15.05.1981
Sameinað þing: 83. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4442 í B-deild Alþingistíðinda. (4494)

167. mál, iðnaður á Vestfjörðum

Sigurgeir Bóasson:

Herra forseti. Ég þakka hv. atvmn. fyrir jákvæða afgreiðslu á þessari till. um eflingu iðnaðar og þjónustu á Vestfjörðum.

Eins og fram kemur í grg. þessarar till. er atvinnulíf á Vestfjörðum mjög einhæft og hefur óstöðugleiki í búsetu verið mikill. Fólksfjölgun á þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum hefur verið miklum mun minni en annars staðar. Þessu valda fyrst og fremst einhæfir atvinnuvegir. Því er afar mikilvægt að úr verði bætt.

Það er fyrirsjáanlegt, með hliðsjón af starfi fiskiskipastólsins og ástandi fiskstofna við landið, að frekari uppbygging í útgerð og fiskvinnslu verður ekki á Vestfjörðum á næstu árum og því blasir við stöðnum á þéttbýlum stöðum þar nema nýju blóði verði hleypt í atvinnulífið. En þá er spurningin: Er með samþykkt þessarar till. verið að gera eitthvað raunhæft til eflingar atvinnulífs á Vestfjörðum eða er hér aðeins verið að skapa atvinnu fyrir starfsmann byggðadeildar Framkvæmdastofnunar ríkisins? Er verið að gera enn eitt pappírsgagnið sem stungið verður niður í skúffu? Í þessu sambandi vil ég — með leyfi forseta — vitna í skýrslu þá um Framkvæmdastofnun ríkisins sem hér var til umr. í dag. Á bls. 13 í þessari skýrslu er fjallað um starfsemi byggðadeildar á árinu 1980. M. a. segir á þessa leið í skýrslu forstjóra þessarar deildar þegar hann greinir frá starfsemi deildarinnar:

„Vandi byggðadeildar er því ekki fyrst og fremst sá að gera skynsamlegar áætlanir, heldur miklu fremur að koma þeim í framkvæmd. Sá tími, sem þá tekur að fá áætlun samþykkta í stjórn stofnunarinnar, er langur og að fenginni þeirri samþykkt er reynslan sú, að annan eins tíma tekur að fá áætlun samþykkta í ríkisstj. Byggðadeildin hefur litla reynslu af því sem þá tekur við, þ. e. að fá áætlun, sem felur í sér framkvæmdaáform, framkvæmda.“ — Síðan segir: „Lög Framkvæmdastofnunar ríkisins eru afdráttarlaus um að grundvalla eigi lánaáætlun Byggðasjóðs á landshlutaáælunum og höfð skuli hliðsjón af landshlutaáætlunum við ráðstöfun fjár sjóðsins. En þó að gengið sé út frá því, að Byggðasjóður stuðli af mætti að framkvæmd áætlunar er það ekki nóg. Áætlanir byggðadeildar hljóta að ná til sviða sem standa utan valds og áhrifasviðs stjórnar Framkvæmdastofnunar ríkisins. Fjármála- og stjórnsýslustofnanir ríkisins eru almennt ekki skyldugar til að fara eftir þessum áætlunum. Ríkisstj. ein hefur vald til þess að tryggja framgang áætlana að þessu leyti.“

Til viðbótar þessu langar mig einnig til að vitna í þá umsögn sem kom frá byggðadeild Framkvæmdastofnunar um þessa þáttill., en þar segir m. a.:

„Almenn stefna ríkisvaldsins í byggðamálum hefur enn ekki verið mörkuð. Hinn 18. apríl 1973 samþykkti Alþingi að kjósa sjö manna nefnd þm. til að gera tillögur um markmið og leiðir og mörkun almennrar stefnu til jafnvægis í byggð landsins. Nefndin hefur enn ekki skilað áliti. Framkvæmdastofnunin hefur starfað í 9 ár án skilgreindrar byggðastefnu og í litlum tengslum við þær stjórnsýslustofnanir ríkisins sem hún upprunalega átti að starfa í nánum tengslum við. Af þeim sökum m. a. hafa byggðaáætlanir aldrei náð að skipa þann sess hér á landi sem þær skipa í nágrannalöndunum.“

Og að lokum þetta: „Byggðadeildin telur sjálfsagt og eðlilegt að gerð verði byggðaáætlun fyrir Vestfirði þar sem megináhersla verði lögð á eflingu iðnaðar og þjónustu. Hins vegar vill deildin minna á framkvæmd byggðaáætlana hefur enn ekki hlotið neina formlega stöðu í stjórnsýslukerfi landsins. Gerð og samþykkt umræddrar áætlunar fyrir Vestfirði er því engin trygging fyrir því, að átak verði gert til eflingar iðnaði og þjónustu á Vestfjörðum.“

Svo mörg voru þau orð. Sé þetta rétt, sem hér hefur verið rakið frá byggðadeild Framkvæmdastofnunar, er augljóst að pottur er brotinn í framkvæmd byggðastefnu hér á landi. Auðvitað verður að vera beint samband á milli þeirra áætlana sem gerðar eru, og þeirra fjárfestingarlánasjóða, sem ætlað er að komi þessum áætlunum í framkvæmd. Það er til lítils að starfsmenn Framkvæmdastofnunar og byggðadeildar sitji sveittir við að gera áætlanir sem engin trygging er fyrir að komist í framkvæmd vegna þess að hinir ýmsu fjárfestingarlánasjóðir, eins og Iðnlánasjóður og fleiri, telja sér alls ekki skylt að lána samkv. þessum áætlunum. Ég sé ekki betur en þarna þurfi að taka á málum ef þessar áætlanir, sem hér er verið að samþykkja í belg og biðu, um daginn fyrir Vesturland og nú fyrir Vestfirði, eiga að komast í framkvæmd. Byggðasjóður einn getur auðvitað ekki lánað alfarið til þessara áætlana, heldur verða hinir sjóðirnir líka að koma til og það verður að sjá svo um, að þeir séu skyldugir til að lána samkv. þessum áætlunum.

Ég vil því að lokum skora á hæstv. ríkisstj. og stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins að taka þessi mál nú þegar til gagngerðrar athugunar með það markmið fyrir augum að tryggja framkvæmd landshlutaáætlana eins og þeirra sem hér er til umr.