins vegar komið fram hjá hv. talsmönnum stjórnarandstöðunnar allmótsagnakenndur málflutningur. Flestir vilja telja frv. gagnslítið, en aðrir telja að það sé mjög bölvað, að dráttur verði á undirbúningi og stefnumörkun þar að lútandi, og vilja gera sem minnst úr þeirri stefnumörkun sem í frv. felst. Það, sem er óráðið í þessu frv. af þeirri stefnumótun um röðun framkvæmda sem menn gjarnan vilja sjá fram úr, er hvor hinna umræddu tveggja stóru virkjana utan Suðurlands verði fyrr tekin í gagnið, og við höfum enn þá ráðrúm til að átta okkur betur á því máli og reyna að ná um það þokkalegum friði og sáttum þegar sú ákvörðun verður tekin. En það er afar þýðingarmikið — og það vænti ég að allir hv. alþm. skilji — að hægt sé að halda undirbúningi þessara mála áfram og ekki síst að hægt sé að semja við væntanlegan virkjunaraðila og hafa heimildir þar að lútandi og það liggi fyrir stefna í þeim málum. Ég vænti þess, að þeir samningar, sem gert er ráð fyrir að verði við Landsvirkjun um að hún taki að sér það verkefni að reisa og reka þessar virkjanir og annað sem þarf að taka upp í þeim efnum, mæti velvild og skilningi hjá forustu Landsvirkjunar. Ég veit að menn átta sig á því í vaxandi mæli að það er hin vænlegasta stefna að mynda hér eitt öflugt orkuöflunarfyrirtæki, þó að það eigi ekki að einoka allt, það eigi að vera hægt að reisa minni virkjanir, litlar virkjanir á annarra vegum með samkomulagi og þannig að vel fari rekstrarlega.
Hv. 6. þm. Reykv. spurði sérstaklega um fyrirhugaða áfangaskiptingu Fljótsdalsvirkjunar. Ég get vísað til grg. með frv. þar sem þetta kemur fram með nokkuð skýrum hætti. Það er talið vænlegt að skipta þessari stærstu virkjun af þeim, sem hér er leitað heimilda fyrir, þannig að í fyrri áfanga, sem kallaður er, verði um 220 mw. afl og 525 gígalítra miðlun með 724 gwst. orkuforða og í síðari áfanga verði 70–75 mw. afl með 220 gígalítra miðlun og 304 gwst. orkuforða. Samanlagt er þetta orkuforði yfir 1000 gwst. Það kemur fram í þessum verkfræðilegu athugunum, að stofnkostnaðurinn við síðari áfanga hleypir heildarkostnaði mjög óverulega fram, þannig að munurinn á því að skilja þarna sundur er um 28 millj. kr. Meira er það nú ekki af heildarkostnaði upp á 1762 millj., eins og það er áætlað nú, miðað við að virkjunin væri reist í einni lotu eða svo til í samfellu.
Hv. þm. úr Suðurlandskjördæmi hafa vakið athygli á því, að þeir hefðu kosið meiri áherslu á framkvæmdum á því svæði áfram. Þegar hv. þm. þessa landshluta líta á málin veit ég að þeir hafa vilja til að líta hlutlægt á þau. Þeir bera auðvitað hag sinna umbjóðenda og síns kjördæmis fyrir brjósti, eins og allir gera sem mæla fyrir fólk úr einstökum landshlutum. En þegar þeir sjá það svart á hvítu, í hve stórt er ráðist hér á næstu 4–5 árum og að það er leitað heimilda fyrir Sultartangavirkjun og það er opið í grg. frv. að sú virkjun geti einnig skarast við aðrar virkjunarframkvæmdir og falli innan þessa framkvæmdatímabils, þá trúi ég ekki öðru en þeir geti tekið undir það sanngjarna og skynsamlega sjónarmið að reistar verði í millitíðinni, áður en til þessarar virkjunar komi, virkjanir í öðrum landshlutum til þess m. a. að auka öryggi notenda á Suðurlandi og á þéttbýlissvæðinu hér syðra.
Það hefur komið fram í þessari umr. frá hæstv. forseta þessarar deildar mjög fróðlegt innlegg og skemmtilegt að vanda þegar hann tekur til máls. Ég á ekki betri stundir hér á Alþingi en þegar hann mælir hnyttyrði úr stól sínum, og ekki hlýjar það mér síður að heyra hann mæla hér vel valin og skýr orð fyrir sinni stefnu úr ræðustól hv. deildar. Og þó að sumt af því rifji upp minningar frá framboðsfundum á Austurlandi og minni á það kannske, að menn eigi eftir að leiða þar einhvern tíma saman hesta sína, þá hef ég síður en svo á móti því að hann lýsi hér þeirri stefnu sem sá hluti Sjálfstfl., sem ber saman ráð sín í Valhöll, hefur sett fram og flytur nú á fundum innan sem utan Alþingis, þeir sem ötulastir eru við og duglegastir að leika þá plötu. Hv. 4. þm. Austurl. er mjög ódeigur í málflutningi og ódeigur að fylgja fram fyrirmælum í sínum flokki, grípa til vopna. Sem dæmi um það á ég eitt ágætt sýnishorn af vopnfimi hans, þegar hann þjófstartaði á sínum tíma í sambandi við leiftursóknina. Hann varð fyrstur manna til að kynna þá herfræðiáætlun í blaði sjálfstæðismanna á Austurlandi, Þingmúla, og þar var nú ekki verið neitt að skera utan af hlutunum, þar skyldi allt beinskorið inn í merg, og það liggur hér fyrir. Og sami maður vill taka stórt á í orkumálum, en þó ekki í iðnaðarmálum á vegum okkar Íslendinga, og það skil ég vel því að hann vill ekki leggja mikla fjármuni af Íslendinga hálfu í uppbyggingu iðnfyrirtækja í landinu. Sú skoðun, sem hv. 4. þm. Austurl. hefur hér flutt, er nákvæmlega sama skoðun og kemur afar skýrt fram í boðskap formanns Sjálfstfl., hv. 1. þm. Reykv., í Morgunblaðinu 12. maí. Þar geta menn lesið sér til um málflutninginn. Ég ætla ekki að eyða tíma hv. þd. í að fara að lesa þann fróðleik sem þar stendur, en aðeins vitna þar til orða sem eru svohljóðandi, þar sem verið er að vitna til vanrækslu minnar í sambandi við iðnaðaruppbyggingu:
„Sannleikurinn er sá, að það krefst útsjónarsemi og ákveðinnar sölumennsku ef við ætlum að vekja áhug manna fyrir að reisa slík fyrirtæki hér á landi og selja þeim þá orku sem við getum framleitt úr okkar orkulindum.“
Annað er í svipuðum dúr og miklar áhyggjur yfir því, að forstjóri Alusuisse, eigandi álversins í Straumsvík, muni vera eitthvað hvumpinn þessa daga og óvissa um að hægt sé að laða hann til að standa hér fyrir tvöföldun eða stækkun álverksmiðjunnar í stórum mæli, eins og æskilegt virðist talið af þessum hv. talsmönnum Sjálfstfl.
Ég ætla síður en svo að hafa á móti því að stefna af þessu tagi sé framreidd hér á Alþingi, og ég held að það sé mjög gott fyrir hv. þm. og ekki síður fyrir landsmenn alla að átta sig á þeim kostum, sem hér er um að ræða, þeim stefnum sem hér er deilt um í sambandi við atvinnuuppbyggingu í landinu. Það kemur mér satt að segja á óvart þegar menn, sem ég á von á að séu varkárir í ályktunum, eins og hv. 2. þm. Suðurl., skuli vilja telja það hina einu réttu leið að ætla sér að laða útlendinga hingað til atvinnustarfsemi og atvinnuuppbyggingar í landinu. Þessir menn eru allir í sjöunda áratugnum, í viðreisnaráratugnum, með þann hugsunarhátt sem þá ríkti og leiddi til samninganna um álverið í Straumsvík á sama tíma og Íslendingar voru njörvaðir með annað stórmál, landhelgismálið, auðlindir sjávarins, af nauðungarsamningi við erlenda þjóð. Ég trúi ekki öðru en góðir menn innan Sjálfstfl., og það fleiri en eru nú innan hæstv. ríkisstj., eigi eftir að snúa frá þessari braut á svipaðan hátt og þeir áttuðu sig loksins í sambandi við landhelgismál Íslendinga. Ég vænti þess sannarlega. Og ég tók eftir því, að hv. 6. þm. Reykv. tók varfærnislega til orða í þessum efnum. Hann talaði svipað og ég geri um að það geti verið æskilegt og nauðsynlegt að eiga ákveðið samstarf við útlendinga í sambandi við markaðsfærslu afurða og fleira af því tagi svo og öflun tækniþekkingar, og hann rétt minntist á að það gæti komið til greina að þeir ættu einhverja eignaraðild að fyrirtækjum. Við höfum ekki slegið naglann fastar í Alþb. en svo, að við höfum ekki útilokað að slíkt gæti komið til greina í einhverjum tilvikum, svo að ég þykist sjá að það séu ekki allir sem hugsa með sama hætti um þessi efni innan raða stjórnarandstöðuliðs Sjálfstfl.
Hv. 4. þm. Austurl., sem hefur talað hér tvisvar og sent mér ágætar kveðjur, furðaði sig mjög á framsöguræðu minni og taldi að þar væri um einhvern nýjan boðskap að ræða frá hæstv. ríkisstj. Það er nú kannske ekki hægt að lá hæstv. forseta deildarinnar þótt hann lesi ekki stjórnarsáttmálann kvölds og morgna, en hann hefði mátt glugga í hann og fskj. í þessu frv. til l. um raforkuver. Á bls. 144 í frv. er að finna kaflann um iðnaðarmál úr stjórnarsáttmála ríkisstj. og þar stendur alveg ljóslega að ríkið skuli stuðla að uppbyggingu nýiðnaðar, þ. á m. orkufreks nýiðnaðar, enda verði slíkur nýiðnaður og frekari stóriðja á vegum landsmanna sjálfra. Ég held að ég hafi nú ekki hamrað járnið fastar en þetta í minni framsöguræðu í dag, og þetta hefðu ekki átt að þykja nein stórtíðindi. En eitthvað hefur þetta komið við kvikuna hjá hv. þm., og ég vænti þess, að hann komi sinni vantrauststillögu á framfæri fyrr en seinna, ef hann ætlar sér þá ekki að láta reyna á málin síðar meir á vettvangi á Austurlandi þar sem hann telur að ég sé að fremja eitthvert pólitískt sjálfsmorð, eins og hann orðar það. Hann þarf ekki að hafa þungar áhyggjur af því.
Ég vil að endingu segja að í þessu frv. er kveðið á um framkvæmdaröðun í mikilvægum atriðum og það er kveðið á um að það skuli innan skamms skorið úr um það sem á vantar. Ég vil líka taka það fram, að í sambandi við þær virkjanir, sem hér er leitað heimildar fyrir og ætlunin er að reisa á 10–15 ára tímabili, er ekki, hvorki þjóðhagslega né fyrir einstaka landshluta, allt undir því komið hver er fyrstur í röðinni. Menn mega ekki haga sér í þessum stóru málum eins og börn í leik. Menn verða að reyna að laða menn til sameiginlegra ákvarðana sem reistar séu á skynsamlegum rökum. Í grg. með þessu frv. er ráð fyrir því gert, að ákvarðanir verði byggðar á þjóðhagslegu mati og öryggi raforkukerfis okkar. Það hlýtur að vera það þýðingarmesta fyrir þjóðarheildina og alþm. verða að reyna að ná því í stórum málum að taka saman. Það er hins vegar mjög mikilvægt fyrir þjóðarheildina að koma sér upp úr því spori að virkja aðeins í einum landshluta og standa þannig að undirbúningi að menn komist ekki út úr því fari. Í því höfum við setið fastir of lengi. Við þurfum að dreifa virkjunum í landinu, við þurfum að dreifa iðnaðaruppbyggingu í krafti þessara virkjana um landið og við þurfum að dreifa áhættu sem því fylgir ef við virkjum einangrað og höfum einhliða áherslu í sambandi við atvinnuuppbyggingu okkar. Liður í þessu er að geta jafnað orkuverð í landinu, jafnað raforkuverðið. Og þó menn gangi ekki lengra en svo að jafna heildsöluverðið er það stór áfangi. Hér var talað um 25% verðmun í smásölu. Það er alveg rétt. Slíkur verðmunur er í smásölu hjá notendum víða um land, hjá viðskiptavinum Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða, en það hefur þó stórlega dregið úr þessum mun s. l. tvö ár. Það er rétt að hafa það í huga líka. Það er stefnumið áfram að draga enn frekar úr honum.
Við erum minnt á það, sem eðlilegt er, og eigum að fagna því, yfir hverjum auði við búum í orkulindum okkar. Það kemur fram í fskj. með þessu frv. að magn vatnsafls og jarðvarma er meira en fyrir hefur legið áður. Ef menn líta á yfirlit þar að lútandi í fskj. er það metið, að þrátt fyrir friðlýsingu Þjórsárvera og þótt það miðlunarrými verði ekki notað nema takmarkað í gegnum Kvíslaveitu þar sem 40% af rennsli Efri-Þjórsár koma að gagni, þrátt fyrir þetta þýðingarmikla verndarskref í sambandi við Þjórsárver er gert ráð fyrir tæknilega hagnýtanlegu vatnsafli upp á nær 30 þús. gwst. og að unnt eigi að vera að virkja nærri annað eins í minni virkjunum víða um landið, ef þörf verður talin á, þannig að magn þess vatnsafls, sem hagkvæmt sé að virkja í landinu, sé í raun til muna meira ef vel er athugað og samkv. því mati sem nú er að koma fram frá Orkustofnun. Hið sama gildir raunar um jarðhitann.
Við Íslendingar þurfum að nýta þessar auðlindir út frá okkar forsendum. Við þurfum að hagnýta þær til þess að treysta undirstöður atvinnulífs og lífskjara í landinu. Við eigum að gera það með því að standa sjálfir fyrir því sem við ráðum við í atvinnulífi, og við ráðum við hagnýtingu þessara þátta einnig fjármagnslega, eins og skynsamlegt er talið að fara í þessi mál. Við eigum líka fólk með vaxandi þekkingu, sem fær reynslu af glímu við viðfangsefnin. Við eigum ekki að standa á stigi hálfnýlendunnar. Við eigum að standa á stigi sjálfstæðrar þjóðar í sambandi við okkar atvinnurekstur og atvinnuuppbyggingu. Að því miðar sú stefna sem hér er fram sett. Ég vænti þess að þeim fjölgi óðum sem undir hana taka.