15.05.1981
Sameinað þing: 83. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 4444 í B-deild Alþingistíðinda. (4496)

267. mál, menntun fangavarða

Frsm. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um till. til þál. um menntun fangavarða sem felur í sér að skipuð verði fimm manna nefnd sem taki til endurskoðunar menntun fangavarða og teiti leiða til úrbóta og geri tillögur þar að lútandi. Eins og fram kemur í nál. hefur n. fengið umsagnir um till. frá dómsmrn., Félagasamtökunum Vernd, Fangavarðafélagi Íslands og Geðhjálp: Allir þessir aðilar mæla með samþykkt till. og koma fram mjög athyglisverðar upplýsingar í umsögnunum. Það undirstrikar nauðsyn þess, að menntun fangavarða verði tekin til gagngerðrar endurskoðunar.

Á það er bent, að um 80% fanga eigi við áfengis- eða geðræn vandamál að stríða. Margir fangar þurfa líka að nota mikið af lyfjum og er bent á að stórauka þurfi fræðslu fangavarða í meðferð lyfja, auk þess sem í æ ríkara mæli séu eiturlyfjaneytendur vistaðir í fangelsum, sem oft þurfa sérstaka meðhöndlun sem nauðsyn er á að fangaverðir fái fræðslu um. Einnig var bent á í umsögn Geðhjálpar að bæði í fangageymslum lögreglu og fangelsi eru vistaðir geðveikir menn sem eru ósakhæfir. Telur Geðhjálp slíkt mjög ámælisvert, en bendir á að meðan það ástand varir að geðveikir menn, sem eru ósakhæfir; gisti fangageymslur verði að leggja á það þunga áherslu að fangaverðir fái fræðslu um meðferð á þessu fólki. Á það er bent í umsögn dómsmrn., eins og reyndar í grg. þáltill., að menntun fangavarða hér á landi sé mjög lítil í samanburði við menntun þá sem fangaverðir á hinum Norðurlöndum hljóta.

Nefndin mælir með samþykkt þáltill. með breytingu þeirri sem fram kemur á þskj. 773. Um er að ræða að í þáltill. er gert ráð fyrir fimm manna nefnd skipaðri á þann hátt að menntmrn. tilnefni einn fulltrúa, tveir verði fulltrúar fangavarða eða stéttarfélags þeirra og einn fulltrúi frá dómsmrn., auk þess sem formaður nefndarinnar er skipaður af dómsmrh. 1. flm. till. hafði bent á það í framsöguræðu að eðlilegt væri að nefndin tæki það til athugunar, að einn fulltrúi yrði tilnefndur af Félagasamtökunum Vernd, auk þess sem fram kom í umsögn til nefndarinnar ósk um fulltrúa Verndar í nefndinni. Allshn. taldi eðlilegt að koma til móts við þessa ósk, enda æskilegt að Félagasamtökin Vernd, sem vinna að því að aðstoða og hjálpa föngum og þekkja vandamál þeirra vel, eigi sæti í þessari nefnd. Allshn. gerir því till. um að í stað fulltrúa dómsmrn. komi einn fulltrúi frá Félagasamtökunum Vernd, enda er formaður nefndarinnar skipaður af dómsmrh., eins og ég greindi frá áðan.

Allshn. mælir með samþykkt till. með þeirri breytingu sem fram kemur á þskj. 773 og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Nefndin skal skipuð fulltrúum eftirtalinna aðila: einum frá menntmrn., tveimur fulltrúum fangavarða eða stéttarfélags þeirra, annar þeirra skal vera starfandi fangavörður, og einum frá Félagasamtökunum Vernd“