14.05.1981
Neðri deild: 94. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4361 í B-deild Alþingistíðinda. (4436)
290. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég mæti hér fyrir nál. fjh.- og viðskn. á þskj. 818, en vil sérstaklega taka það fram, að aðrir munu mæla fyrir sérstökum framhaldsnál. sem varða þetta mál.
Ég vil aðeins í upphafi rifja það upp, að með breytingum á skattalöggjöf fyrst 1978 og síðan 1980, sem voru mikilvægar breytingar, var tekið mjög stórt og mikilvægt skref í okkar baráttu gegn verðbólgu og okkar tilraunum í þessu þjóðfélagi til þess að berjast gegn meinsemdum verðbólgunnar. Menn hafa fært sér verðbólguna í nyt um langt skeið, aukið tekjur sínar með því að spila á það hjól. Menn hafa komist yfir eignir, ekki með því að vinna fyrir þeim með hörðum höndum, heldur með því að taka lán, skulda og láta verðbólguna sjá um það sem eftir er. Þetta hefur skapað gífurlegt óréttlæti í þjóðfélaginu og verðbólgan hefur að sjálfsögðu gert það á ýmsum öðrum sviðum. Ráðdeildarmönnunum var refsað, en hinum var verðlaunað ríkulega.
Ég get e. t. v. spurt hverjir það séu sem vilji byggja upp og viðhalda slíkri þjóðfélagsþróun. Þeir eru í reynd margir sem hafa hagsmuna að gæta í þessu sambandi og vilja halda áfram að byggja fyrst og fremst á verðbólguspekúlasjón. Þeir eru margir sem eru svo fastir í formi vanans og hins gamla að ekkert má hreyfa. Þrátt fyrir þetta hefur verið gerð hér mikil umbylting, — umbylting sem er að sjálfsögðu ekki ágallalaus og mikil gagnrýni hefur komið fram varðandi hana. Sumt af gagnrýninni er byggt á rökum, en margt er byggt á misskilningi og vanþekkingu.
Fjh.- og viðskn. hefur í störfum sínum leitast við að viðhalda því víðtæka samkomulagi sem hefur náðst um þessi mál hér á Alþingi. Allir nm. eru sammála um að það sé mjög mikilvægt og hafa allir lagt sig mjög fram til þess að svo megi verða. Nm. hafa að sjálfsögðu legið undir margvíslegum þrýstingi að hafa ýmislegt með öðrum hætti, en þeir hafa talið mikilvægara að reyna að halda því víðtæka samkomulagi og þeirri festu sem hefur skapast í kringum þessi mál.
Frv. þetta hefur verið rætt á fjölmörgum fundum fjh.og viðskn. beggja deilda og hafa þeir fundir bæði verið langir og strangir. Vil ég færa nm. bestu þakkir fyrir mjög gott samstarf í sambandi við afgreiðslu þessa máls. Með n. störfuðu Árni Kolbeinsson deildarstjóri í fjmrn., Ævar Ísberg settur ríkisskattstjóri og einnig kom á fund n. Ólafur Nílsson löggiltur endurskoðandi. Til fundar við n. komu fulltrúar frá Vinnuveitendasambandi Íslands og aðildarfélaga þess og með nál. er prentuð umsögn frá þeim aðilum, en þeir sendu n. einnig margar brtt. sem ekki fylgja hér með í nál. Þá komu aðilar frá Stéttarsambandi bænda, sem sendu einnig skriflegt álit og fylgir það hér með, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, en þessir aðilar sendu ekki skriflegt álit. Þá komu einnig til viðtals við n. fulltrúar frá Sambandi ísl. sveitarfélaga og sendu þeir skriflega ályktun sem fylgir nál. Stutt bréf kom frá Félagi ísl. stórkaupmanna, en það féll niður að birta það með nál.
Nefndin flytur sameiginlega brtt. á þskj. 830 sem ég mun gera fyrst og fremst hér að umræðuefni. Um önnur atriði er ekki samkomulag en þessi atriði sem fram koma í þessum sameiginlegu brtt., og munu einstakir nm. gera grein fyrir sjónarmiðum sínum hér í umr. og í sérstökum nál.
1. brtt., sem við gerum á þskj. 830, er í sjálfu sér ekki umfangsmikil. Það eru í landinu tvær svokallaðar hálfopinberar stofnanir: Fiskifélag Íslands og Búnaðarfélag Íslands. Það hefur verið nokkur vafi um hvort þær teldust opinberar stofnanir í skilningi þessara laga. Ég tel í sjálfu sér að ekki hefði þurft þessa breytingu í því sambandi, en það er til þess að taka af tvímæli um að þessar stofnanir séu taldar með opinberum stofnunum varðandi skattskyldu. Þetta á að sjálfsögðu eingöngu við um þá starfsemi sem þessir aðilar reka nú, og ég vil taka það skýrt fram, að skattfrelsi opinberra stofnana getur ekki náð til þess að farið sé út í víðtækan atvinnurekstur.
Í 2. brtt. er smávægileg orðalagsbreyting við 7. gr. laganna, en það er út af fyrir sig mjög mikilvæg grein sem n. leggur til að verði áfram í lögunum, en frv. hafði gert ráð fyrir að yrði felld út. Sú grein fjallar um það, að maður, sem vinnur við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, skuli telja sér til tekna eigi lægra endurgjald fyrir starf sitt en hann hefði innt það af hendi fyrir óskyldan eða ótengdan aðila. N. gerir þá till. að orðalagi þessu verði breytt og í staðinn fyrir „eigi lægra endurgjald“ komi orðin: sambærilegt endurgjald. Það hafði alltaf verið ætlunin með þessu ákvæði að gera atvinnurekendum með sjálfstæða starfsemi svipuð skattaleg réttindi og launþegum og leggja á herðar þeim svipaðar skattalegar skyldur. Það mun hafa verið nokkuð um það, að menn hafi reiknað sér mjög hátt og óeðlilega hátt endurgjald til þess að geta dregið frá hinn svokallaða 10% frádrátt og þess vegna er nauðsynlegt að taka af tvímæli hér um.
Í 3. brtt. er gerð um það tillaga, að námsmenn geti dregið frá námskostnað eftir ákveðnum reglum eða ígildi námskostnaðar eftir 20 ára aldur að námi loknu. Slíkt ákvæði var í fyrri lögum. Þá var gert ráð fyrir að námsmenn þyrftu að gera grein fyrir kostnaði sem þeir yrðu fyrir á námstímanum, og þeim var heimilt að draga þá upphæð frá á 5 ára tímabili. Í brtt. er hins vegar gert ráð fyrir að einfaldari háttur verði hafður á, þ. e. að námsmaður geti dregið frá tekjum þann námsfrádrátt, sem nýttist honum ekki til lækkunar á tekjuskatti eftir 20 ára aldur, í 5 ár eftir að námi er lokið og dreifa frádrættinum jafnt yfir tímabilið. Það er að sjálfsögðu nokkuð algengt að námsmenn geti ekki nýtt sér þennan frádrátt, kannske ekki síst vegna þess að þeir hafa ekki möguleika til að afla sér það mikilla tekna meðan á námi stendur, verða síðan að greiða þann kostnað, sem þessu hefur verið samfara, að námi loknu og því þykir eðlilegt að ekki aðeins þeir, sem hafa haft tækifæri til að vinna sér inn miklar tekjur á námstímanum, geti notið þessara réttinda, heldur sé einnig hægt að flytja þessi réttindi til í tíma og nýta frádráttinn að námi loknu.
4. brtt. er til komin vegna annarra breytinga og þarfnast því ekki skýringar.
Um 5. brtt. vil ég segja það, að í 14. gr. frv. er lagt til að kveðið sé á um heimild til viðbótarfyrningar þegar sérstaklega stendur á eða þegar mikill munur er á verðbreytingafærslu til tekna og gjaldfærðum fjármagnskostnaði ársins. Sem dæmi má nefna aðila sem keypt hefur fyrnanlega eign að hluta eða öllu með skuldaviðurkenningu sem ber vexti sem eru langt undir verðbólguhlutfallinu. Ætla má að kaupverð hafi í slíku tilviki verið ákveðið hærra en ella vegna greiðsluskilmála. Því þótti eðlilegt að heimila hraðari fyrningu af þessum sökum. Ég vil í þessu sambandi segja það, að það hefur verið allalgengt í viðskiptum manna í milli hér á landi á undanförnum árum, bæði í atvinnurekstri og eins á fasteignamarkaði, að tiltölulega hátt verð væri ákveðið sem greiðsla fyrir viðkomandi eign, en hins vegar hafi lán henni tengd verið með mjög hagstæðum kjörum eftir því sem gengur og gerist í almennu fjármálalífi. Við þetta skapast misræmi sem erfitt er að taka til í þessum lögum, en með þessari breytingu eru menn að leitast við að finna reglu sem tekur tillit til þessa misræmis. Að mínum dómi hlýtur hún að verða tímabundin vegna þess að ég er ekki í nokkrum vafa um að þessir samningar munu breytast, m. a. vegna áhrifa frá skattalögum, því að meðferð vaxtatekna hefur verið gerbreytt í skattalegu tilliti. Hins vegar er þessi grein nauðsynleg eins og nú standa sakir.
6. brtt. er til komin vegna annarra breytinga og þarfnast því ekki skýringa.
7. brtt. er við 17. gr. frv., þess efnis, að greinin falli niður. Í þessari 17, gr. var lagt til að fyrningar væru skertar hjá þeim aðilum þar sem hreinar tekjur eru undir 5% af heildartekjum. Það komu fram andmæli frá nær öllum umsagnaraðilum varðandi þessa breytingu. N. telur að þessa grein beri að fella niður. Það er mjög erfitt að miða afskriftir með einhverjum hætti við heildartekjur fyrirtækis. Það er afskaplega mismunandi hversu stór þáttur afskriftirnar eru. Sérstaklega er það í allri tæknivæðingu, sem við stefnum að í þessu þjóðfélagi, að tæknin verður sífellt mikilvægari og stærri kostnaðarþáttur varðandi tekjuöflun fyrirtækja. Reglur, þar sem afskriftir miðast við heildartekjur, hljóta því að vera andstæðar þessum sjónarmiðum og verða þess valdandi að draga úr tæknivæðingu og fjárfestingu til framleiðslustarfsemi. Hitt er svo annað mál, að ef menn telja að þessi kostnaðarþáttur, þ. e. afskriftirnar, sé með einhverjum hætti oftalinn í íslenskum skattalögum, þá er miklu eðlilegra að lækka fyrningarhlutfallið. Ég vil þó í því sambandi geta þess, að þetta fyrningarhlutfall var lækkað mjög verulega við setningu skattalaganna á s. l. ári og lækkað þó nokkuð mikið frá því sem reiknað var með í lögunum frá 1978. Einnig er mjög varhugavert og erfitt í framkvæmd að ætla sér nú að fara að breyta afskriftarreglum fyrir árið 1980 með það í huga að mjög margir hafa þegar lokið við að ganga frá sínum uppgjörum.
8. brtt. er til komin vegna annarra breytinga og þarfnast ekki skýringa.
9. brtt. er við 20. gr. frv. Að því er einstaklinga varðar eru mjög mismunandi reglur viðhafðar um fjármagnskostnað og verðbreytingafærslu eftir því, hvort um er að ræða eignir og skuldir, sem tengjast atvinnurekstri, eða ekki. Af þessum sökum er nauðsynlegt að skilja í milli þess hluta eigna og skulda einstaklinga, sem tilheyra atvinnurekstrinum, og hins vegar þeirra eigna og skulda, sem ekki eru honum viðkomandi. Þetta er mjög miklum erfiðleikum háð og í þessari 19. gr. er kveðið skýrar á um þessi atriði. Hins vegar takmarkar 5. mgr. 53. gr. laganna svokallaða tekjufærslu hjá ógjaldfærum aðilum, t. d. gjaldþrota aðilum, og n. er því samþykk því meginsjónarmiði, að slík takmörkun eigi að líta til allra eigna og skulda viðkomandi skattaðila, en telur hins vegar eðlilegt við beitingu þessara reglna að undanskilin séu verðmæti einkaeigna til persónulegra nota og skulda tengdra þeim, allt að tiltekinni fjárhæð, eins og fram kemur í brtt., eða nánar tiltekið 50 millj. gkr., en öll framtöl á árinu 1980 eru í gömlum krónum.
10. brtt. er við 22. gr. frv. Gert var ráð fyrir því í frv. að svokölluð 59. gr. félli niður, en hún fjallar, eins og allir munu væntanlega vita, um ákvörðun launa við eigin atvinnurekstur og tengist 7. gr. laganna. Eftir ítarlegar athuganir og viðræður við ýmsa aðila hefur n. komist að þeirri niðurstöðu, að ekki sé rétt að gera þær breytingar á lögunum, að svokölluð 59. gr. falli niður í einu og öllu. Í því sambandi vill n. benda á eftirfarandi atriði:
1. Með slíkri ákvörðun mundu aðilar, sem reka eigin starfsemi, missa rétt til 10% frádráttar frá þeim þætti teknanna, sem rekja má til vinnuframlags þeirra, og yrðu að því leyti verr settir en launþegar sem vinna hjá ótengdum eða óskyldum aðilum. Þetta eru að sjálfsögðu mikilvæg réttindi sem n. þótti mikilvægt að viðhalda til þess að allir gætu verið jafnir að því leyti. Ekki er nokkur vafi á því, að ýmsir aðilar með smárekstur mundu hafa tilhneigingu til þess að stofna félög, sjálfstæðan aðila til að greiða skatta, til þess að teljast þá launþegar hjá því félagi til að viðhalda þeim réttindum. Ég held að allir geti verið sammála um að það sé mjög óæskilegt að skattalöggjöf knýi menn og hvetji til þess að stofna sérstök félög um alla starfsemi. Bæði er það, að félögin bera ekki sömu ábyrgð og einstaklingarnir, þ. e. eignir einstaklinganna eru ekki tengdar ábyrgðum hlutafélaga, og það er á allan hátt mjög óheppilegt að fara að fjölga félögum í landinu utan um slíkan smáatvinnurekstur. Það kostar mikla fjármuni að standa að stofnun slíkra félaga, og það kostar líka mikla fjármuni að viðhalda allri pappírsvinnu í kringum slíka félagsstarfsemi. Ég tel að með þessu sé komið í veg fyrir slíka óheillaþróun sem ég er ekki í nokkrum vafa um að mundi hafa hafist.
2. Lágtekjumenn, sem vinna við eigin atvinnurekstur, hefðu ekki getað nýtt sér þau réttindi sem felast í því að persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Þvert á móti gerði 25. gr. frv. ráð fyrir að svo skyldi alls ekki verða. Nefndin telur rétt að reynt sé að gæta þess, að sem mest samræmi sé í skattlagningu aðila hvort sem þeir vinna við eigin atvinnurekstur eða hjá öðrum ótengdum aðilum. Með því að afnema þessa grein með öllu er hætt við og reyndar ljóst að sá tilgangur laganna hefði raskast og lágtekjumenn með sjálfstæða starfsemi hefðu misst þessi mikilvægu réttindi, og það hefði hvatt þá og kannske knúið þá til þess að fara út í stofnun hlutafélaga eða sameignarfélaga um sína starfsemi.
3. Það hefur ekki farið fram hjá neinum, að mikil gagnrýni hefur komið fram varðandi þessa grein og framkvæmd hennar, m. a. hér á Alþingi. Nefndinni þótti nauðsynlegt, bæði með tilliti til þessa og þeirrar vinnu sem hún hefur í þetta lagt, að umsemja ákvæðin og gera þau skýrari og ótvíræðari þannig að betur megi koma fram við hvað er átt. Helstu nýmæli eru þau, að skattstjóri er nú berlega skyldaður til þess að skora skriflega á framteljanda að láta í té skriflegar skýringar á framtöldu endurgjaldi studdar nauðsynlegum gögnum. Berist ekki fullnægjandi skýringar eða gögn innan tilskilins tíma skal skattstjóri ákveða honum endurgjald fyrir starfið. Með þessu eru lagðar mun ótvíræðari skyldur en nú er á skattstjóra áður en hann breytir framtöldu endurgjaldi skattþegns samkv. 7. gr. Að vísu voru slíkar skyldur að mínu mati fyrir, en það mun hafa komið fyrir, að nokkur misbrestur væri hér á, og því þykir rétt að taka hér af öll tvímæli.
Einnig eru sett nánari ákvæði um svokallaðar viðmiðunarreglur, en þar er gert ráð fyrir að þær miðist'við laun fyrir sambærileg störf í venjulegum vinnutíma, í því sambandi skuli höfð hliðsjón af gildandi kjarasamningum og raunverulegum tekjum í viðkomandi starfsgrein. Slík ákvæði voru ekki fyrir, en með þessu eru settar ákveðnari og skýrari reglur þannig að ríkisskattstjóri geti haft þær til eftirbreytni.
Þá skal ríkisskattstjóri einnig setja almennar reglur um framkvæmd þessarar greinar til að tryggja samræmi í framkvæmd hennar um land allt, en það mun hafa verið eitthvað um það og við höfum sannanir fyrir því, að slíkt samræmi hafi ekki verið fyrir hendi. Það er e. t. v. óþarfi að taka það fram sérstaklega varðandi þessa grein þó að það sé hér gert því að að sjálfsögðu þarf að tryggja í einu og öllu samræmi í meðferð skattamála í landinu. Það er að sjálfsögðu algerlega óþolandi að slíkt samræmi sé ekki fyrir hendi. En hitt verður að viðurkenna, að framkvæmd skattamála er mjög erfið, sérstaklaga þegar svo stendur á að breytingar á lögum eru eins síðbúnar og nú er og einnig var á s. l. ári, og væri ástæða til að strengja þess heit að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að svo þurfi ekki að vera framvegis. Ég óttast að það muni taka skattkerfið nokkurn tíma að jafna sig eftir það mikla álag sem á það hefur komið bæði á s. l. ári og eins mun verða í ár.
Varðandi bændur og viðmiðunarreglur, er þeim tengjast og mjög voru gagnrýndar á s. l. ári, ekki síst vegna þess að mjög erfitt árferði var í landbúnaði á s. l. ári, er tekin upp sú regla, að það skuli áfram miðað við vinnuþátt í verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurða, en þó að frádregnum 1/3. Það er kunnara en frá þarf að segja, að þó að ákveðinn vinnuþáttur sé í verðlagsgrundvelli landbúnaðarafurða er það alls ekki trygging þess, að viðkomandi bóndi nái þeim tekjum, og miklu algengara að svo sé ekki. Þess vegna þótti n. nauðsynlegt að taka enn frekara tillit til þessara aðstæðna og draga þennan hluta vinnuþáttarins í verðlagsgrundvelli frá við ákvörðun viðmiðunartekna.
Þá er einnig gert ráð fyrir því, að ekki skuli myndað tap á rekstri vegna útreiknings endurgjalds hjá elli- og örorkulífeyrisþegum. Það mun hafa komið fyrir að tekjutrygging þessara aðila hafi verið skert vegna ákvörðunar skattstjóra. Nefndin telur mjög óheppilegt, að slíkar reglur verði til þess, og vill taka af öll tvímæli um það. Einnig kemur fram í brtt. n. að við ákvörðun viðmiðunartekna skuli taka tillit til launatekna frá öðrum. Það er að sjálfsögðu algengt í öllum atvinnurekstri, að margir reyna, meðan þeir eru að koma sér fyrir, að fara í vinnu annars staðar og leggja mjög að sér til þess að byggja upp sitt lífsviðurværi. Er að sjálfsögðu nauðsynlegt að taka tillit til slíkra aðstæðna og launatekna frá öðrum aðilum og því vildi n. taka af tvímæli í lögunum um að svo verði gert.
Að síðustu gerir n. ráð fyrir því varðandi 59. gr., að við ákvörðun skattstjóra samkv. þessari grein geti aldrei myndast tap nema sem nemur almennum fyrningum samkv. 38. gr. og gjaldfærslu samkv. 53. gr. Með þessu ákvæði er tryggt að ekki sé með reiknuðu endurgjaldi lagður skattur á peningalegar tekjur sem aldrei hafa komið í hendur gjaldanda. Þetta er það atriði sem mestri gagnrýni hefur valdið og ætti með þessu ákvæði þar með að vera komið til móts við þær raddir sem alls ekki hafa getað fallist á það sjónarmið, að mönnum væru reiknaðar tekjur sem aldrei hafa og e. t. v. aldrei munu koma í þeirra hendur. Þar af leiðandi er þetta mjög mikilvægt ákvæði.
Þess má geta í sambandi við þessa grein, að flestir þeir, sem komið hafa til viðtals við n., voru andvígir því að leggja 59. gr. laganna niður í einu og öllu. Þetta kom bæði fram í viðtölum og skriflegum umsögnum, m. a. þeim skriflegu umsögnum sem fylgja nál. Hins vegar kom fram hjá öllum þessum aðilum að þeir teldu nauðsynlegt að lagfæra helstu annmarka þessarar greinar. Ég tel að með tillögugerðinni hafi n. komið til móts við þá gagnrýni sem fram hefur verið borin, en hins vegar gætt þess, að mikilvæg réttindi þeirra, er stunda sjálfstæða starfsemi, falli ekki niður.
Ég vil einnig geta þess, að mjög ákveðin mótmæli komu frá sveitarfélögunum sem sáu fram á að tekjur þeirra mundu mjög lækka, sérstaklega í ýmsum fámennum sveitahreppum þar sem tekjur eru litlar. Hefði þetta getað orðið mjög afdrifaríkt fyrir hin ýmsu litlu sveitarfélög í landinu, ekki síst hinum svokölluðu sveitahreppum.
11. brtt. er komin til vegna annarra breytinga og þarfnast því ekki skýringa.
12. brtt. gerir ráð fyrir að breyta orðalagi í upphafi 66. gr. sem fjallar um heimild til lækkunar á tekjuskattsstofni, en þar stendur: „Heimilt er skattstjóra að taka til greina umsókn manns um lækkun tekjuskattsstofns þegar svo stendur á sem hér greinir.“ Í stað þess gerir n. till. um að orðalagið skuli vera: Skattstjóri skal — þ. e. skattstjóra sé gert skylt að taka til afgreiðslu umsókn manns um lækkun tekjuskattsstofns. Ég skal út af fyrir sig ekki um það fullyrða, hvort þessi orðalagsbreyting sem slík hefur mikil áhrif. Það má vel vera. En hitt er miklu mikilvægara, að fólk almennt í landinu fái vitneskju um þessar heimildir í lögum. Það þarf að senda slíka umsókn á sérstöku eyðublaði og ég hef oft rekið mig á að það eru mjög margir sem vita ekki um þennan rétt sinn. Það verður að ætlast til þess af hálfu yfirvalda, að þau geri meira í því að koma slíkum upplýsingum á framfæri. Þetta á við um ýmsar ástæður:
1. Ef ellihrörleiki, veikindi, slys eða mannslát hafa skert gjaldþol manns verulega.
2. Ef á framfæri manns er barn sem haldið er langvinnum sjúkdómi eða er fatlað eða vangefið og veldur framfæranda verulegum útgjöldum umfram venjulegan framfærslukostnað og mótteknar bætur.
3. Ef maður hefur foreldra eða aðra vandamenn sannanlega á framfæri sínu.
4. Ef maður hefur veruleg útgjöld vegna menntunar barna sinna 16 ára og eldri.
5. Ef maður hefur orðið fyrir verulegu eignatjóni sem hann hefur ekki fengið bætt úr hendi annars aðila. Eins og menn vita var það einmitt algengt nú fyrir nokkru að fólk hér í landinu varð fyrir mjög verulegu eignatjóni af völdum fárviðris sem það fékk ekki bætt með venjulegum tryggingabótum. Það er náttúrlega mjög mikilvægt, að þetta fólk viti af þessum heimildum í skattalögum, og fólkið fær ekki þennan frádrátt frá skatti nema það komi slíkum upplýsingum á framfæri við skattstjóra þannig að hann geti fjallað um það.
6. Ef gjaldþol manns hefur skerst verulega vegna taps á útistandandi kröfum, sem ekki stafa frá atvinnurekstri hans.
7. Ef maður lætur af störfum vegna aldurs og gjaldþol hans skerðist verulega af þeim sökum, en það kemur fyrir sérhvern mann sem kemst á eftirlaunaaldur og þarf að hætta störfum, að gjaldþol slíkra manna skerðist verulega þar sem ekki er um staðgreiðslukerfi að ræða hér í landinu. Slíkir aðilar eiga þennan rétt: að fara fram á lækkun á tekjuskattsstofni vegna slíkra atvika.
Ég rifja þetta upp hér vegna þess að ég held að það sé nauðsynlegt að nota ýmis tækifæri til að koma þessum upplýsingum á framfæri, og væri æskilegt að t. d. fjölmiðlar kæmu stikum upplýsingum á framfæri þannig að hver maður í landinu mætti vera sér meðvitandi um þennan rétt sinn.
Í 13. brtt. er gert ráð fyrir að 3. málsl. 25. gr. falli niður, en eins og ég hef áður getið um er óþarfi að hafa sérstakt ákvæði um beitingu reiknaðs endurgjalds að því er varðar ástæðuna að ónýttum persónuafslætti. Vísa ég til þess sem ég sagði varðandi 10. brtt.
14. brtt. þarfnast ekki mikilla skýringa, en þar er gert ráð fyrir að ná því fram, að ekki séu reiknaðir dráttarvextir af skattskuldum sem ekki eru gjaldfallnar. Var talið einfaldara að ná fram með breytingu á 112. gr. því marki sem stefnt var að í 31. gr. frv.
Með 15. brtt. er gert ráð fyrir að heildarfrádráttur opinberra gjalda af launum, þar með talið útsvar, megi ekki án samþykkis gjaldanda nema meiru en 75% af heildarlaunagreiðslu hverju sinni í þeim tilvikum þegar gjaldandi hefur mestan hluta tekna sinna frá einum launagreiðanda. Það hefur verið mjög gagnrýnt að tekið væri allt að 100% af launum manna vegna innheimtuaðgerða og þess vegna væri nauðsynlegt að auka rétt manna að halda einhverju eftir. Hitt er svo annað mál, að að sjálfsögðu eru svona ákvæði mjög vandmeðfarin, því að tilvikin eru mjög misjöfn. Skattur er greiddur eftir á og sveiflur eru miklar í tekjum. Menn eru mismunandi passasamir að standa skil á sínum gjöldum og menn losna alls ekki við skatt með þessu, heldur safnast þá þeim mun meiri skuld upp þannig að það þarf alls ekki að vera hagstætt fyrir aðila að nýta sér þann rétt sem þeim er þó hér gefinn.
16. brtt. varðar gildistöku, en í 17. brtt. gerir n. till. um að þar komi sérstakt ákvæði til bráðabirgða um athugun ríkisskattstjóra á tilteknum atriðum skattalaganna. Það kemur skýrt fram í brtt. og nál. við hvað er átt og sé ég ekki ástæðu til að rekja það frekar.
Ég vil aðeins að lokum geta þess, að við höfðum gert ráð fyrir því í fjh.- og viðskn. að athuguðu máli að flytja eina brtt. til viðbótar milli 2. og 3. umr., þess eðlis, að þegar þessi lög hafi hlotið staðfestingu skuli þau gefin út í heild sinni. Við teljum mjög mikilvægt að skattalögin fyrirfinnist í heild sinni. Það er mjög óheppilegt, að að þeim þurfi að leita á mörgum stöðum eins og stundum hefur verið, og þess vegna viljum við tryggja þetta með því að setja það sérstaklega í lög.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess í framsögu minni hér að gera frekari grein fyrir málinu. Ég vil aðeins ítreka það, að n. leggur til, að þessar brtt. verði samþykktar, en aðrir nm. munu sérstaklega gera grein fyrir sínum sjónarmiðum varðandi þessar brtt. og einnig varðandi aðrar brtt. og framhaldsnál. sem þeir hafa flutt.