14.05.1981
Neðri deild: 94. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4392 í B-deild Alþingistíðinda. (4442)

290. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Birgir Ísl. Gunnarsson:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja þessa umr. mjög, en ég vildi þó ekki láta þessa umr. fram hjá fara án þess að gera örlítið að umtalsefni þá grein sem hvað mest hefur verið umdeild í þeim skattalögum sem nú er verið að breyta, þ. e. 59. gr. skattalaganna. Efni hennar er, eins og mönnum er kunnugt um, að skattstjórum var veitt allvíðtæk heimild til þess að ætla mönnum tekjur undir ákveðnum kringumstæðum. Þessi grein eins og frá henni var gengið, fól í sér verulegt traust til þeirra sem fara með framkvæmd skattamála. Hún fól í sér traust á skattstofum, skattstjórum og ekki síst æðsta yfirmanni skattamála, hæstv. fjmrh. En því miður verður að segja eins og er, að framkvæmd þessarar greinar hefur verið á þann veg að þessir aðilar brugðust gersamlega því trausti sem hið háa Alþingi sýndi þeim. Framkvæmd þessarar greinar hefur verið með þvílíkum endemum að ljóst er og orðin allvíðtæk samstaða um það hér á Alþingi að við það verður ekki unað.

Skattstofurnar framkvæmdu þessa grein þannig, að það var gengið hart fram í því að leita uppi hvers konar smáatvinnurekendur: bændur, saumakonur, rakara, skósmiði, berjatínslufólk, leigubílstjóra og hvern hópinn á fætur öðrum sem hefur reynt að lifa af eigin rekstri og reynt að komast af án launatekna. Til þess að reyna að fá betur upplýst hvernig þessi grein hefði verið framkvæmd fór ég þess á leit við hæstv. fjmrh. snemma á þessu þingi að hann svaraði ákveðnum fsp. sem ég bar fram á þskj. 24, þar sem óskað var eftir ákveðnum upplýsingum um hvernig þessi grein hefði verið framkvæmd. Ég óskaði eftir því að svar yrði lagt fram skriflega, og það var gert. Hæstv. fjmrh. lagði fram ítarlegt svar við þessum spurningum sem ég skal ekki fara nákvæmlega út í hér, en það eru þó örfá atriði í þessum svörum sem ég vildi vekja athygli á hér á Alþingi þegar þessi mál eru hér til umr., vegna þess að þessi svör hafa lítið komið til umræðu.

Í fyrsta lagi var spurt um það, hvaða viðmiðunarreglur hefðu verið settar, og gerði hæstv. fjmrh. ítarlega grein fyrir því og byggði þá á skýrslu frá ríkisskattstjóra sem hann fékk um það efni.

Síðan var spurt um það, í hve mörgum tilvikum álagning hafi farið fram árið 1980 samkv. þessari grein laganna, og kemur í ljós að það er hvorki meira né minna en 19 300 skattgreiðendur í landinu sem hafa orðið fyrir því, að þessari grein er beitt á þá, hafa orðið fyrir því, að áætlað er á þá samkv. heimild í þessari grein. Það skiptist þannig á milli kjördæma, að í Reykjavík eru það 3604, í Vesturlandsumdæmi 1854, í Vestfjarðaumdæmi 1160, í Norðurlandsumdæmi vestra 2125, í Norðurlandsumdæmi eystra 2860, í Austurlandsumdæmi 2017, í Suðurlandsumdæmi 2663, í Vestmannaeyjum 222 og í Reykjanesumdæmi 2795, eða samtals 19 300.

Þá var enn fremur spurt um það, hver væri heildarupphæð áætlaðra tekna og álagðra skatta sem þannig hefði verið fundin. Það kemur fram í svari hæstv. fjmrh., að áætlaðar tekjur, sem þannig voru fundnar, voru samtals 50 milljarðar 356 millj. 763 þús. 569 gkr., og það er líka gerð grein fyrir því í þessu svari, hvernig það skiptist eftir umdæmum, en út í það skal ég ekki fara nánar.

Síðan segir að þeir skattar, sem þannig hafi verið fundnir, nemi um 31 milljarði kr., og þá er tekinn tekjuskattur, útsvar og sjúkratryggingagjald. Um þetta er allt miklu ítarlegar greint í þessu svari, ég hef aðeins tekið stærstu drættina í því, en þetta gefur þó nokkuð glögga mynd af því, hversu framkvæmd þessa ákvæðis í skattalögum hefur brugðist og hversu þeir aðilar, sem bera ábyrgð á þessu, hafa brugðist trausti hv. Alþingis. Þess vegna kemur að sjálfsögðu ekki annað til greina en að breyta þessari grein. Ég hefði út af fyrir sig ekkert harmað það, þó að hún hefði verið felld alveg niður eins og upphaflega var ráðgert í frv. hæstv. fjmrh., en tel þó að sú breyting, sem nú hefur verið á henni gerð, sé viðunandi og tryggi að skattyfirvöld gerist ekki offarar í þessum efnum.

Það eru ýmsar fleiri breytingar, sem gerðar hafa verið á þessu frv. eins og það hefur komið frá hv. fjh.- og viðskn., og ég vil taka undir það sem hér hefur komið fram, að mér finnst að þessi nefnd hafi unnið frábært starf og það sé mun betra frv., sem frá henni hefur komið nú, heldur en það frv. sem lagt var fram af hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstj. Til dæmis er til mikilla bóta að taka upp aftur það ákvæði, að þeir, sem atvinnurekstur stunda, eigi val um það að draga frá tekjum 10% eða aðra frádrætti eins og aðrir skattgreiðendur. Enn fremur hefur verulega verið bætt úr varðandi fyrningarreglur eins og þær birtust í því frv. sem hæstv. fjmrh. lagði fram. Þess vegna á þessi nefnd þakkir skildar fyrir það, hvernig hún hefur unnið að þessum málum.

Ég get ekki stillt mig um að benda á það hér, hversu harða útreið þetta frv. hæstv. fjmrh. hefur fengið hér á Alþingi og hjá þeirri nefnd sem um það fjallaði. Það má raunar segja að það standi ekki steinn yfir steini í því frv. sem hæstv. fjmrh. lagði fram fyrir nokkrum vikum og ætlaðist til að yrði hér samþykkt. Ég vek sérstaklega athygli á þessu vegna þess að hæstv. fjmrh. sá ástæðu til þess í vetur að snupra okkur tvo þm. hér í deildinni fyrir það, að við skyldum hafa borið fram litla brtt. við skattalög sem náði ekki fram að ganga. Hann sá ástæðu til þess að snupra okkur fyrir það, að við vissum greinilega ekki hvað við værum að gera, þegar um skattamál væri að ræða. En ég held að fátt sanni betur þau orð, sem ég viðhafði í þeim umr., að hæstv. fjmrh. með allan sinn sérfræðingaskara á eftir sér í skattamálum virðist vera sá maður hér í hv. Alþingi og hv. deild sem hvað síst veit hvað hann er að gera í skattamálum, ef taka má mið af því frv. sem hann lagði hér fram á sínum tíma. Hitt skal ég virða hæstv. ráðh. til betri vegar og tel hann vera meiri mann fyrir en ella, að hann skuli hafa látið segjast og að hann skuli hafa farið eftir leiðbeiningum, sem hv. n. hefur gefið honum, og að hann skuli hafa fallist á þær róttæku brtt. sem hér hafa nú verið lagðar fram við þetta skattalagafrv. En ég vil ráðleggja hæstv. fjmrh. að hugsa sig betur um næst, áður en hann vænir þm. hér um að þeir viti ekki hvað þeir gera þegar skattamál eru annars vegar.