14.05.1981
Neðri deild: 94. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4400 í B-deild Alþingistíðinda. (4446)

290. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fjh.- og viðskn. hv. deildar fyrir vel unnin störf nú þegar frv. um tekju- og eignarskatt kemur til 2. umr. Þetta frv. var lagt fram í aprílbyrjun og þótti vissulega nokkuð síðbúið. Skýringin á því var, eins og margir munu minnast, að fram eftir öllum vetri var beðið eftir upplýsingum frá ríkisskattstjóraembættinu sem verið var að afla með aðstoð tölvu, — upplýsingum sem byggðust á álagningu s. l. árs og voru taldar óhjákvæmileg forsenda þess, að unnt væri að taka afstöðu til ýmissa atriða núverandi skattalaga, þ. á m. hinnar umdeildu 59. gr. laganna.

Vissulega hefði verið æskilegt — og ég gerði mér raunar vonir um það um skeið, að unnt yrði að afgreiða skattafrv. fyrir páska. En það fór svo að miklu meiri tíma þurfti til að athuga þetta mál í nefnd en að hægt væri að afgreiða málið fyrir páska. Sannleikurinn er sá, að nefndin hefur lagt verulega vinnu í þetta frv. og haldið mjög marga fundi um það. Og ég vil sérstaklega nota þetta tækifæri til að þakka formanni hv. þm. Halldóri Ásgrímssyni, fyrir það starf sem hann hefur lagt í þetta mál, enda er það áreiðanlega honum að þakka fremur en öðrum að veruleg samstaða skapaðist innan n. um meginefnið í till. n. og er það vissulega gott út af fyrir sig. Það þýðir hins vegar ekki að menn, sem að þessum breytingum standa, þurfi allir að vera á því að breytingarnar séu allra besti kostur sem völ er á. Ég er vissulega í hópi þeirra manna sem hefðu kosið að niðurstaðan hefði orðið önnur að nokkru leyti en hún varð.

Ég tek ekki undir fullyrðingar hv. þm. Birgis Ísleifs Gunnarssonar áðan um að ég hljóti að hafa breytt um skoðun í þessu máli vegna þess að ég muni væntanlega greiða atkvæði með þessu frv. nokkuð breyttu frá því að ég flutti það. Ég hefði verið reiðubúinn til að samþykkja ákvæði frv. sem varða bæði 59. gr. og 17. gr., hvorar tveggja varða atvinnureksturinn, eins og þær voru lagðar fram. Það var ekki mín vegna sem breytingar voru gerðar á þessum greinum. Ég vil hins vegar vekja á því athygli, að þessar greinar geta auðvitað ekki talist meginefni þessa frv. Meginefni þessa frv. er að sjálfsögðu skattalækkunin sem frv. felur í sér ásamt því frv. sem er í Ed. og fjallar um sjúkratryggingagjald.

Samkvæmt samkomulagi, sem gert var við fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar fyrr í vetur, er ráð fyrir því gert, að tekjuskattar til ríkisins verði lækkaðir um sem svarar 1.5% af brúttótekjum liðins árs hjá framteljendum með almennar launatekjur, þ. e. með tekjur allt að 10–11 millj. gkr. Þessi skattalækkun er framkvæmd með niðurfellingu 1.5% sjúkratryggingagjalds, eins og menn þekkja, ásamt nokkrum breytingum á skattalögunum. Nokkrir hv. stjórnarandstæðingar hafa verið að reyna að veifa þessari staðreynd burt úr veruleikanum með mjög almennum og einföldum staðhæfingum um að þessi skattalækkun sé bara á pappírnum án þess að rökstyðja það á nokkurn hátt eða hætta sér út í frekari umræður um það mál. Ég held að það sé alveg ástæðulaust að fara að rökræða hér frekar með hvaða hætti þessi skattalækkun á sér stað. Þar stendur greinilega staðhæfing gegn staðhæfingu. En ég minni á það sem áður hefur komið fram hér í þinginu að ekki ómerkari menn en fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar, Björn Þórhallsson, Jón Helgason, Ásmundur Stefánsson, sem tóku þátt í viðræðum við ríkisstj. um þetta mál, voru sammála okkur um að ótvírætt væri að sú breyting, sem hér var gerð á skattalögum, fæli í sér 1.5% skattalækkun miðað við brúttótekjur liðins árs hjá þeim framteljendum sem ég áðan nefndi.

Hv. þm. Halldór Blöndal hefur gert ítrekaðar tilraunir til að gera þessa skattalækkun tortryggilega og spyr ótt og títt um hverjar séu áætlanir ríkisstj. um tekjur á þessu ári, heldur að með því að fá ákveðnar upplýsingar um þetta atriði geti hann sannað eða afsannað eitthvað í sambandi við þessa skattalækkun. Það hefur nú maður gengið undir manns hönd til þess að reyna að útskýra fyrir hv. þm. Halldóri Blöndal að skattalækkunin er alls ekki miðuð við tekjur á þessu ári. En það hefur ekki komið að neinu gagni og hann heldur áfram að spyrja spurninga sem varða tekjur og ráðstöfunartekjur á komandi mánuðum, en þær tekjur koma þessu máli alls ekkert við. Það er skemmst frá að segja að auðvitað veit ríkisstj. ekkert um hvað tekjur verða miklar hjá almennu launafólki á þessu ári. Auðvitað fer það eftir mörgum breytilegum staðreyndum sem eiga hugsanlega eftir að koma upp. Bæði fer það eftir aflabrögðum og atvinnuhorfum í landinu, atvinnuástandi í landinu á komandi sumri og síðan veltur þetta auðvitað allt á því, hvort menn eru að tala um taxtana á komandi mánuðum eða hvort menn eru að tala um ráðstöfunartekjur. Mér heyrist að þm. sé stöðugt að tala um taxtana, en við höfum að sjálfsögðu miðað þessa skattalækkun við ráðstöfunartekjurnar, og grunnurinn, sem miðað er við, eru tekjurnar á liðnu ári.

Hv. þm. spurði mig að því, hvort rétt væri sú fullyrðing forsrh. að verðbólgan hefði verið á undanförnum mánuðum 33%, reiknað á ársgrundvelli eins og hagfræðingarnir kalla það. Ég get ekki annað en staðfest þessa fullyrðingu forsrh. sem hver og einn getur raunar reiknað út fyrir sig sjálfur. Það er ekkert annað en að reikna út hvað hækkunin í janúar upp á 1.6% í framfærsluvísitölu gerir að viðbættri hækkuninni í febrúar, mars og apríl upp á rétt liðlega 8%. Hvað gerir þetta ef það er reiknað á tólf mánaða grundvelli í staðinn fyrir fjóra mánuði? Þá fáum við út prósentutölu sem er af þessari stærð.

Hins vegar bætti hann þeirri spurningu við, hvort ég ætti von á að verðbólgan yrði af þessari stærð á síðari hluta ársins. Ég svara því hiklaust neitandi. Mér dettur ekki í hug að verðbólgan verði af þessari stærð síðari hluta ársins, ég reikna með að hún verði heldur meiri. Margsinnis hefur komið fram í yfirlýsingum ríkisstj. og útreikningum sérfræðinga að það er reiknað með að verðbólgan verði ívið meiri á síðari hluta ársins en á fyrri hluta ársins. (HBl: Hvað þýðir ívið meiri?) Að því marki að meðaltalshækkunin frá upphafi árs til ársloka geti verið jafnvel um eða yfir 40%. Af því sést að hún hlýtur að vera dálitið meiri á síðari hlutanum ef hún á að vega upp 33% hækkun á fyrstu fjórum mánuðunum. — Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta, en vegna þess að um þetta var spurt vildi ég að þetta kæmi hér fram.

Um fsp. hv. þingmanna þarf ég nú ekki að fara mörgum orðum, en vil þó sérstaklega nefna hér að hv. þm. Halldór Blöndal ræddi töluvert um hlutaráðna sjómenn í landi og hefur flutt brtt. um það mál. Ég fékk hingað niður í þinghús vegna athugasemda Halldórs Blöndals bæði deildarstjórann í tekjudeild fjmrn., Árna Kolbeinsson, og einnig fulltrúa frá embætti ríkisskattstjóra. Þeir segja að það sé óhjákvæmilega rétt túlkun á hugtakinu „hlutaráðnir landmenn“ að um sé að ræða menn sem stundi beitingu vegna línuveiða, þannig hafi þetta hugtak verið túlkað og skilið á undanförnum árum og því sé eðlilegt og nauðsynlegt að í reglugerð sé skýrt tekið fram að skattafslátturinn, sem fiskimannafrádrátturinn felur í sér, sé bundinn við þessa menn. Það er ekki hugsun löggjafans að útgerðarmenn geti farið að ráða ýmsa starfsmenn sína sem hlutaráðna landmenn, hvort sem það eru menn sem vinna í netavinnu eða skrifstofuvinnu eða hvað sem það gæti verið, kannske hlaupa í skarðið á sjó stöku sinnum. Það er ekki ætlunin að víkka út þessi fríðindi sem verið hafa um langt skeið og hafa verið algjörlega takmörkuð við hlutaráðna landmenn. Ég held að kjarni málsins sé einmitt sá sem hv. þm. Halldór Blöndal fæst ekki til að viðurkenna, að þessi skattfríðindi hafa um margra ára skeið aðeins náð til þeirra manna í landi sem hafa unnið við línubáta. Þar hefur markalinan verið dregin og þar verður hún áfram dregin. Þetta er lagatúlkunaratriði og hefur verið túlkað af embættismönnum á þennan veg í mörg ár. S. l. ár er engin undantekning í þeim efnum.

Hv. þm. Matthías Bjarnason spurðist fyrir um það, hvort staðgreiðsla skatta væri fyrirhuguð á næsta ári, og mér skildist að hann ætti von á því, að eftir næstu áramót færu menn að borga af tekjum líðandi árs samkvæmt fyrirmælum fjmrh. Í því sambandi er honum títt að veifa stjórnarsáttamála sem er þó ekki hægt að túlka á þennan afgerandi hátt. Þar segir að vísu að stefnt skuli að því að tekið verði upp staðgreiðslukerfi skatta að tveimur árum liðnum, en ég held að öllum hljóti að vera ljóst að þar er átt við árið 1983 vegna þess að það hefur alltaf verið gert ráð fyrir að tvö ár þurfi að líða frá því að Alþingi tekur ákvörðun um staðgreiðslukerfi skatta og þangað til það kemur til framkvæmda.

Ég skal nú ekki segja neitt um hvort hægt verður að standa við þetta áform vegna þess að staðreyndin er auðvitað sú, að enn hefur Alþingi ekki tekið ákvörðun um staðgreiðslu. Það er engin hætta á að fjmrh. muni taka það upp á sitt eindæmi að fyrirskipa staðgreiðslukerfi skatta á næsta ári, enda auðvitað ekki nein lagaheimild til þess. Hins vegar hef ég beðið ríkisskattstjóra nú í vetur að undirbúa frv. um þetta efni, og raunar fékk hann leyfi frá störfum þegar í nóv. s. l. til að vinna að þessu verki. Annríki hefur verið mikið hjá ríkisskattstjóraembættinu í vetur og hann hefur því miður ekki getað unnið að þessu allan tímann. Það hafa komið langar eyður í það starf. En nú liggur fyrir frv. um staðgreiðslu sem ég hef lagt fyrir ríkisstj. og mun leggja fyrir stjórnmálaflokkana. Hitt vita allir, að svo skammt lifir nú af þingstörfum að engin von er til þess að frv. verði afgreitt í vor og það verður því ekki lagt fram fyrr en næsta haust.

Ég vænti þess, að Alþingi afgreiði frv. um staðgreiðslu á komandi hausti og að unnt verði þá að taka upp nýtt kerfi í þessum efnum á árinu 1984 — eigi síðar en á árinu 1984 er réttara að orða það, kannske á árinu 1983 ef nægur tími reynist til undirbúnings.

Ég lét þess getið áðan, að í skattafrv., sem lagt var fram fyrir páska, væru mörg mikilvæg ákvæði, og hef þegar nefnt skattalækkunina. Ég minni líka á ákvæðin um einstæð foreldri. Ég minni á ákvæðin um eignarskatt lágtekjufólks, en hagur lágtekjufólks, sem býr í skuldlitlu eigin húsnæði, er verulega bættur með því að því er heimilað að nýta ónýttan persónuafslátt til greiðslu eignarskatts. Einnig eru mikilvæg þau ákvæði frv. að helmingur húsaleigu vegna íbúðar til eigin nota skuli frádráttarbær við álagningu tekjuskatts í fyrsta skipti á næsta ári. Eins er um ákvæði frv. um refsivexti, að vangreiðsla á hluta af sköttum valdi því ekki, að allur ógreiddur skattur falli þegar í gjalddaga.

Í þessu frv. voru einnig tvö ákvæði sem vörðuðu atvinnureksturinn, og á ég þar við ákvæði 59. gr. tekjuskattslaga, sem voru felld niður í frv., og ákvæði sem gerir ráð fyrir að útgjöld vegna fyrningar í atvinnurekstri séu lækkuð um allt að 10% ef hreinar tekjur af rekstri eru undir 5% af brúttótekjum. Þessar tvær brtt. í frv. voru með vissum hætti nátengdar og eru náskyldar. Það er ljóst að með 59. gr. og framkvæmd hennar er verið að takmarka verulega fyrningarmöguleika atvinnurekenda í vissum tilvikum. Þegar 59. gr. var algjörlega felld út þótti eðlilegt að eitthvað annað kæmi þar í staðinn, og þess vegna var sett inn það ákvæði, sem gilti ekki bara um einyrkja í atvinnurekstri eða þá sem reka fyrirtæki í eigin nafni, heldur um öll atvinnufyrirtæki í landinu, að ef þessi fyrirtæki skiluðu ekki eðlilegum framlögum í sameiginlega sjóði landsmanna, hreinar tekjur þeirra í rekstrinum væru það lágar að skattar væru litlir sem engir, þá ætti að lækka afskriftirnar. Hugsunin er nákvæmlega sú sama og í 59. gr., en nær til miklu, miklu stærri hóps en 59. gr.

Ég held að allir séu sammála um það, að 59. gr. hafi verið stórgölluð eins og hún var í fyrri lögum. Og ekki bætti úr skák að skattstjórar framkvæmdu þetta ákvæði með nokkuð mismunandi hætti víða um land. Ýmsir hafa verið að leiða að því getum, að það hafi bara vantað á að fjmrh. kippti í spottann hjá þessum skattstjórum og segði þeim hvernig þeir ættu að nota 59. gr., þegar þeir færu ekki að lögum gæti fjmrh. komið og sagt þeim að breyta þessari álagningu og hinni eftir því sem honum fyndist sanngjarnt og eðlilegt. (Gripið fram í.) Já, vissulega er gott að hafa spotta á skattstjórum, og ekki er hægt að neita því, að þeir heyra undir ríkisskattstjóraembættið sem aftur heyrir undir fjmrn. En það hygg ég að sé alveg ótvíræð lagatúlkun allra sem til þekkja, að skattstjórar eru algjörlega sjálfstæðir í ákvörðunum sínum og álagningu og fjmrn. getur ekki haft þar nein áhrif til lækkunar og hækkunar. Það eina, sem getur gerst með álagningu skattstjóra, er það, að ríkisskattstjóri getur kært álagningu þeirra til ríkisskattanefndar og það er hún sem kveður upp endanlegan úrskurð. Það segir sig auðvitað sjálft, að slíkt hefði verið hin mesta lögleysa ef fjmrn. hefði gert einhverja tilraun til þess að fetta fingur út í það að skattstjórar legðu skatta á með þessum eða hinum hættinum. Það hefði ekki staðist.

Ég féllst á það, að 59. gr. væri afnumin með öllu úr skattalögum, vegna þess að ég lít ekki svo á að sú regla varði mikið skattsvik í þjóðfélaginu. Til þess höfum við allt aðrar reglur í skattalögum, þ. á m. 95. gr. skattalaga sem heimilar álagningu ef grunur leikur á að tekjur séu vantaldar eða fyrirliggjandi gögn eru talin ófullnægjandi eða tortryggileg. Ég viðurkenni það, að við álagningu á s. l. ári hafði 59. gr. í för með sér ýmiss konar ranglæti. Og þeir, sem urðu fyrst og fremst fyrir barðinu á þessari reglu, voru einyrkjar hvers konar með lítinn rekstur sem var nálægt núllinu. Aftur á móti er ljóst að á s. l. ári, eins og oft áður, hafa mjög mörg stórfyrirtæki sloppið vel frá álagningu skatts. Ég vil upplýsa það hér, að aðstöðugjaldsskyld fyrirtæki, sem rekin eru sem lögaðilar eða í félagsformi, eru liðlega 5 þús., 5 165 talsins á s. l. ári, en þar af greiddi ekki tekjuskatt nema tæpur helmingur þessara fyrirtækja. Nú verður að taka það með í reikninginn, að mörg af þessum fyrirtækjum eru kannske mjög smá fyrirtæki sem eðlilegt er að greiði lítinn skatt. En ef við tökum fyrirtæki, sem báru aðstöðugjald yfir 55 þús. kr. á s. l. ári og höfðu því verulegan rekstur með höndum, þá virðist ljóst að um 1400 fyrirtæki af þessum fyrirtækjum fengu engan tekjuskatt. Ég taldi því ekki aðeins nauðsynlegt að lækka fyrningar í þeim tilvikum þegar lítill eða enginn tekjuskattur er greiddur, til samræmis við það að 59. gr. hyrfi úr lögunum, heldur einnig af þeirri einföldu ástæðu, að allt of mörg fyrirtæki í landinu sleppa við að greiða eðlilega hlutdeild í sameiginlegum þörfum landsmanna. Þess vegna er 17. gr. í frv. á þann veg sem hún er, að hún gerir ráð fyrir að bókfærður hagnaður sé tekinn til endurskoðunar og fyrningarútgjöld séu lækkuð ef hagnaður reynist undir ákveðnu lágmarki.

Mér urðu það óneitanlega vonbrigði, það vil ég að komi hér alveg skýrt fram, — mér urðu það talsverð vonbrigði að fjh.- og viðskn. Nd. skuli hafa lagt til að fella niður þetta ákvæði frv. Hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson skrifaði undir nál. með fyrirvara um þessa grein og niðurfellingu hennar, og ég tek það fram hér, að ég mun ekki greiða því atkv., að þessi frvgr. verði felld niður, því að ég tel að það sé þörf á henni. Hins vegar stend ég að þessu frv. og þeim breytingum að öðru leyti, sem á því eru gerðar, og sé ekki ástæðu til þess að marka afstöðu mína að þessu leyti með öðrum hætti en að sitja hjá við þá atkvgr. þegar greidd verða atkv. um 17. gr. frv.

Herra forseti. Ég hef hér fjallað um tvær greinar sem voru í frv., en hafa tekið breytingum í till. fjh.- og viðskn., önnur hreinlega verið felld niður, en hinni verulega breytt, þar sem eru 17. gr. í frv. og 59. gr. í lögunum. Báðar varða þær atvinnureksturinn í landinu, eins og ég hef þegar tekið fram, og báðar víkja þær að skyldum vandamálum. Munurinn er bara sá, eins og ég hef þegar tekið fram, að 59. gr. fjallar um smáatvinnurekendurna, hún fjallar fyrst og fremst um þá, sem reka fyrirtæki í eigin nafni, og gerir ráð fyrir að hægt sé að mynda tap í rekstri hjá fyrirtæki að því marki sem fyrningarheimildir og nýting þeirra leyfir ásamt tekjufærslu. Ég viðurkenni að greinin er miklu skárri en sú sem fyrir var, einnig vegna þess að viðmiðunin hvað varðar laun bænda er orðin önnur. Það var í raun og veru ekkert réttlæti í því, að í viðmiðunarreglum ríkisskattstjóra samkv. lögunum væri miðað við dagvinnutekjur og yfirvinnutekjur bænda, en ekki hjá öðrum stéttum. Þetta hlaut að verða að samræma og það hefur nefndin gert. Það tel ég til mikilla bóta. Hins vegar tel ég ekki til bóta að breyta fyrningarreglunum á þann hátt sem nefndin hefur gert till. um. En þó er það mikil bót í máli, að 14. gr. frv. er látin standa áfram þar sem gert er ráð fyrir að almenna fyrningarheimildin í 44. gr. laganna, sem er upp á 50%, sé lækkuð í 40%. Ég fagna því, að samstaða hefur tekist um það, og tel það verulega bót í máli hvað þessar fyrningarreglur snertir.

Að öðru leyti vil ég taka það fram, að vafalaust er það síður en svo að við séum að leggja seinustu hönd á skattalög. Við eigum áreiðanlega eftir að breyta skattalögum á næsta vetri og verðum að vinna að því eftir að álagningin hefur farið fram í sumar að átta okkur á hvaða vankantar kunni að vera á þessari löggjöf þrátt fyrir þær breytingar sem hér liggja fyrir. Ég álít, að afskriftareglurnar þurfi alveg sérstaklega að endurskoða, og vænti þess, að svo verði gert áður en álagning fer fram í annað sinn héðan í frá.