14.05.1981
Neðri deild: 94. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4368 í B-deild Alþingistíðinda. (4437)
290. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. 1. minni hl. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Formaður fjh: og viðskn. hefur nú gert grein fyrir nál. á þskj. 818 sem allir nm. fjh.- og viðskn. standa að. Hann hefur jafnframt gert grein fyrir þeim brtt. sem n. flytur á þskj. 830, þ. e. allir nm., þeim sjónarmiðum, sem liggja til grundvallar þeim, og hvaða atriðum hér er verið að ná fram leiðréttingu á.
Ég vil leyfa mér í upphafi ræðu minnar að færa formanni fjh.- og viðskn., hv. 3. þm. Austurl., þakkir fyrir störf hans í fjh.- og viðskn. Og ég leyfi mér að fullyrða að allir nm. eru mér sammála þegar ég lýsi þeirri skoðun minni, að þá samstöðu sem fram kemur í því nál. sem hann hefur nú gert grein fyrir, og þá samstöðu, sem kemur fram í flutningi brtt. á þskj. 830, má kannske að miklu leyti rekja til þess, hversu vel hann hefur haldið þar á málum og hversu skynsamlegt hann hefur talið vera að viðhalda þeirri samstöðu varðandi breytingar á efnisatriðum þessarar löggjafar sem verið hefur allt til þessa.
Löggjöfin, sem nú gildir um tekju- og eignarskatt, var samþykkt hér á Alþingi 1978 og gilti um skattlagningu á tekjur og eignir manna árið 1979. Ég held að það hafi verið nokkuð sérstakt að slík löggjöf skyldi sett með svo miklum fyrirvara sem þar var, en undirbúningurinn hafði tekið mjög langan tíma og ekki að ástæðulausu því að hér var um að ræða miklar skipulagsbreytingar á þessum málum. Það var sjónarmið mitt, en ég hafði þá sem fjmrh. forustu um samningu þessarar löggjafar, að ekki kæmi til greina, að um afturvirkni yrði að ræða, heldur skýrt tekið fram að slíkar breytingar sem breytingar á skattalögum ættu ekki að vera afturvirkar. Það stríddi gegn minni réttlætisvitund og var kannske ekki óvefengjanlegt hvað snertir stjórnarskrána, auk þess sem hér var um að ræða svo veigamiklar breytingar frá því, sem verið hafði, að það var að mínum dómi með öllu óeðlilegt að menn hefðu ekki slíka löggjöf fyrir sér um nokkurn tíma og gætu gert sér fyllilega grein fyrir því, með hvaða hætti ætlað væri að fjalla um fjármál einstaklinga og félaga. Sú breyting, sem kannske skipti mestu máli, var að lögin tóku mið af þeirri miklu verðbólgu sem við höfðum búið við um nokkurt skeið, og var reynt með þessari löggjöf að sjá svo um að eignir manna mundu ekki brenna á báli verðbólgunnar lengur. Það hlaut því að verða töluvert langur tími þangað til löggjöfin væri í raun og veru búin að fá sína eldskírn, og ég lýsti því einmitt þá, að ég gerði mér fullkomlega grein fyrir því, að breytingar yrði að gera að fenginni reynslu.
Frá þeim tíma hafa verið gerðar á löggjöfinni breytingar eftir því sem reynslan hefur leitt í ljós að gera þyrfti. Um þær hefur tekist það samkomulag sem ég vék að áðan og ég gat um að formaður fjh.- og viðskn. hefur átt sinn þátt í. En ég held að það hafi sem betur fer verið sjónarmið allra nm., sem í fjh.- og viðskn. hafa setið á þeim tíma, að skynsamlegast væri að koma fram breytingum með þessum hætti og vega og meta þau sjónarmið, þá gagnrýni og þær brtt. sem fram hafa komið. Það hefur að vísu verið þannig að frumvörpin hafa fyrst og fremst varðað efnisatriði frv., einstaka þætti og uppbyggingu þess, en síðan verið flutt sérstaklega frumvörp um ákvörðun skattstiga og skattþrepa sem vissulega hefur ekki orðið samstaða um, enda ekki við því að búast að um samstöðu þar að lútandi væri að ræða. Ég varð þess vegna fyrir nokkrum vonbrigðum þegar ég sá þetta frv. og vissi af framlagningu þess, að hér skyldi í sama frv. verið með tillögur um breytingar á efnisatriðum og tillögur sem sneru að skattstigum, sneru að skattheimtu ríkisins sem fyrir fram var vitað að ekki yrði samstaða um. Ég hefði kosið að frv. um þessi mál hefðu verið tvö og að sjálfsögðu hefðu þau verið flutt hér á þingi miklu fyrr á þessu ári en raun ber vitni.
Frv. er allt of seint fram komið og það er annað árið í röð sem slíkt gerist, og þar sem um er að ræða íþyngjandi ákvæði eru þau afturvirk þar sem verið er að ræða um skattlagningu hluta fjármálaskuldbindinga sem gerst hafa á s. l. ári. Þó eru vissar undantekningar í þessu frv., en þá er það yfirleitt, þegar um léttingu á sköttum er að ræða, að gildistaka þeirra er bundin fram í tímann þar sem framtalsfrestir eru löngu útrunnir hjá einstaklingum og því ekki hægt fyrir þá að koma fram þeim atriðum sem þar um ræðir.
Af þessu frv., þ. e. þeim greinum þess sem fjalla um tekjuöflun ríkisins, er ljóst mál að núv. ríkisstj. hyggst halda áfram að auka skattaálögur. Með samþykkt fjárlaga var ljóst hvert stefnt væri, og þetta frv. er nánast flutt til staðfestingar á því sem þá var ákveðið. Tekjuskatturinn hækkar einfaldlega vegna þess að skattþrepum er breytt og skattvísitalan er önnur en hún raunverulega ætti að vera. Þegar tekjuauki er yfir 50% á milli ára er gengið út frá skattvísitölu 145 stig. Þá er í þessu frv. talað um loforð ríkisstj. um lækkun skatta til þess að auka kaupmáttinn, en lækkunin hefur týnst í kerfinu, eins og það hefur verið orðað, og forustumenn launþegasamtaka, sem komu á fund fjh.- og viðskn., lýstu því yfir, að þeir teldu ekki ómaksins vert að reikna út kaupmáttaraukninguna miðað við þetta frv., en þeir treystu sér hins vegar ekki til þess að láta n. í té skriflegar umsagnir um þessi atriði. Þetta sýnir að sjálfsögðu að forustumönnum þessara samtaka hefur orðið á mikil skyssa þegar félagsmálapakkinn var samþykktur um áramót. Þá var ekki gengið frá því, með hvaða hætti þessi skattalækkun ætti að verða til þess að tryggja framgang þessara mála. Þannig er þetta frv. til þess, eins og ég sagði áðan, að auka enn á skattbyrðina sem var þó nóg fyrir. Á áratugnum 1971–1980 höfðu skatttekjur ríkissjóðs aukist sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu miðað við áratuginn 1961–1970. Umskiptin urðu 1971 þegar fyrri vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar tók við völdum og skatttekjur ríkisins jukust sem hlutfall af þjóðarframleiðslu allt fram til ársins 1977, að þá tókst að lækka þetta hlutfall niður í 25%. En því var einnig þannig varið með skattbyrðina sem hlutfall af tekjum greiðsluárs. Hún hafði aukist verulega í upphafi áratugarins, en það hafði tekist að ná fram lækkun þannig að 1977 var skattbyrðin 10.6%. En hvort tveggja gerðist eftir stjórnarskiptin 1978, að hlutur ríkisins af þjóðarframleiðslunni jókst og skattbyrðin hjá einstaklingum jókst líka. Á s. l. ári,1980, sýnast bráðabirgðatölur fela í sér að enn verði aukning á hlut ríkissjóðs í þjóðarframleiðslunni og að skattbyrðin muni síst minnka.
Ef vikið er að árinu 1978, þegar önnur vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar tók við völdum og setti ný skattalög, setti lög um afturvirka skatta, og til dagsins í dag er ljóst að skattheimtan hefur aukist verulega. Má meta dæmið svo að um sé að ræða 800 millj. kr., þ. e. 80 milljarða gkr., sem skattborgararnir í landinu greiði meira á árinu 1981 heldur en þeir hefðu gert ef skattalög þau, sem giltu 1978, hefðu fengið að vera óbreytt. Þetta þýðir 15 þús. kr. á hverja fjögurra manna fjölskyldu, þ. e. vísitölufjölskylduna, eða 1.5 millj. gkr. sem hver fjölskylda verður að greiða meira til ríkisins nú heldur en þá. Og það sýnist ekkert lát verða á þessu, áframhald á aukningu skatta, og það þýðir að sjálfsögðu minna ráðstöfunarfé hjá skattborgurunum. Og þeir, sem töluðu hæst 1978 um samningana í gildi og allt það og nú hafa tækifæri hér á Alþingi til þess að koma fram leiðréttingum, þeir standa að þessu, þeir rétta upp höndina mörgum sinnum á ári til þess að auka skattbyrðina hjá borgurunum á sama tíma og þeir standa að því að minnka kaupmátt tekna. Það er dálitið annar hugsunarháttur hjá þessum aðilum í dag heldur en var þá, og ég fæ ekki annað séð af því, sem hér gerist, en að viðkomendur séu þannig hugsandi að þeim sýnist þetta vera allt í besta lagi.
Nú er það svo að það duga ekki einu sinni til þessar auknu skatttekjur, sem lagðar eru á borgarana, og að kaupmátturinn minnkar. Ríkið þarf meira til sín en þetta og það kemur fram í aukinni erlendri lántöku. Erlendar skuldir ríkisins á árinu 1981 verða hærra hlutfall af þjóðarframleiðslunni en nokkurn tíma áður. Jafnvel dugar ekki lengur að miða við árið 1975, sem var slæmt, til þess að finna eitthvert ár sem gæti verið verra. Jafnvel árið 1975, þegar þjóðarframleiðslan minnkaði verulega, það ár dugar ekki til þess að samanburðurinn við árið 1981 geti staðist. Hvað er hér verið að gera? Skyldu menn ekki þurfa að borga skuldirnar? Jú, hér er einfaldlega verið að leggja á skatta fram í tímann. Það er einfaldlega verið að þyngja skattbyrðina fram í tímann. Það er ekki aðeins skattbyrði dagsins í dag, þegar kaupmátturinn rýrnar, sem þessir ágætu menn eru hér að samþykkja, heldur eru þeir um leið að samþykkja aukna skattbyrði í nánustu framtíð. Þannig stendur málið einfaldlega með auknum erlendum lántökum meira en nokkru sinni fyrr, sem verður að sjálfsögðu að borga, hærra hlutfalli af þjóðarframleiðslu en jafnvel 1975, og þá er nú viðmiðunin orðin nokkur með tilliti til þess, að minnkun þjóðarframleiðslu varð á því ári eins og menn muna.
Þetta er megininntakið í þessu frv. hvað snertir skattheimtuna, skatttekjurnar til ríkissjóðs, og eins og ég sagði áðan: þeir sem ræddu mjög um að kosningar væru kjarabætur, kosningabaráttan væri kjarabætur, samningana í gildi, þeir standa nú fyrir því hér á Alþingi að gera þetta svona. (Gripið fram í: Er ekki verið að ræða um skattalög?) Það er verið að ræða um skattalög og það er verið að ræða m. a. um ákveðna grein í skattalögunum. Ef hv. þm. hefur ekki áttað sig á því, hvað 25. gr. frv. felur í sér, þarf hann nú að gera sér betur grein fyrir því áður en til atkvgr. kemur. 24. og 25. gr. frv. fjalla um skattaálögur, sem eru auðvitað hluti af skattalögum. Ég vék einmitt að því áðan, að það hefði verið skynsamlegra að hafa þetta eins og verið hefur undanfarin tvö ár, að við fjölluðum sérstaklega um breytingar á efnisatriðum laganna, í sérstöku frv., og síðan um skattheimtuna og breytingar á skattalögunum, ef ástæða hefði þótt til, í sérstöku frv. En vegna þess að hér er um að ræða frv., sem fjallar um þessi efni hvor tveggja, hlýtur málið að verða rifjað upp, hvort sem mönnum fellur það betur eða verr. Ég get vel skilið hv. þm. Ég hins vegar met það við hann að hann er viðstaddur nú, en ekki einhvers staðar utan bæjar eins og áður hefur kannske komið fyrir. En nóg um það.
Þetta frv., sem við fjöllum um, er tvíþætt og þeim hluta þess, sem fjallar um skatttekjur ríkissjóðs, hef ég gert nokkur skil, m. a. með tilliti til þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað á undanförnum árum. Hins vegar er hér um að ræða enn eitt sjónarspil ríkisstj. því að með efnahagslöggjöfinni frá því um áramót var lýst yfir að skattar skyldu lækkaðir til þess að auka kaupmátt sem svaraði 1.5%. Það er vissulega til þess að taka eftir því þegar forustumenn launþegasamtakanna mæta á fundi í fjh.og viðskn, og vikið er að því, hvernig þetta standist, að þá svara þeir og segja að það sé ekki ómaksins vert að vera að reikna þetta frv. út með tilliti til þess. (Gripið fram í: Hver sagði þetta?) Forustumenn Alþýðusambands Íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja þegar þeir mættu á fundi í fjh.- og viðskn. Nd. (Gripið fram í.) Við gerum í nál. grein fyrir því, að forustumenn þessara samtaka komu þar á fund og höfðu þetta orðalag, en þegar þeir voru spurðir hvort þeir væru ekki reiðubúnir til þess að koma með skriflega umsögn, þá töldu þeir það nánast óþarfa því að hér væri ekki um neitt að ræða sem þeir teldu rétt að setja á pappír. Það er ljóst, eins og ég sagði áðan, að skattbyrðin verður hin sama, ef þá ekki verður þar um aukningu að ræða. Við fengum frá Þjóðhagsstofnun álit hennar á því, hverjir spádómar væru þar um þetta, og birtum það sem fskj. með okkar nál. Þar gerir Þjóðhagsstofnun ráð fyrir að álagðir skattar sem hlutfall af tekjum greiðsluárs 1981, miðað við markmið ríkisstj. í verðbólgumálum að sjálfsögðu, verði 13.5%. 1979 var talan 13.3%, spádómarnir 1980 voru 13.7%, þannig að ekki verður séð á þessu að eitthvað hafi verið komið til móts við aðila í þessum efnum.
Hinn þáttur þessa frv., þ. e. varðandi efnisatriðin, er að mínum dómi nokkuð sérstæður og í grg. frv. kemur fram sjónarmið sem ég hafði ekki átt von á að kæmi frá rn. þegar um væri að ræða eitthvað sem aflaga hefði farið í sambandi við framkvæmd löggjafar. Ásamt því að koma fram ýmsum lagfæringum og breytingum sem reynslan hefur leitt í ljós að þarf að gera á þessari löggjöf og þm. gerðu sér sumpart grein fyrir áður eru lagðar til í frv. veigamiklar breytingar, efnisbreytingar, sem eru fram komnar vegna þess að menn gefast upp við að framkvæma löggjöfina. Út frá því sjónarmiði, að fella skuli niður ákveðnar greinar, er farið að breyta öðrum, farið að gera breytingar á þýðingarmiklum greinum fyrir atvinnulífið aðeins til þess að þjóna því, hvernig ríkiskassinn komi til með að líta út.
Í 17. gr. frv. er gert ráð fyrir að takmarka mjög fyrningar þær, sem lögin gera ráð fyrir, og áformað í þeirri grein að skerða fyrningar ef hreinar tekjur af rekstri viðkomandi fyrirtækis ná ekki 5% af heildartekjum. Þá er talin ástæða til þess að þrengja að atvinnurekstrinum sem vissulega á í vök að verjast. Þessar tillögur vinna að mínum dómi gegn endurnýjun framleiðslutækja og draga úr mögulegum afköstum.
Þá er í frv. lagt til að felld verði út 59. gr. frv. þar sem gert var ráð fyrir að einstaklingum í atvinnurekstri væru reiknuð laun undir ákveðnum kringumstæðum. Ástæðan fyrir því, að lagt er til að fella 59. gr. út, er að yfirstjórn skattamála hefur gefist upp við að ná fram skynsamlegri og tilætlaðri framkvæmd á þessari grein. Ég hefði talið að af hálfu þeirra, sem með þessi mál fara, hefði átt að athuga þessa grein afar vel og áður en slík till. væri gerð hefði átt að athuga gaumgæfilega, í hverju mistökin væru fólgin, og miklu frekar semja að því máli athuguðu nýja grein og reyna að halda því fyrirkomulagi sem lögin gera ráð fyrir, eins og ætlað var að þau yrðu framkvæmd.
Í nál. á þskj. 818 er gerð grein fyrir þeim breytingum sem n. flytur, og þær ganga einmitt þvert á frv. Lagt er til að fella niður 17. gr. þess og unnin hefur verið ný hugmynd að 59. gr. og lagt til að þannig verði hún í lögum. Ég verð að segja að það var mjög athyglisvert, þegar nm. unnu að þessu frv., hvernig menn voru reiðubúnir til þess að leggja sig fram um að ná samstöðu, einfaldlega vegna þess að það var ekki lítil gagnrýni sem hafði komið fram á framkvæmd þessarar greinar sér í lagi. Um leið og ég er að gagnrýna þessi atriði frv. vil ég segja, að það er góðs viti að slík samstaða hefur náðst og að fulltrúar allra flokka hafa getað tekið höndum saman um að koma fram leiðréttingu og að fjmrh. hæstv., sem flytur frv., lítur ekki svo á að þar megi ekki gera á breytingar ef menn telja það skynsamlegra og betra. Ég endurtek: ég tel að með slíkum vinnubrögðum getum við búið betur um þá löggjöf sem svo þýðingarmikil er sem löggjöfin um tekju- og eignarskatt.
Á þskj. 840 höfum við fulltrúar Sjálfstfl. leyft okkur að flytja brtt. við frv. Sumar þeirra hafa áður sést á þskj. Um þær náðist ekki samkomulag að þessu sinni í fjh.- og viðskn. En ég vil alls ekki líta svo á að þótt ekki hafi náðst samkomulag geti ekki einhverjir þeirra, sem eru þar fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna, verið hugmyndunum samþykkir enda þótt þeir telji á þessu stigi ekki möguleika á að þær nái fram að ganga. Ég lít ekki heldur svo á að þó að flm. tillagnanna séu við sjálfstæðismenn í fjh.og viðskn., þá séu þessar till þess eðlis að t. d. fulltrúi Alþfl. í fjh.- og viðskn. geti ekki á þær fallist enda þótt hann sé ekki í þetta skiptið flm. að þeim, umfram það sem fram kemur á þskj. þar sem hann flytur sérstakar tillögur við frv.
Það er ljóst mál og hefur lengi verið í stefnu sjálfstæðismanna, að sköttum verði að stilla þannig í hóf að það lami ekki athafnaþrá manna, og við höfum haft það sjónarmið, að heildarskattprósentan fari ekki upp fyrir 50%. Við höfum líka verið þeirrar skoðunar, að tekjuskatt bæri að afnema í áföngum á almennum launatekjum og á meðan því sé ekki lokið verði tekjuskattur lækkaður verulega á þeim lægst launuðu og aukið svigrúm til þess að nýta persónufrádrátt til greiðslu opinberra gjalda. Það er að vísu gert ráð fyrir því nú í frv., að ónýttan persónuafslátt sé hægt að nýta til greiðslu útvars. Hér er því gengið til móts við það sjónarmið, en alls ekki alfarið. Við erum enn fremur þeirrar skoðunar, að eignarskattar verði aldrei með þeim hætti að þeir hreki fólk úr eigin húsnæði, og svo að sjálfsögðu, að skattar á fyrirtækjum séu með þeim hætti að þeir hamli ekki gegn æskilegri uppbyggingu og framþróun atvinnulífsins. Í samræmi við þessi meginsjónarmið okkar sjálfstæðismanna eru brtt. á þskj. 840 fluttar, og skal ég gera stuttlega grein fyrir þeim.
1. brtt. gerir ráð fyrir að arður af hlutafé sé skattfrjáls eins og um sparifé væri að ræða, og auk þess er í till. gert ráð fyrir að hlutafé verði eignarskattsfrjálst líka. Hér er um að ræða að gera hlutafé jafnt sparifé. Ég vek athygli á því, að að undanförnu hefur sparifé í vaxandi mæli verið verðtryggt og það þýðir að sjálfsögðu að hlutafé á í erfiðri samkeppni við sparifé eða nánast það að hægt er að ávaxta sparifé með þeim hætti sem nú er.
Þá er í 2. brtt. gert ráð fyrir að gjöld af skuldum við Lánasjóð ísl. námsmanna, þ. e. vextir og verðbætur, verði frádráttarbær eins og um væri að ræða lán sem hefur verið notað til öflunar íbúðarhúsnæðis eða til endurbóta á því. Við teljum að þegar námsmaður hefur lán frá Lánasjóði sé um að ræða nokkurs konar fjárfestingu og því eigi að fara með fjármagnsgreiðslur eða fjármagnskostnað af þeirri lántöku með svipuðum hætti.
Í 3. brtt. er gert ráð fyrir að sú flýtifyrning, sem í lögum er og þar er áætluð 50%, verði það áfram í stað þess að frv. gerir ráð fyrir að þessu sé breytt í 40%. Að vísu er í frv. bætt við flýtifyrningu undir vissum kringumstæðum, og þar sem gert er ráð fyrir 4% möguleika í frv. er í brtt. n. lagt til að hækka þá prósentu í 6%. Ég met það svo að hér sé verið að aðstoða undir þeim kringumstæðum þar sem um mikla tekjufærslu sé að ræða á móti gjaldfærslu og því eðlilegt að koma þar til móts við þá aðila, því að vissulega er ekkert að gerast annað en að menn eru að fyrna fyrr en þeir gætu, sem þýðir að sjálfsögðu að það verður ekki aftur tekið.
Í 4. brtt. er að finna þá skattstiga sem við leggjum til, og þeir byggjast á þeim skattalögum og þeim skattstigum og skattþrepum sem voru 1977 þegar ríkisstj. sat í þessu landi undir forustu Sjálfstfl. Við teljum að þar sé um að ræða þá skattlagningu sem við séum reiðubúnir að standa að.
Í 5. brtt. er gert ráð fyrir að ónotaðan persónuafslátt sé ekki aðeins hægt að nota til greiðslu á útsvari, heldur líka á öðrum opinberum gjöldum sem viðkomanda er ætlað að greiða.
Þá er 6. brtt. Þar er gert ráð fyrir að tekjuskattur lögaðila verði 53%. Það er sama skatthlutfall og var 1977. Í sömu brtt., þ. e. við 28. gr., er bætt við heimild til þess að draga hlutabréf frá eignum áður en eignarskattur er lagður á.
Þá er 7. brtt. Þar er gert ráð fyrir að eignarskattur manna, sem skattskyldir eru samkv. 1. gr., svo og þeirra íslensku ríkisborgara, sem búsettir eru erlendis um stundarsakir og skattskyldir eru samkv. 3. gr., reiknist eins og þar segir. Í þessu er efnisbreyting sem gengur út á að íslenskur ríkisborgari, sem um stundarsakir dvelst erlendis enda þótt hann hafi flutt heimilisfang sitt, missi ekki af þeim skattfrelsismörkum, sem í þessum lögum eru, og verði því ekki skattskyldur með öðrum hætti en aðrir íslenskir ríkisborgarar. Og skattleysismörkin hér eru þau sem lögin frá 1978 gerðu ráð fyrir, en þau eru uppfærð miðað við fasteignamat, sem er hið eðlilega, og skattprósentan sú hin sama, 0.8%.
Þá er gert ráð fyrir því í 8. brtt., að þessar fjárhæðir breytist ekki samkv. skattvísitölu, heldur samkv. verðbreytingarstuðli, sbr. 26. gr., einfaldlega vegna þess að samband á milli skattvísitölu og breytts fasteignamats er að sjálfsögðu ekkert. Þó að oft og tíðum sé hér um að ræða svipaðar breytingar sýnist eðlilegt að fasteignaskatturinn, þ. e. sú upphæð sem er skattfrjáls, sé byggð á verðbreytingarstuðlinum sem er annars vegar framfærsluvísitala og hins vegar byggingarvísitala.
Þá er 9. brtt., þess efnis, að við útreikninga á verðbreytingarfærslu samkv. 53. gr. skal innborgun á hlutafé eða öðru eigin fé á tekjuárinu dregin frá heildarfjárhæð skulda í lok næstliðins árs. Hér er um að ræða ákvæði til bráðabirgða um innborgun eigin fjár á árunum 1980–1982. Hér er verið að gera fyrirtækjum kleift að taka við eigin fé og fara með skattgreiðslur af því með sérstökum hætti á þessum þremur árum til þess að hvetja þá, sem þurfa á auknu fjármagni að halda, að afla sér sem mest af eigin fé.
Ég hef, herra forseti, gert grein fyrir þeim brtt. sem við fulltrúar Sjálfstfl. í fjh.- og viðskn. flytjum. Okkur er ljóst að þessar brtt. þýða tekjutap fyrir ríkissjóð. Við erum líka þeirrar skoðunar, að það sé ástæða til þess að draga úr ríkisútgjöldum og þannig eigi að ganga frá hnútunum að ríkissjóður verði ekki fyrir skaða. Við erum reiðubúnir til þess að taka þátt í þeirri athugun ef þær tillögur, sem hér hafa verið fluttar og ég hef mælt fyrir, yrðu samþykktar.
Ég sé svo ekki ástæðu, herra forseti, til þess að fara fleiri orðum um sjónarmið sjálfstæðismanna í fjh.- og viðskn., vísa til framhaldsnál. á þskj. 832 og til þeirra skýringa sem ég hef hér gefið á brtt. sem fluttar eru á þskj. 840.