11.11.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 612 í B-deild Alþingistíðinda. (446)
347. mál, flugstöð á Keflavíkurflugvelli
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Það er vegna orða hæstv. fjmrh. Ragnars Arnalds hér áðan, að ég vil leggja á það mikla áherslu, að um langt árabil hefur verið höfuðnauðsyn að aðskilja almennt farþegaflug og hernaðarumsvif á Keflavíkurflugvelli. Það hlýtur hverjum einasta Íslendingi að vera ami að því að aka í gegnum herstöð til þess að komast til og frá landi sínu. Hæstv. fjmrh. er á móti smíði nýrrar flugstöðvarbyggingar sem aðskilur þetta tvennt. Þess vegna er spurning mín til hans: Hefur hann svona forkostulega gaman af því að fara í gegnum þessa herstöð, þegar hann fer til og frá Íslandi, eða er þarna á ferðinni hernaðarlegt og sálrænt herbragð þeirra Alþb.-manna, að fá sem flesta Íslendinga til að aka í gegnum varnarstöðina hvert sinn sem þeir þurfa að fara til og frá landinu?