11.11.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 611 í B-deild Alþingistíðinda. (445)

347. mál, flugstöð á Keflavíkurflugvelli

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs til þess að leggja áherslu á að hafin verði framkvæmd við nýja flugstöðvarbyggingu á Keflavíkurflugvelli hið fyrsta. Ég tók ekki eftir því í svari hæstv. utanrrh., að hann tímasetti þessa framkvæmd eða byrjun þessarar framkvæmdar. En ég hef skilið málið svo, að til þess að njóta góðs af samvinnu við Bandaríkjamenn um byggingu þessarar stöðvar og fjármögnun hennar sé nauðsynlegt að hefja framkvæmdir á næsta ári. Þar af leiðir að ákveða verður okkar hlut annaðhvort í fjárlögum eða lánsfjáráætlun fyrir áramót. Ég tel þetta brýna nauðsyn vegna þess að flugstöðin er hönnuð með tilliti til þess að umferð um flugvöllinn sé minni en áður var ætlað, og einmitt það, að borgaryfirvöld fjalla um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar, útilokar, að við förum að verja miklu fjármagni í bættan aðbúnað í innanlandsflug meðan sú ákvörðun er ekki tekin.

Ég tel eðlilegt að Bandaríkjamenn taki þátt í byggingarkostnaði flugstöðvarinnar vegna þess að sú framkvæmd kemur varnarliðinu til góða að hluta til. Hún gerir kleift að skilja á milli varnarliðsstarfsemi og almennrar flugstarfsemi sem er heillavænleg stefna fyrir okkur Íslendinga.

Ég vil svo varðandi olíugeymana undirstrika það, að nauðsynlegt er einnig að flýta þeim framkvæmdum, en vek um leið athygli á því, að hæstv. utanrrh. og hæstv. fjmrh. kemur ekki saman um hvernig háttað skuli ákvörðun í þessu máli.

Fyrirspyrjandi spyr: Hefur ríkisstj. tekið afstöðu til byggingar olíutanka í Helguvík? Þetta er rangt orðuð fsp. Hæstv. utanrrh. hefur sagt að það sé ákvörðunarvald hans. Ég er honum sammála. Það er ákvörðunarvald, sem byggist á venju, ef þessar framkvæmdir eru innan þeirra marka sem ætla verður að þær verði og venja er um varnarliðsframkvæmdir frá einu ári til annars. En hæstv. fjmrh. segir að engar ákvarðanir verði teknar varðandi hvoruga þessa framkvæmd nema af ríkisstj. allri. Þarna er bersýnilega ágreiningur á ferðinni milli þessara ráðh. Hæstv, forsrh. hefur kveðið upp úrskurð um það, að hann fallist á sjónarmið Alþb.-manna. Ég er honum ósammála og ætla að hæstv. utanrrh. sé maður til þess að halda fram sinni skoðun. (Forseti hringir.) Ef ég má ljúka máli mínu, herra forseti, þá vildi ég aðeins bæta því við, að varðandi flugstöðina er það hins vegar ljóst af stjórnarsáttmátanum, að bygging hennar hefst ekki nema með samþykki ríkisstj. allrar. Þetta er eitt skriflegt dæmi, bókað svart á hvítu, um forræði og yfirráð Alþb. í stefnu og stjórnarframkvæmdum núv. hæstv. ríkisstj. En það er alveg óþarfi að láta þetta forræði Alþb. gilda um annað en þar sem þeir hafa svart á hvítu beygt samstarfsaðila sína.