11.11.1980
Sameinað þing: 16. fundur, 103. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í B-deild Alþingistíðinda. (450)

347. mál, flugstöð á Keflavíkurflugvelli

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Bygging nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli er nauðsynleg vegna íslenskra hagsmuna, vegna þess að núverandi aðstaða farþega í millilandaflugi er óviðunandi, vegna þess að núverandi aðstaða starfsfólks í flugstöðinni er óviðunandi og slys og óhöpp geta skeð vegna þess, hvað byggingin er úrelt. En hér er líka um hagsmunamál Íslendinga að ræða, eins og ég benti á í fyrri ræðu minni, að því leyti, að við höfum hag af að skilja á milli almennrar flugstarfsemi og varnaliðsstarfsemi og komum ekki fram því fyrirkomulagi varnarstöðvarinnar, sem við viljum, fyrr en þessi aðskilnaður hefur átt sér stað.

Að svo miklu leyti sem hér er um íslenska hagsmuni að ræða, þá munum við borga okkar hluta í flugstöðvarbyggingunni. En hér er líka um hagsmuni Bandaríkjamanna að ræða. Það auðveldar þeim varnarstarfsemina og rekstur varnarstöðvarinnar þegar aðskilnaður er kominn á. Með tilliti til þess, að þeir fá í sínar hendur gömlu flugstöðina, þótt úrelt sé, en að einhverju leyti þó nothæf, og þar sem þeir geta einnig fengið aðstöðu, ef illa fer, fyrir sjúkraskýli í nýju flugstöðinni, þá er eðlilegt, að Bandaríkin taki þátt í byggingarkostnaði þessarar nýju flugstöðvar, og á ekkert skylt við aronsku.

Ég hef aldrei verið orðaður við aronsku. Ég held að Ólafur Ragnar Grímsson ætti að líta sér nær í hópi samstarfsmanna til að finna málsvara þeirra.