15.05.1981
Sameinað þing: 83. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4435 í B-deild Alþingistíðinda. (4478)

140. mál, árangur nemenda í grunnskólum og framhaldsskólum

Frsm. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Allshn. fékk til athugunar till. til þál. um athugun á því, hver áhrif breytingar á skólahaldi hafa haft á árangur nemenda í grunnskólum og framhaldsskólum. Þessi till. var rædd á nokkuð mörgum fundum nefndarinnar. Umsögn barst frá Kennarasambandi Íslands og til fundar við nefndina kom ráðuneytisstjórinn í menntmrh., Birgir Thorlacius, og ræddi við nm. um efni till. og svaraði fsp. sem fram voru bornar.

Umsagnir um þetta eru jákvæðar. Umsögn ráðuneytisstjórans var í þá átt, að hann taldi þörf fyrir þessa athugun. Hann taldi eðlilegt að skólarannsóknadeild hefði hana með höndum, en hann hafði hins vegar orð á því við n., að það mundi trúlega fara eftir fjármagnsmöguleikum rannsóknadeildarinnar hvernig framvinda málsins yrði að öðru leyti.

Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að rétt væri að samþykkja þessa tillögu, og hún leggur einróma til við hv. Alþingi að till. verði samþykkt óbreytt.